Hús á Siglufirði

Hér á undirsíðum eru að vísu ekki mikið um upplýsingar um hús á Siglufirði, en hálfnað er verk þá hafið er.

Allar upplýsingar um hús eru vel þegnar. Þú sem lest þetta, býrð eða þekkir til á Siglufirði, átt upplýsingar, þekkir  til slíkra gagna, þá eru þær vel þegnar hér á síðuna.

Húsið við Hvanneyrarbraut 80

Húsið var í upphafi sagt heita Hvanneyrar Bakki, ásamt fleiri húsum, sem kend voru við Bakka, hús sem á þeim tíma voru norðan við Hvanneyrará. 

Húsið byggði Axelina Sogge ásamt manni sínum, Sölva Valdimarssyni, árið 1935. 

Þetta var einnar hæða steinsteypt hús.

Síðar keyptu Þjóðverjinn Heimbert Betke, (síðar nefndur Herbert Pálsson, en Íslensk lög skylduðu hann til að breyta nafni sínu) og kona hans Svava Betke húsið. Betke eins og hann var ávalt kallaður var vinsæl persóna og starfaði sem verkstjóri hjá síldarsöltun Hafliða Hf, - 

Betke byggði árið 1959 við norðurenda hússins, eina hæð og kjallara, með aðstoð sonar síns Arnar. (Örra)

Seinna keyptu húsið, Axel Schiöth og kona hans Birgitta Árnadóttir og eftir að þau fluttu úr bænum.

Steingrímur Kristinsson og kona hans Guðný Ósk keyptu húsið árið 1968. Þau létu einangra húsið  klæða og með "Garðastáli" og bjuggu þar  til 29. ágúst 2012, er þau Guðný og Steingrímur flutti á Dvalarheimilið Skálarhlíð)  -- 

Húsið var rúmu ári síðar selt bónda úr Eyjafirði, sem hugðist skipta húsinu í tvær íbúðir og hafa til það lausaleigu til ferðamanna. 

Þau áform gengu ekki eftir, en hefur verið í leigu annað slagið síðan. Enginn virðist í dag í águst 2018 vera skráður þar til heimilis. Samkvæmt ja.is - Þó er eitthvað líf þar inni, miðað við bíl á bílastæðinu ofl.