Lífið 18.-24. desember 2005

Fréttavefurinn Lífið á Sigló

18. til 24. desember 2005

Sunnudagur 18. desember 2005 --

Ein gömul: Í þvottahúsi Sjúkrahússins á Siglufirði:

Ásdís Ásgeirsdóttir - Guðborg Franklínsdóttur - Sigurhelga Stefánsdóttir og Guðný Ósk Friðriksdóttir

(tekið á myndavél Gyðnýjar)

Sunnudagur 18. desember 2005 Þessi mynd var tekin í gær um klukkan 14:00 en þá var frostið tæplega -3 °C og snjókoman að minnka, en nokkur logndrífa hafði verið frá því snemma um morguninn. Greinar jólatrésins obbalítið farnar að svigna undan snjónum, sem þó hvarf seinni partinn og um klukkan 18:00, var hitinn orðinn tæplega 8 °C

Sunnudagur 18. desember 2005 Sameiningarmál -- Nú er komin skýring á því hversvegna engin kynning hefur verið eða skýring á utankjörstaðar atkvæðagreiðslu sem hefur verið auglýst án frekari upplýsinga vegna sameiningarmála Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Nánari upplýsingar eru nú komnar á vef Siglufjarðarkaupstaðar: HÉR

Mánudagur 19. desember 2005

Ein gömul: Hús við Hvanneyrarbraut 63b flutt á brott og gert að sumarbústað í Skagafirði, árið 1977

Mánudagur 19. desember 2005 Vorboðakórinn, kór aldraðra söng í gærdag fyrir sjúklinga á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar. Hrönn Einarsdóttir var þar og tók þessa mynd og sendi okkur.






Mánudagur 19. desember 2005

Úthlutun byggðarkvóta á Siglufirði

Frétt/grein um skiptingu byggðakóda og fleira á síðu Þormóðs Ramma Sæberg hf. http://www.rammi.is/

Þriðjudagur 20. desember 2005 JÓLAKVEÐJURNAR eru neðst á þessari síðu.

Þriðjudagur 20. desember 2005 -- "Úti að aka" hefur einhver verið sem vonandi hefur vaknað við það að lenda á þessum ljósastur við Langeyrarveg, en svona leit staurinn út þegar ég kom að þessu svæði í morgun

Þriðjudagur 20. desember 2005

Aðsent:

Úthlutunarreglur byggðakvóta – viðbrögð vegna yfirlýsingar Þormóðs ramma – Sæbergs. -

Á heimasíðu Þormóðs ramma – Sæbergs má sjá yfirlýsingu vegna reglna um úthlutun byggðakvóta á Siglufirði fiskveiðiárið 2005-2006.

Bæjaryfirvöld harma niðurstöðu þeirrar yfirlýsingar þar sem beinlínis er gefið í skyn að................... lesa meira HÉR

Þriðjudagur 20. desember 2005

Ytra húsið fært í upprunalegt horf.

Ytra húsið áhugamannafélag, stendur nú fyrir umfangsmikilli lagfæringu á húseign sinni- og er meiningin að koma því sem næst í upprunalegt útlit. Þrír félagar voru að vinna við að endurnýja meðal annars fótstykkið að norðanveru í morgun er mig bar að garði.

En það voru þeir Örlygur Kristfinnsson - Sveinn Þorsteinsson og Páll Helgason ---

Formaður og forstjóri félagsins er Hinrik Aðalsteinsson.

Myndir hér fyrir neðan.

Þriðjudagur 20. desember 2005

Síldarvinnslan hf. hefur gert framvirkan samning um kaup á öllum hlutabréfum í Súlunni ehf. Öll fréttin HÉR á síðu Síldarvinnslunnar



Miðvikudagur 21. desember 2005 Ein gömul: Lúðrasveit ?

Ég þekki ekki alla, en bætið við nöfnum og sendið mér.

Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson

Miðvikudagur 21. desember 2005

Jólaljós --

Það er, sýnist mér talsverð aukning jólaljósa á húsum og í görðum bæjarbúa hér á Siglufirði nú, miðað við síðustu árin .

