Laugardagur 1. janúar 2005
Ein gömul
"Bakkabyggðin" 1965 (+/-)
Laugardagur 1. janúar 2005
Framhald á myndaseríu frá Söngskemmtun Karlakórs Siglufjarðar og fleiri söngvara, frá því fyrir áramót, 30 desember 2004.
Laugardagur 1. janúar 2005
Sextán Íslendingar, 10 karlar og 6 konur, voru sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við athöfn á Bessastöðum í dag. ----
Þar á meðal var Örlygur Kristfinnsson, safnstjóri, Siglufirði, sem fékk riddarakross, fyrir framlag til uppbyggingar Síldarminjasafnsins.
Til hamingju Örlygur, þessi orða er vissulega mikil og þér verðskulduð.
Þú átt einnig þakklæti frá Siglfirðingum, sem í raun skulda þér mikið.
Á meðfylgjandi mynd er Örlygur að segja Hákon krónprins Noregs og forseta Íslands frá hluta af sögu Siglufjarðar, við söltun hjá Síldarminjasafninu síðastliðið sumar
Laugardagur 1. janúar 2005
Kveikt verður á ÁRAMÓTABRENNUNNI klukkan 17:00 í dag
Kveikt var í áramótabrennunni, nú á "tilsettum tíma"
Það er aðeins var byrjað að velgja hauginn nokkrum mínútum fyrr, en ekki veitti af þar sem snjór og klaki var talsverður utaná bingnum.
Allt gekk að óskum, ef frá er taldir smá vindsveipir með skafrenningi og ofankomu. En það rofaði á til milli- og ég notaði tækifærið í einu rofinu og tók þessa mynd, á slaginu 17:00
Laugardagur 1. janúar 2005 -
KIWANIS BARNABALLIÐ:
Munið eftir því það hefst á morgun klukkan 14:00 í ALLANUM -
Miðaverð kr 300 fyrir 6 ára og eldri.
Sunnudagur 2. janúar 2005
GULLBRÚÐKAUP. Auður Björnsdóttir og Sverrir Sveinsson héldu nú um áramótin upp á gullbrúðkaup sitt hjá börnum sínum suður í Reykjavík.
Ekki þarf að kynna nánar þessi mætu hjón fyrir Siglfirðingum svo lengi hafa þau starfað og unnið að hinum ýmsu félagsmálum á Siglufirði, auk annars.
Til hamingju með daginn og gleðilegt ár.
Sunnudagur 2. janúar 2005
Ein gömul:
Löndunarbið á Siglufirði, loðna 197?
Sunnudagur 2. janúar 2005 -- Hið árlega Barnaball Kiwanis var í dag frá klukkan 14:00 - 16:00
Ég skrapp þangað til að taka nokkrar myndir, sem þú sérð ef þú smellir HÉR
Mánudagur 3, janúar 2005 Ein gömul: >>>>>>>>>>>>>>>>
Þessi mynd er tekin sumarið 1965 þegar verið var að vinna við smíði nýrrar löndunarbryggju SR.
Þarna er Jóhannes Jónsson vélsmiður - Aage Johansen kafari með fleiru
(þarna tilbúinn að koma sér í kafarabúninginn) og Jóhann Ísaksson vélsmiður.
