Eggert Bergsson

Eggert Bergsson

Eggert Bergsson fæddist á Unastöðum í Kolbeinsdal í Skagafirði 28. nóvember 1929.

Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 29. maí 2013.

Foreldrar Eggerts voru 

Bergur Magnússon, bóndi á Unastöðum, f. 13.10. 1896, d. 13.4. 1987, og 

Ingibjörg Kristín Sigfúsdóttir húsfreyja, f. 14.12. 1892, d. 19.10. 1960. 

Eggert átti þrjár systur, eru: 

1) Guðrún Berdsdóttir, f. 19.2. 1922, d. 26.2. 1996, 

2) Margréti Bergsdóttir, f. 17.8. 1924, d. 2.11. 2007, og 

3) Steinunni Bergsdóttir, f. 8.7. 1932.

Eggert kvæntist Ingunn Jónsdóttir hinn 3. júlí 1965.

Foreldrar hennar voru

Jón Gíslason, bóndi á Skálafelli í Suðursveit í Austur-Skaftafellssýslu, og

Pálína Gísladóttir húsfreyja. 

Fóstursonur Eggerts og sonur Ingunnar var

Jón Gíslason, f. 25.3. 1963, d. 1.1. 2008.

Önnur börn Eggerts og Ingunnar eru:

1) Bergdís Ingibjörg Eggertsdóttir, f. 18.3. 1965,

Maki Grettir Sigurðarsoni, þeirra

börn eru

2) Pálína Sigurrós Eggertsdóttir, f. 12.2. 1969,

maki Nikulás Kristinn Jónsson,

þeirra börn eru

3) Sonja Eggertsdóttir, f. 7.12. 1972,

dætur hennar eru

4) Hlynur Eggertsson, f. 20.11. 1973,

hans börn eru

Eggert fæddist á Unastöðum í Kolbeinsdal í Skagafirði og ólst upp í Skagafirðinum. Árið 1948 fluttist hann ásamt fjölskyldu sinni til Siglufjarðar og svo til Reykjavíkur árið 1951. Hann nam húsasmíði og lauk prófi frá Meistaraskóla húsasmiða árið 1965.

Eggert starfaði alla tíð við smíðar, lengst af hjá ÍAV víðsvegar um landið.

Frá árinu 1972 rak hann sitt eigið byggingafyrirtæki, Berg sf., ásamt félaga sínum. 

Byggingafélagið Berg byggði heimili fyrir marga tugi fjölskyldna á höfuðborgarsvæðinu og vann þar að auki að ýmsum viðgerðum og viðhaldsverkefnum í trésmíði. 

Eggert var snjall bridgespilari og virkur félagsmaður innan Bridgesambandsins. Hann vann til fjölda verðlauna á því sviði

Eggert Bergsson - Ljósmynd: Kristfinnur