Myndin lengst til vinstri var tekin þegar eigandinn lauk við að tengja hið nýsmíðaða skraut og kveikti á seinni partinn í gær. (smíðað hjá SR-Vélaverkstæði)

En þetta er vel við hæfi tónlistarmannsins Elíasar Þorvaldssonar sem á húsið -

Hinar tvær hér fyrir neðan voru teknar aðeins síðar og skýra sig sjálfar. -

Miðvikudagur 21. desember 2005

HELLAN er komin út, stútfull af fjölbreyttu efni (desemberblaðið)




Miðvikudagur 21. desember 2005 "Jólahús" Hvanneyrarbraut 49

>>>>>>>>>>>>

Fimmtudagur 22. desember 2005 Ein gömul: Svona flóð eins og sést á þessari mynd frá 1934 gæti komið á næsta ári eða einhvern tíma næstu árin ! Það veit raunar enginn. Ljósmyndarinn (ókunnur) stendur á Aðalgötunni, örugglega í bússum, hann horfir norður eftir Lækjargötunni. Sjö hús sem þarna sjást, hafa horfið; brunnið, flutt eða verið rifin og eitt til viðbótar mikið breytt miðað við daginn í dag, það er húsið lengst til vinstri á myndinni, þar sem nú er Siglósport. Það er ljósastaur sem sést í til hægri, þar austur af er Nýja Bíó, (sést ekki) Húsið þar fyrir norðan var flutt að Suðurgötu 32 þar sem það er nú, talsvert breytt.

Aðsend viðbót:

Í miklu óveðri 27. október 1934 varð mikið brim og sjávarflóð meðfram öllu Norðurlandi og olli miklu tjóni. Til dæmis rak flest eða öll skip Ólafsfirðinga upp í fjöru. Mesta tjónið varð á Siglufirði og flæddi nær yfir alla eyrina og fóru menn róandi um bæinn.

Á Lækjargötunni varð sjórinn mittisdjúpur, í sumum húsum flutu rúmstæði upp og fólk varð að flýja heimili sín í dauðans ofboði. Sjórótið braut bryggjur og söltunarpalla á austanverðri eyrinni. Einnig varð mikil eyðilegging á Siglunesi þar sem bryggja sópaðist burtu, bátar brotnuðu og verulega gekk á Mjóddina svonefndu. Þegar veður og flóð slotaði gáfu 68 tjónþolar sig fram. Eftir þessa atburði var brimvarnargarður byggður á norðanverðri eyrinni. --- (Úrdráttur (að mestu) úr frásögn í Siglfirskum annál eftir Þ. Ragnar Jónasson þar sem vitnað er í fréttir úr Morgunblaðinu, Einherja og Siglfirðingi).

Fréttaritari fortíðar

Ljósmyndari ókunnur

Fimmtudagur 22. desember 2005 Íbúar Siglufjarðar voru 1. desember samtals 1.352 samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Íbúum bæjarins fækkaði um 34 miðað við 1. desember 2004 en þá voru þeir 1,386.

Sé litið á tölur Ólafsfjaðrar kemur í ljós að íbúum þar hefur sömuleiðis fækkað. 1. desember voru íbúar í Ólafsfirði 946 , en fyrir ári síðan voru íbúar bæjarins 980. Þar fækkaði því um 34 á árinu. --- Eins og kunnugt er, verður kosið um sameiningu þessara sveitarfélaga í janúar á næsta ári. Verði sameining samþykkt verða íbúar hins nýja sveitarfélags 2,298.


Fimmtudagur 22. desember 2005

Slökkviliðið kvatt að Hvanneyrarbraut 31, efri hæð kl 16,10 í dag --

Þeir brugðust fljótt við eins og venjulega, en sem betur fór hafði eldur verið slökktur um þann mund sem slökkviliðið kom, en kviknað hafði út frá logandi kerti.

Ekki urðu teljandi skemmdir, nema út frá reyk og sóti, sem er þó nógu slæmt svona rétt fyrir jólin.

Fimmtudagur 22. desember 2005 - Notaleg Jólastund: söngur - kaffi - konfekt: Hlöðver og Renata, bjóða ykkur á notalega jólastund á Þorláksmessu Í Skálarhlíð kl. 15:30 -- Tónlistarskólanum kl 17:00 og kl. 20:00 þar mun Hlöðver syngja nokkur létt lög við undirleik Renötu og árita nýja diskinn sinn: Malarastúlkan fagra.

Diskurinn verður til sölu á staðnum.

Föstudagur 23. desember 2005 Miðbærinn okkar klukkan 14:30 í gær

Föstudagur 23. desember 2005

Ein gömul: Ekkert veit ég um börnin tvö, - en ansi finnst mér líklegt að húsin sem þarna eru í baksýn séu "Ytra húsið" og þar norður af, gamla Póst og Símstöðvarhúsið sitthvoru megin við Aðalgötu.

Ef einhver er á annarri skoðun þá sendir hann mér vonandi línu.

Ókunnur ljósmyndari ----

Ný athugasemd: Þetta er EKKI "Yrta hús" né pósthús - mynd því til staðfestingar kemur á morgun.


