Risasíld

sksiglo.is | Fróðleikur | 08.07.2015 | 20:00 | Jón Ólafur Björgvinsson


STÆRSTA SÍLD VERALDAR ?



Hvar er hún geymd núna ? Einhver sem veit meira ?

1955: Stærsta síld veraldar

Stærsta síldin sem veiðst hefur í veröldinni, allt frá þeim tíma er menn tóku fyrst að stunda síldveiðar í upphafi vega, veiddist á Sléttugrunni í fyrradag.

Risasíld þessi var ″46,3 sentimetrar að lengd og 710 gr. að þyngd,″ segir í Morgunblaðinu 29. júlí 1955.

Það var Hrafn Sveinbjarnarson sem fékk síldina í allgóðu kasti og fór með aflann til Siglufjarðar.

Þar var úrskurðað að síldin væri tíu ára gömul og alíslensk að uppruna. „

Var síldin látin þegar í stað í formalín og geymd til frekari rannsókna.

Texti  og mynd: Lánað frá Síldarminjasafni Íslands.

Sjá nánar hér:  Síldarmolar - eftir Jónas Ragnarsson

Myndir: Síldarmynd lánuð frá heimasíðu Síldarminjasafnsins, speglun við Rolandsbrakka: Jón Ólafur Björgvinsson

Texti: Jónas Ragnarsson og NB

Tengdar fréttir