Nýja Bíóið, ádeila
Nýja Bíóið
Grein á forsíðu FRAM 29. júní 1918
Nú er verið að byggja skúr úr steinsteypu við endann á leikfimishúsinu til þess að setja í vélar þær, er nota skal við hinar fyrirhuguðu kvikmyndasýninga hér.
Er skúrinn nokkuð nærri götunni, en það gerir ekki svo mikið til, því fyrsta lagi mun það ekki koma í bága við byggingasamþykkt Siglufjarðar, hún er ósköp þægileg og góð viðureignar og í öðru lagi munu menn ekki ybbast mikið yfir þó einhver óþægindi yrðu af þrengslum við götuna, svo er gleðin og ánægjan mikil hjá mörgum yfir að hafa fengið þennan nýja útgjaldapóst -- kvikmyndasýningarnar -- í bæinn.
Við erum framfarafólk Siglfirðingar og alveg rétt af okkur að láta það sjást, að við hvorki þurfum né viljum spara neitt við okkur, þó allur heimurinn stynji undan þunga stríðsins.
En hvert mál hefur tvær hliðar. Leigan sem hreppurinn fær eltir leikfimishúsið er ekki smá, átján hundruð krónur á ári. En hvaðan koma þær? Koma þær ekki úr vasa fólksins er býr hér og þurfa ekki þeir sem húsið leigja að fá margfalt fé til þess að geta borgað þessa háu leigu?
Ársskatt á bæjarbúa, í þrjú ár sem gengur í hreppssjóð En hún hefir jafnframt lagt á bæjarbúa þann skatt sem innifelst í ágóða þeirra manna sem húsið hafa leigt og fyrir fyrirtækinu standa og hann verður ekki lítill, reynslan hefur sýnt að kvikmyndafélögin hafa grætt stórfé um allan heim.
Aðrar eins ráðstafanir og þessar eru víðsjárverðar þegar litið er á þetta mál í fullri alvöru þá.virðist svo sem full ástæða hefði verið til að reyna að hindra að þetta fyrirtæki fengi fótfestu hér fyrr en eftir stríðið.
Hér skulda menn hreppnum lífsnauðsynjar fyrir þúsundir króna og geta ekki með hægu móti borgað, þó er ekkert gert til að fyrirbyggja ný útgjöld, heldur þvert á móti stuðlað að því, að möguleikar séu fyrir menn að eyða sínu fé til óþarfa.
Vonandi er, þegar byrjað verður að sýna hér kvikmyndir, að eftirlit verði haft með að ekki verði sýndar siðspillandi myndir, þær eru til og geta haft óútreiknanlega áhrif.
„H.J“ mun vera Hannes Jónasson bóksali og ritstjóri Fram. En hann gaf penna sínum nokkrum sinnum frjálsar hendur, og oftar en ekki frekar neikvæður gagnvart kvikmyndasýningum og raunar fleiri tómstunamöguleikum. Steingrímur
H.J.