Föstudagur 23. desember 2005

Síðasta Bingóið hjá eldri borgurum á árinu var í gærdag -- Allir helstu garpar eldri kynslóðar bingólistarinnar voru þar mættir og kella mín Guðný Ósk þar á meðal. ---

Hún tók með sér myndavélina,

Árangurinn kemur í ljós ef þú smellir HÉR

Þarna eru Berta Jóhannsdóttir, man ekki, Guðbjörg Friðriksddóttir og Brynja Stefánsdóttir

Föstudagur 23. desember 2005 Jólaljóð og Ungmannafélagið Glói.

Í dag klukkan 16:00-18:00 ætlar Ungmannafélagið Glói að standa fyrir lestri jólaljóða og söng á veitingastaðnum Pizza 67 við Aðalgötu -- Á staðnum verður samskotabaukur þar sem fólk getur látið fé af hendi rakna til Hjálparstarfs þjóðkirkjunnar. -- Væri ekki upplagt að líta þar inn tylla sér í notalegu umhverfi og róa taugarnar í erli jólaundirbúnings?

Eiga þar notalega stund og styrkja um leið gott málefni.

Föstudagur 23. desember 2005 --- Svona í tilefni dagsins

Föstudagur 23. desember 2005 Þessi "einmanna" ísjaki lónaði utan við Siglufjörð í morgun, svona 1-2 sjómílur norð norð austur af Sauðarnesi.




Laugardagur 24. desember 2005

Á þessari mynd sést "Ytra húsið" og Póst og símahúsið hinum megin við götuna-

Konan með reiðhjólið er óþekkt, svo og ljósmyndarinn

Laugardagur 24. desember 2005 Þorláksmessu dagurinn - Það var talsvert líf á götunum, í verslunum og víðar í gær á "Þorlák" - Mikið bar á "brottfluttum" Siglfirðingum mökum þeirra og börnum, yngra fólkinu sem verið hefur í skóla og einnig var ýmislegt sér til gamans og ánægju gert annað en að kaupa jólagjafir. Sveinn Þorsteins fór í skötuveislu í Allanum og tók þar nokkrar myndir, það var einnig skötuveisla á Bíó Café, en þangað fór ég ekki þar sem ég er frekar fráhverfur skötulykt og bragði -

Í Sparisjóðnum höfði þau ekki "undan að baka" gómsætar tertur og góðgæti sem skolað var niður með kaffi og súkkulaði í lítratali og þangað kom ég auðvitað, raunar tvisvar. Ég heimsótti eldra fólkið í Skálarhlíð þegar Hlöðver og Renata sungu þar og spiluðu. Þá kom ég við hjá Pizza 67 þar sem Tóti var að spila og syngja Jólalög. Hlöðver og Renata komu einnig við í Tónlistarskólanum, og buðu þar upp á bæði eyrna og súkkulaðikonfekt ásamt kaffi handa gestum og gangandi. Stúlli og Kaupmannafélagið héldu uppi fjörinu á Torginu. Myndasyrpan frá deginum er HÉR

Laugardagur 24. desember 2005


Stúlli og Kaupmannafélagið héldu uppi fjörinu á Torgini í gærkveldi.

Stúlli naut við þetta tækifæri dyggrar aðstoðar Árna Bjarnasonar, sem er þarna með honum á myndinni sem ég tók í gærkveldi.

<<<<<< Árni Bjarnason og Sturlaugur Kristjánsson

Laugardagur 24. desember 2005 Lukkuleikur SR-Byggingavörur -- Dregið var til úrslita í lukkuleik þeirra sem versluðu "stórt" hjá SR-Byggingavörur nú síðustu dagana fyrir jólin. Það var Sylvía Halldórsdóttir /Dagnýjar Finnsdóttir sem dró út vinninga að þessu sinni.

Úrslit í lukkuleiknum

1. Verðlaun: 28 tommu UNITED sjónvarp – Sigurjón Pálsson Siglufirði

2. Verðlaun: AEG Ryksuga – Ásgrímur Sigurbjörnsson Sauðárkrókur

3. Verðlaun: Málning frá Hörpusjöfn 2x10L – Guðni Sigtryggsson Siglufirði

4. Verðlaun: Blandari Exido – Róbert Haraldsson Varmahlíð

5. Verðlaun: Jólasveinn útiskraut – Gerður Pálsdóttir Siglufirði

Gummi og Hemmi þakka öllum þeim sem að tóku þátt í þessum skemmtilega leik og einnig öllum viðskiptavinum okkar óskum við gleðilegra jóla.



