Eggert Ólafsson í Bakka
Eggert Ólafsson Bakka
Eggert Ólafsson fæddist á Siglufirði 16. október 1942. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar, Siglufirði 24. júlí 2015.
Foreldrar hans voru
Ólafur Sigurbjörnsson, f. 1923 d. 2008, og
Jóna Friðriksdóttir, f. 1922, d. 1999.
Eggert ólst upp á Siglufirði hjá afa sínum,
Friðrik Ingvar Stefánsson, f. 1897, d. 1976, og konu hans,
Margrét Marsibil Eggertsdóttir, f. 1903, d. 1985.
Eggert leit á þau sem sína foreldra.
Uppeldissystur hans eru
Guðný Ósk Friðriksdóttir, f. 1932, og
Guðbjörg Oddný Friðriksdóttir, f. 1936, Friðriksdætur.
Systkini sammæðra
Óli Þór Alfreðsson, f. 1944,
Jóhanna Alfreðsdóttir f. 1945,
Guðný Alfreðsdóttir, f. 1948,
Alfreð Hjörtur Alfreðsson, f. 1952, d. 1975,
Friðrik Ingvar Alfreðsson, f. 1954,
Bernódus Alfreðsson, f. 1957, og
Katrín Frigg Alfreðsdóttir, f. 1962,
Systkini samfeðra
Sigurbjörn Ólafsson, f. 1948, og
Gerður Ólafsdóttir, f. 1951
Eggert giftist
Stefanía Guðmundsdóttir, þau skildu. Þau eignuðust tvö börn:
1. Árný Sigurlaug Eggertsdóttir, f. 16.12. 1971, maki Birgir Þórisson,
börn þeirra eru
Daníel Ágúst,
Stefanía Lilja og
Berglind Rós.
2. Guðmundur Friðrik Eggertsson, f. 22. 7 1975,
sambýliskona
Ásthildur Sóllilja Haraldsdóttir,
börn hans eru
Kristinn Dagur og
Svala Dís.
Sambýliskona Eggerts var
Þuríður Alma Karlsdóttir, þau slitu samvistum, þau eignuðust einn son.
3. Ingimar Birgisson, f. 27. 2. 1984.
Þann 17. júlí 1992 giftist Eggert
Sólrún Valsdóttir, f. 21.1. 1944
Sólrún á þrjú börn,
1. Valdís Ingimarsdóttir,
2. Ólafur Ingimarsson og
3. Auður Ingimarsdóttir
Sólrún á sjö barnabörn.
Eggert var lengst af sjómaður og vann hann þar ýmis störf en lengst af var hann kokkur. Seinustu árin, eða frá því hann flutti aftur til Siglufjarðar og þar til hann lét af störfum sökum aldurs, vann hann hjá Siglufjarðarbæ.
Útför Eggerts verður gerð frá Siglufjarðarkirkju í dag, 8. ágúst 2015, og hefst athöfnin kl. 14.Okkar elskulegi mágur og svili, Eggert Ólafsson, kvaddi þennan heim 24. júlí eftir langvarandi veikindi. Kynni okkar Eggerts hófust þegar systir mín Sólrún (Gógó) og Eggert giftu sig. Þau áttu strax svo fallegt og ástríkt samband og sameiginleg áhugamál.
Það að ferðast bæði innlands og til sólarlanda. Þau voru í húsbílafélaginu Flakkaranum og fóru með víða um land. Eggert starfaði frá unga aldri við sjómennsku, þar til hann veiktist. Þau fluttu úr fallega húsinu sínu í Fossvogi til Siglufjarðar, keyptu þar hús í miðbænum, notuðu það fyrst sem sumarhús en síðan til búsetu.
Eggert hóf fljótlega störf hjá Siglufjarðarbæ. Hann var alltaf fús að taka að sér viðbótarstörf, keyra skólabörnin, hjálpa til á skíðasvæðinu á veturna og útihátíðirnar á sumrin. Okkur hjónum fannst hann oft á tíðum ofgera sér. Það var mjög gaman þegar þau komu suður til okkar á húsbílnum sínum og höfðum við margar skemmtilegar stundir í Traðarlandinu.
Eggert var alltaf svo hress og kátur þrátt fyrir að hann væri orðinn fárveikur. Þegar við töluðum við hann var alltaf sama svarið að hann hefði það svo gott. Við Þórir munum sakna hans og biðjum Guð að blessa minningu hans. Okkar innilegustu samúðarkveðjur til Sólrúnar og fjölskyldu hans.
Helga og Þórir.
----------------------------------------------------
Eggert var lengi bifreiðastjóri egin bifreiðar á Siglufirði. Hann var einn af þeim sem vann frá upphafi til enda, við gerð Srákaganga við Siglufjörð.
Eggert var síðust starfsáin sín hjá Siglufjarðarkaupstað, við öll störf sem féllu undir vinnu frá Áhaldahús bæjarins. Hann lauk þar störfum vegna aldurs.
Eggert var góður drengur, hjálpsamur og greiðvikinn.
Steingrímur
Eggert Ólafsson