Guðmundur Guðmundsson

Guðmundur S.Th. Guðmundsson skíðakóngur

Guðmundur Guðmundsson, síldar- og fiskmatsmaður, fæddist á Siglufirði 1. maí 1920.

Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 9. janúar 2007. 

Foreldrar hans voru Guðmundur Friðrik Guðmundsson, f. á Siglufirði. 6.10. 1899, d. 30.1. 1974, og Kristín Árnadóttir, f. á Sörlastöðum í Seyðisfirði 1.6. 1893, d. 31.10. 1955.

Alsystkini Guðmundar voru: 

a) Þorbjörg Guðmundsdóttir, f. 4.1. 1917, d. 6.7. 1993, 

b) Ingólfur Guðmundsson, f. 15.8. 1923, d. 12.5. 1999, 

c) Kristín Guðmundsdóttir, f. 20.9. 1925, d. 2.3. 1998, 

d) Friðrik Guðmundsson, f. 3.10. 1928, d. 20.9. 1973, 

e) stúlka, f. 28.4. 1932, lést sama dag, og 

f) Steingrímur Guðmundsson, f. 19.5. 1935, d. 31.7. 2004. 

Systir Guðmundar sammæðra var

Hulda, f. 14.11. 1911, d. 6.3. 1930, og 

systir hans samfeðra er

Guðrún Arnórs Guðmundsdóttir, f. 9.7. 1933.

Guðmundur Guðmundsson

var þríkvæntur: 

k.1) Hanna Stefánsdóttir, f. 2.8. 1920.

Börn þeirra eru:

k.2) Svala Gunnarsdóttir, f. 11.5. 1935,

börn þeirra eru:

Eftirlifandi maki er

k.3 Edda Guðbjörg Sveinsdóttir, f. 14.3. 1950. 

Afabörnin eru 16, langafabörnin 14 og 1 langalangafabarn.

Guðmundur ólst upp á Siglufirði (Aðalgata 23 (Grundaröta ?)) fram á unglingsár. Skíðaíþróttin heillaði hann ungan þar sem hann gerðist fjölhæfur afreksmaður, fyrst í göngu og skíðastökki og síðar einnig í alpagreinum. Guðmundur varð Íslandsmeistari í 15–18 km göngu, stökki, svigi og norrænni tvíkeppni og hlaut sæmdarheitið Skíðakóngur Íslands fjórum sinnum. 

Hann ferðaðist víða um land og tók þátt í skíðakeppnum, stundaði skíðakennslu og barðist fyrir bættri aðstöðu skíðamanna. Einnig keppti hann í bruni, svigi og alpatvíkeppni fyrir hönd Íslands á fyrstu Ólympíuleikunum eftir stríð í St. Moritz 1948. Guðmundur stundaði ýmis störf. Hann var verkamaður, bóndi, og leigubílstjóri á Akureyri og í Keflavík. 

Á 7. áratugnum lærði hann síldar- og fiskimat og starfaði við það víða um land en þó lengst á Höfn í Hornafirði þar sem hann lauk starfsævi sinni. 

==============================

Kveðja frá Skíðasambandi Íslands:

Fallinn er nú frá Skíðakóngurinn Guðmundur Guðmundsson en hann var um árabil fremsti skíðagöngumaður Íslendinga og varð að auki Íslandsmeistari í skíðastökki og svigi. Hann hlaut titilinn Skíðakóngur Íslands með sigri í Norrænni tvíkeppni á Skíðalandsmóti alls fjórum sinnum og fékk þannig nafnbótina Guðmundur kóngur. 

Guðmundur var á meðal þátttakenda á Vetrar-Ólympíuleikum í St.Moritz 1948 en það var í fyrsta sinn sem Íslendingar sendu keppendur til vetrarleika. Skíðasamband Íslands er þakklátt fyrir störf og afrek Guðmundar í þágu skíðaíþrótta og sendir fjölskyldu hans samúðarkveðjur.

Skíðasambands Íslands. 

------------------------------------------------

Vikan= http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=300211&pageId=4527158&lang=is&q=Gu%F0mundur%20Gu%F0mundsson%20sk%ED%F0ak%F3ngur%20sk%ED%F0ak%F3ngur

http://timarit.is/files/15297958.pdf#navpanes=1&view=FitH 

Guðmundur Guðmundsson Ljósmyndari ókunnur

Vikan 1946

Vikan 1944

Vikan 1944

Vikan 1944