Laugardagur 24. desember 2005

Jólasveinarnir (KS) voru á fullri ferð í morgun fyrir hádegið við að keyra út öllum jólagjöfunum.

Þeim fylgdi mikill hávaði, hróp, lúðrablástur og trommusláttur, sem eflaust hefur glatt margan krakkann.

Þessi hópur, einn af mörgum veifuðu mér um leið og þeir fóru fram hjá.

Laugardagur 24. desember 2005-- Hvít jól, mátulega hvít að mínu mati eru nú á Aðfangadagsmorgni. --- Talsverð hreyfing var á fólki fyrir hádegið sem enn var að versla, auk bílaumferðar. Myndirnar sem teknar vori í morgun, eru af Jólatrénu á Torginu og Ráðhúsinu á Sigló - Og séð niður Aðalgötuna.



Laugardagur 24. desember 2005

Enn var traffík í verslunum á síðustu mínútum fyrir hádegið í dag, (11:55) bílum lagt, nánast eins og þeir hefðu dottið niður úr skýjunum, og meiri hlutinn auðvitað ólöglega eins og fyrri daginn.

Laugardagur 24. desember 2005 Smá getraun, sem við getum kallað það "jólagetraun" -- Engin verðlaun eru í boði, en þeir sem finna "falinn" jólasvein með myndavél á síðunni hér fyrir ofan; gaman væri að heyra frá ykkur. En smá vísbending. "jólasveinninn" er ég sjálfur með á einni af myndunum, ég er fyrir aftan myndavélina, en ekki í jólasveinabúning Það var í raun ekki tilgangurinn að koma "mér" á framfæri, "tilviljun" réði því.

Það er aðeins þessi síða, myndir hér fyrir ofan, sem um er að ræða.

Svar: á myndinni: Slökkviliðið kvatt að Hvanneyrarbraut 31, efri hæð kl 16,10 í dag

Jólakveðjurnar 2005

Sendum öllum Siglfirðingum nær og fjær innilegar jóla og nýársóskir, bestu þakkir fyrir allt gamalt og gott á liðnum árum, og innilegar þakkir fyrir stuðning og vinsemd s.l. haust.-Inga Guðmundsdóttir og Bjarni R. Harðarson

Stjórn Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni, óskar öllum Siglfirðingum nær og fjær gleðilegs árs með þakklæti fyrir það gamla. Myndin er frá 1963-1964

Kæru vinir og allir Siglfirðingar.

Okkar bestu óskir um GLEÐILEG JÓL. Takk fyrir allar samverustundirnar á síðustu 15 árum sjáumst heil á nýju ári.

Jóla kveðja. Sævör, Einar og ungarnir



Óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. - Gunný Stefánsdóttir og fjölskylda

Sendum okkar bestu jóla og nýársóskir þökkum fyrir allt gamalt og gott. --

Kveðja Sirrý, Þóra Björg og Ellen Sif

Sendum ættingjum og vinum okkar innilegustu jóla og nýárskveðjur frá The Bronx, New York. Guðný Erla Fanndal, Magnús Þórðarson og Magnús Gauti .

(á myndinni er líka Maria Kalogrides á efri hæðinni!)

Kæru Siglfirðingar ! Okkar bestu Jóla & Nýárskveðjur.

Kveðja frá Akureyri. --- Steini Björns, Þóranna, Linda Björk & Guðný Vala

Við sendum öllum Siglfirðingum okkar bestu jóla og nýárskveðju Haraldur Þór og fjölskylda Norge

Allir vinir og vandamenn á Siglufirði svo og annars staðar. Innilegar jóla og nýárskveðjur.

Leó R. Ólason og fjölskylda.

Komdu sæll og blessaður Steingrímur, -- Hvernig hefurðu það? Héðan er allt ljómandi gott að frétta. Við Kym viljum senda okkar besta jólakveðjur til Siglufjarðar og þakka þér sérstaklega fyrir síðastliðin ár. Það er svo gott að geta fylgist með bænum okkar gegnum Lifið á Sigló. Pabbi minn er líka mjög ánægður með vefmyndavélin nú á Sigló! Við sendum þér hér mynd af Vancouver að vetrarlagi og við vonum að hún birtist með á síðunni þinni. Gleðileg jól og farsælt komandi ár!- Kærar kveðjur, Chris og Kym

Sendum mömmu, ömmu og langömmu (Steinunn Rögnvaldsdóttir ) og öðrum ættingjum og Siglfirðingum hugheilar jólakveðju og farsældar á komandi ári. Jólakveðja Geirlaug og fjölskylda p.s mynd langömmubörnin

Sendum öllum ættingjum og vinum hugheilar jólakveðjurfrá Siglufirði.

