Halldór Gestsson

Halldór Þorstein Gestsson

Halldór Gestsson, fæddur á Siglufirði 15. apríl 1917, 

Hann lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 3. nóvember 2008. 

Foreldrar hans voru hjónin 

Lára Thorsen, fædd á Hjalteyri 21.6. 1887, d. 16.11. 1976 og 

Gestur Guðmundsson frá Bakka á Siglufirði, f. 21.8. 1892, d. 8.3.1937.

Foreldrar Láru voru

Lars Thorsen frá Noregi og

Hjörtína Kristín Kristjánsdóttir.

Foreldrar Gests voru 

Guðmundur Bjarnason og

Halldóra Björnsdóttir, sem bjuggu í Bakka á Siglufirði. 

Systkini Halldórs eru 

Hjörtína Kristín Gestsdóttir, fædd 26.10. 1923, búsett í Keflavík, 

Svava Gestsdóttir, f. 1921 og 

Óskar Leó Gestsson, f. 1925, en þau létust bæði í æsku. 

Halldór giftist 15. október 1944 

Líney Bogadóttir frá Minni-Þverá í Fljótum, f. 20.12. 1922.

Foreldrar hennar voru 

Bogi Guðbrandur Jóhannesson, f. 9.9. 1878, d. 27.10. 1965 og 

Kristrún Hallgrímsdóttir, f. 3.12. 1878, d. 15.8. 1968.

Halldór Gestsson og Líney Bogadóttir eignuðust sjö börn. Þau eru: 

1) Kristrún Halldórsdóttir. f. 15.10. 1943,

maki Sigurður Hafliðason, 

2) Lára Halldórsdóttir. f. 30.1.1945,

maki Eyjólfur Herbertsson, 

3) Gestur Óskar Halldórsson. Gestur Halldórsson) f. 21.1. 1947,

maki Ólöf Markúsdóttir, 

4) Guðrún Hanna Halldórsdóttir. f. 28.7. 1948,

maki Þorsteinn H. Jónsson, 

5) Halldóra Hafdís Karen Halldórsdóttir, f. 4.8. 1949,

maki Guðmundur Meyvantsson, 

6) Bogi Guðbrandur Karl Halldórsson, f. 24.7. 1951 

7) Líney Rut Halldórsdóttir, f. 24.4. 1961,

maki Oddný Sigsteinsdóttir.

Þegar Halldór lést átti hann 56 barna- og barnabarnabörn. Halldór og Líney bjuggu allan sinn búskap að Hlíðarvegi 11 eða þar til þau fluttust að Skálarhlíð 1994.

Halldór gekk í Barna- og unglingaskóla Siglufjarðar. Hann stundaði nám í rafvirkjun við Iðnskóla Siglufjarðar og síðar við Póstskólann í Reykjavík.

Hann hóf ungur störf hjá Pósti og síma á Siglufirði, fyrst sem sendill 1928 en hann gegndi síðar ýmsum störfum hjá því fyrirtæki, var t.d. vaktmaður á símanum, loftskeytastöðinni og póstafgreiðslumaður.

Hjá Pósti og síma starfaði hann allan sinn starfsaldur eða þar til að hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1987.

Einnig vann hann sem vörubílstjóri og afgreiðslumaður hjá Áfengisverslun Siglufjarðar.

Ungur aðstoðaði hann föður sinn sem var ferjumaður á ferjubátnum Farsæli

Halldór Gestsson