Jón  Sigurðsson, Hrímnir

Jón Ólafur Sigurðsson (Jón í Hrímnir)

Jón  Sigurðsson fæddist á Siglufirði 14. ágúst 1918. Hann lést í Reykjavík 4. nóvember 1997. 

Foreldrar hans voru

Sigurður Árnason trésmiður, ættaður frá Tréstöðum í Hörgárdal í Eyjafirði, f. 5. ágúst 1881, d. 17. janúar 1959, og kona hans 

Salbjörg Engilráð Jónsdóttir, ættuð frá Lundi í Fljótum í Skagafirði, f. 28. apríl 1878, d. 2. mars 1954. Jón var einkabarn þeirra.

Uppeldissystir Jóns var Ólöf Steinþórsdóttir, d. 28. júlí 1984. Þau voru systrabörn.

Jón kvæntist

Unnur Helga Möller frá Siglufirði, f. 10. desember 1919, og voru þau búsett þar. 

Þau eignuðust fjögur börn. 

Þau eru: 

1) Björgvin Sigurður Jónsson, f. 9. febrúar 1942, búsettur á Siglufirði.

Eiginkona hans er Halldóra Ragna Pétursdóttir

Börn Björgvins og Halldóru eru: 

2) Steinunn Kristjana Jónsdóttir, f. 22. janúar 1943, búsett á Siglufirði.

Eiginmaður hennar er Freyr Sigurðsson

Börn þeirra eru:

3) Brynja Jónsdóttir, f. 18. ágúst 1944, búsett á Akranesi.

Eiginmaður hennar er Hallgrímur Jónsson

Börn þeirra eru

4) Salbjörg Engilráð Jónsdóttir, f. 28. júní 1947, búsett í Grindavík.

Eiginmaður hennar er Sigurður Vilmundsson

Börn þeirra eru

Jón og Unnur slitu samvistum.

Eftirlifandi kona Jóns er 

Valdís Ármannsdóttir, f. 6. mars 1930 á Hofi á Höfðaströnd, hún fluttist ung til Siglufjarðar. Valdís er starfsmaður á Hrafnistu í Reykjavík.

Þau eignuðust tvo syni.

Langafabörn Jóns eru orðin fimmtán.

Jón Sigurðsson starfaði fyrst sem verkamaður hjá Síldarverksmiðjum ríkisins en hóf ungur störf sem verkstjóri hjá Friðrik Guðjónsson í Hrímni hf. við fiskverkun og síldarfrystingu. 

Jón festi síðan kaup á Hrímni hf. ásamt fleiri athafnamönnum og var þar starfrækt síldarsöltunarstöð ásamt síldarfrystingu öll síldarárin. Jón var síldarmatsmaður í nokkur ár og ferðaðist mikið um landið.

Jón fluttist til Reykjavíkur árið 1969 og hóf sama ár störf sem tjónaskoðunarmaður hjá Sjóvá og starfaði þar til ársins 1989 þegar hann lét af störfum vegna aldurs.

Jón Sigurðsson