Líney og Halldór Gestson


Sendum öllum Siglfirðingum, nær og fjær, bestu jóla- og nýárskveðjur. Þökkum allar góðu samverustundirnar á liðnum árum. Guðrún og Skúli Jónasson og litla fjölskyldan þeirra, áður til heimilis á Hólavegi 16, Sigló. meðfylgjandi er mynd af öllum hópnum sem tekin var á ættarmóti í Húnavatnssýslu sumarið 2004

Sérstakar þakkir til Siglfirðinga fyrir fyrir góða kynningu og vinsemd. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Baldvin og Inga

Vinir og vandamenn, nær og fjær.

Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Alma Birgisdóttir

Ég sendi öllum nær og fjær mínar bestu jólakveðjur og þakka stuðninginn á árinu. Lifið heil, Hrönn Einarsdóttir - Steingrímur og Guðný ég óska ykkur gleðilegra jóla og takk fyrir allt.

Kær Jólakveðja til allra Siglfirðinga nær og fjær. -- Silla Gunnars, Addi og Ási Már.

Jólakveðja frá Síldarvinnslunni

Við sendum öllum Siglfirðingum okkar bestu jóla og nýárskveðjur. Það er hvergi betra að vera en á Sigló. -- Takk fyrir okkur. Erla og Þórir, Hlíðarvegi 1.

Byggingafélagið Berg ehf. sendir öllum Siglfirðingum og viðskiptavinum um land alltbestu óskir um gleðileg jól og gæfu á komandi ári, þakkir fyrir árið sem er að líða,

Birgir Guðlaugsson

Kær jólakveðja til allra Siglfirðinga, heima og heiman.Óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Sendi kunnuglega mynd af mér með. Ég með STÓRAN lax, eins og venjulega, í fanginu. -

Kær kv. frá Akureyri - Kristinn Bogi

Sendum öllum Siglfirðingum nær og fjær okkar innilegustu jóla og nýárskveðjur og þökkum öllum ómetanlegan stuðning á erfiðum tímum. Guð blessi ykkur öll - Eyrún Pétursdóttir, Þorsteinn Þormóðsson, Halldóra María Þormóðsdóttir og Pétur Þormóðsson og fjölskyldur.


Vinir og vandamenn, nær og fjær.

Okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Berta og Sveinn

Jólakveðja frá Svíþjóð: Okkar bestu jólakveðjur

Fanney Hauksdóttir og fjölskylda.






Jólakveðja frá Jóni Andrjes og Olís >>>>>

Jólakveðja frá Neskaupstað



<<<<<<<<<<<<<<<<<<

Sendi Siglfirðingum nær og fjær jóla- og nýársóskir með von um að þeir muni eiga gjöfulla og gæfuríka framtíð.

Magnús Þór Jónsson (Maggi mark).



Ég sendi öllum Siglfirðingum mínar bestu jóla og nýarskveðjur.


Megið þið eiga hin gleðilegustu jól og alveg hreint frábært komandi ár. -


Kær kveðja af Njálsgötunni. -

Leó Ingi Leósson (Leó III)

Megið þið Guðný sem og allir Siglfirðingar eiga gleðileg jól og farsælt komandi nýtt ár . - Með kveðju úr Sódómu, Guðmundur Gauti Sveinsson. -www.blog.central.is/gauti --- ps. myndin af mér og Ólafi Ragnari er í sameiginlegu jólakorti sem við félagarnir sendum út um þessi jól.


<<<<<<<

Sendum okkar bestu jóla- og nýárskveðjur heim til Siglufjarðar.


Kærar kveðjur, Hanna og Karl Eskil, Akureyri.


Ég sendi öllum Siglfirðingum mínar bestu jóla og nýársóskir , með þökk fyrir gömlu árin. Meðfylgjandi mynd var tekin er ég fór í gönguferð um Slóvensku Alpana sl. sumar. Kv Magnús Traustason.

og Ljósmyndasafnið.

Við sendum öllum Siglfirðingum nær og fjær og öðrum góðu fólki, okkar bestu jóla og nýárskveðjur. Sérstakar kveðjur og þakkir til þeirra sem gerðu að möguleika:

Veðurstöðina í Bakka og Vefmyndavélina, og ekki síður til allra þeirra sem hafa gert úthald þessarar vefsíðu mögulega með fjárstuðningi og hvatningum. -- Lifið heil, Steingrímur og Guðný