13.ágúst 2003
"Hann setti svip á bæinn"
Snorri Stefánsson framkvæmdastjóri, fæddur 6. ágúst 1895, dáinn 23. janúar 1987
Af sérstökum ástæðum, https://sites.google.com/site/skolsig/home/snorri-stefansson
13. ágúst. 2003 -- Lítið er um að vera í bænum okkar, það sem af er degi. Vitað er um nokkra ólánssama tölvunotendur, sem hinn skæði vírus W32/Msblast.A, heimsótti og gerði usla hjá, og hefur Júlíus Hraunberg hjá Rafbæ, hafist handa við að bjarga því sem bjargað verður.
Eins og kunnugt er af fréttum, ræðst vírusinn aðllaga á á WindowsXP stýrikerfi. Ekkert hefur frést, að fyrirtæki eða opinberir aðilar hafi orðið fyrir árásum.
13. ágúst
Viðurkenningar fyrir fallegt umhverfi 2003 hlutu tveir garðar í dag. Garðurinn á Laugarvegi. 35 Og garðurinn Fossvegi.9. Garðarnir eru mjög snyrtilegir og mikil vinna liggur að baki þeim báðum.
Mikill hæðarmismunur er frá götunni í þeim báðum og er leystur á skemmtilegan hátt í báðum görðunum með grjóti og timburveggjum. Mikið úrval er af bæði fjölærum og trjákenndum plöntum og áberandi fallegt gras á báðum stöðum. Viðstaddir voru Bæjarstjórinn Guðmundur Guðlaugsson, Arnar Heimir Jónsson garðyrkjufræðingur, ásamt dómnefnd, svo og verðlaunahafar.
<<<<<<<<<<<<<<<
Verðlaunagarðurinn (hluti hans) við Fossveg 9
13. ágúst 15:14 -- 2003
Línan stokkuð Þessi ungi maður flutti sig út úr "beitningaskúrnum" og út í sólina á meðan hann gekk frá fiskilínu sinni. -
Hann notar "evrópubretti" sem upphengi fyrir línustokkana og virðist una sínum hag vel í blíðunni.
4. ágúst - 2003
"Hann setti svip á bæinn"
Flóvent Jóhannsson, verkstjóri hjá Siglufjarðarkaupstað
Fæddur 17. febrúar 1871 - dáinn 10 júlí 1951 -- Meira um Flóvent
14. ágúst Flutningaprammi, bræðranna frá Reyðará, Hjalta og Stefáns Einarssona. En þeir sjósettu hann í gærkveldi. Þeir eru að undirbúa flutninga á byggingarefni ofl. út á Siglunes, þar sem þeir ætla að fríska upp á gamla bæinn Reyðará. --
Meðal annars fóru þeir með fulllestaðan vörubíl af byggingarefni, ofl. Þeir fóru fleiri en eina ferð með varning.
14 ágúst 09:25 -- 2003 Tvær skútur heimsóttu okkur í gærkveldi og lágu við Ingvarsbryggju, önnur þeirra, Haukur frá Húsavík lá við vesturkantinn í morgun, þar sem þessi hnáta á mynd hér fyrir neðan var um borð að lesa í logninu og sólinni, "Eitthvað verður að gera þegar vindinn skorti", en báðar skúturnar urðu að nota vélarafl til að komast hingað. Hin skútan Nína II., lá við austur kantinn.
14 ágúst 2003
Suðurverk, hamast á fjallinu fyrir ofan norðurbæinn, eftir að hafa farið í stutt "sumarfrí".
Sumir fá hroll, er það fylgist með tækjunum í hlíðinni, og finnst þetta vera hálfgert glæfraverk, en þessir menn kunna greinilega til verka, svo ekkert er að óttast.
14. ágúst 15:25 2003
"Ýsa var það heillin" sagði máltækið. Það var ekki laust við að þeir svifu þessir ungu drengir, Fannar og Siggi sem voru svo ánægðir yfir afla sínum sem þeir sóttu niður á "Ríkisbryggju"
Þessa tvær vænu ýsur sem Siggi heldur á. Þeir voru á leiðinni heim með fenginn. Það var og er algengt að fá ufsa og þorsk jafnvel mjög væna, við bryggjurnar, en þetta er í fyrsta sinn sem ég veit til þess að ýsa hafi fengist, á stöng við "ríkisbryggjurnar".
15. ágúst 2003
"Hann setti svip á bæinn"
Hafliði Guðmundsson kennari. fæddur 14. febrúar 1921, - dáinn 16. maí 1984
Meira um Hafliða (sett hér inn 2018)
15. ágúst. 2003
Síðustu "snjó" kornin.
Snjóblettirnir í fjöllunum okkar hafa aldrei verið færri en nú í sumar, samkvæmt því sem elstu menn muna.
Aðeins þrír blettir fyrir ofan Skollaskálina, og allstaðar horfnir þar fyrir norðan.
16. ágúst 08:50
Harley Davidson. Inni í skemmunni hans Gunna Júll, voru í morgun 14 Harley Davidson gljándi mótorfákar.
Þrettán þeirra komu í bæinn í gærkveldi, ásamt eigendum sínum að sjálfsögðu, til að heimsækja Gunnar Júlíusson Harley Davidson eiganda með fleiru.
Einnig var för þeirra heitið í sjóferð, með björgunarsveitarmönnum, á Sigurvin, en erindi björgunarsveitarmanna var að kanna hugsanlegan lendingarstað í Hvanndalafjörum.
Og fengu Mótorhjóla drengirnir og stúlkur að fljóta með. Myndir á undir tengli
16. ágúst 09:05
Nýtt löndunarlið? hjá Síldarvinnslunni og Þórði Andersen, virðist tekið til starfa, en alls voru 11 nýir starfsmenn mættir til starfa í morgun á löndunarbryggjuna. (Eða eru þetta starfsmenn hafnarinnar?)
Þeir voru dreifðir vítt og breitt um svæðið. -- Þessir nýju starfsmenn, virðast hættir að bíta gras, sennilega orðnir vel mettir af því að éta runnana og blómin hans Arnars Heimis garðyrkjufræðings bæjarins.
Þessir starfsmenn (?) eru svo réttháir að engin lög ná yfir þá, það má ekki reka þá, það má ekki skjóta þá, ekki heldur skera, þeir eru af hinni vammlausu "Fljótaætt" - og talið er að sumir eigi ættir að rekja til Brúnastaða.
16. ágúst 2003
Sigurður Jakobsson ÞH 320 973
Var kominn að bryggju við hlið Gissurar í innri höfninni í morgun.
Ekki er mér kunnugt um erindið, en sennilega til geymslu í óákveðinn tíma ?
17. ágúst 2003
"Hann setti svip á bæinn"
Guðmundur Hallgrímur Lúther Hannesson bæjarfógeti.
Fæddur17 mars 1881 - dáinn 14. september 1970
Guðmundur Hannesson var mjög aktífur varðandi bæjarmál Siglufjarðar ofl., og með því að fara í leitarvélin hér efst á síðunni til hægri má finna frásagnir af framgöngu hans. (sett hér inn 2018)
17. ágúst 12:40 - 2003
Harley Davidson hópurinn yfirgaf bæinn klukkan 12:40 í dag, eftir vel heppnaða helgi í boði Gunna Júll.
Myndasyrpa hér (sama og frá tengli hér ofar)