Þriðjudagur 4. janúar 2005
Svona til fróðleiks: Alveg neðst á forsíðum "Lífið á Sigló" og Ljósmyndasafnsins; eru mismunandi teljarar sem gefa ýmsar upplýsingar um heimsóknir á síður mínar, bæði raunteljari viðkomandi síðu og erlendir teljarar nýlega inn komnir, (það sést á dagsetningu þeirra hvenær), sem gefa ýmiskonar forvitnilegt yfirlit um heimsóknir á forsíðurnar, ofl. Samkvæmt raunteljara forsíðanna þá hafa heimsóknir á þær (aðeins forsíðurnar) verið:
213.521 --- Tvöhundruð og þrettán þúsund fimmhundruð tuttugu og einn netverji heimsóttu "Lífið á Sigló" frá 1.jan til 31. des á miðnætti. árið 2004 ---- 75.000 -- Sjötíu og fimm þúsund heimsóttu "Ljósmyndasafnið" frá 6. apríl til 31. desember. Það er frá því að ég sameinaði allar síðurnar á einn stað; www.sksiglo.is - Ath. Þessar tölur voru aðeins tiltækar árið 2005 og fyrr, hvað "Lífið á Sigló" varðar. En eru ekki til staðar hér á þessar endurgerð síðunnar í dag 2019
Ath.: Frá því að þessi síða var endurgerð með sama efni og stærri myndum, þá var settur inn mælir (lokaður) en hefur nú árið 2023 verið opnaður og öllu sýnilegur, sem sjá má neðst á hverri síðu, mælir sem virkar þannig að tölurnar sína hverja heimsókn tölvu á einhverja síðuna, samasem opnum á vefsíðuna í heild, ekki fjölda heimsókna á einstakar síður.
Það er fjölda heimsókna á uppfærða vefinn Lífið á Sigló árin 2003-2006 eftir uppfærslu frá 2019
Þriðjudagur 4. janúar 2005
Ein gömul: Horft yfir suðurhluta Siglufjarðar árið 1963 +/-
Þriðjudagur 4. janúar 2005
Hádegistónleikar í Hafnarborg Hafnarfirði. FRÁ MÖRIKE TIL MOZARTS Ljóð og aríur frá Austurríki.
Miðvikudaginn 5. janúar kl. 12:00 mun Siglfirski tenórinn Hlöðver Sigurðsson syngja á hádegistónleikum Hafnarborgar við undirleik Antoníu Hevesi, en hún er einnig listrænn stjórnandi tónleikaraðarinnar.
Tónleikarnir eru í boði Hafnarborgar og aðgangur er ókeypis. - Ljósmynd frá auglýsingu
Þriðjudagur 4. janúar 2005
Skíðasvæðið í Skarðdal, þar er nú mikill og góður snjór fyrir skíðaunnendur. Lítið sást til mannaferða þar klukkan 14:30 í rökkurbyrjun, þegar þessi mynd var tekin, enda vart við að búast þar sem veðrið sem hamrað hefur á okkur undanfarna daga gekk ekki niður fyrr en rétt fyrir hádegið í daga og virkur dagur í þokkabót.
Eitthvað heyrði ég talað um að "spáin" væri ekki hagstæð fyrir morgundaginn amk. Við skulum vona að þeir komist á skíði sem fyrst sem það vilja, því ekki er að efa að þarna er gott að vera.
Miðvikudagur 5. janúar 2005
Ein gömul:
Mér sýnist þetta vera Sigríður Júlíusdóttir, sem var sigurvegari í sínum flokki á Skarðsmótinu í júnímánuði árið 1965
Miðvikudagur 5. janúar 2005 --- Hvanneyrarkrókur. Þessi mynd var tekin eftir hádegið í gær. --- Hvanneyrarkrókur hefur mikið breyst með árunum, oftast er þarna mikill sandbreiða. Grynningarnar sem hér áður voru, var vettvangur krakka við skeljaleit ofl. austast á svæðinu vestan Öldubrjóts eru löngu horfnar og komin undir athafnasvæði. Þarna á myndinni er sandurinn þakinn miklum þara eftir brimið undanfarna daga og vikur.
Miðvikudagur 5. janúar 2005
Frétt frá síðunni www.siglo.is -- Á fundi bæjarstjórnar þann 29. desember 2004 var eftirfarandi bókun samþykkt samhljóða: “Bæjarstjórn Siglufjarðar leggur til við nefnd félagsmálaráðuneytis um sameiningu sveitarfélaga að kosið verði um sameiningu allra sveitarfélaga í og við Eyjafjörð, þ.e. að eftirfarandi sveitarfélög verði sameinuð í eitt;
Siglufjarðarkaupstaður, Ólafsfjarðarbær, Dalvíkurbyggð, Akureyri, Grýtubakkahreppur, Hörgárbyggð, Grímsey, Arnarneshreppur, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðsstrandarhreppur.
Þátttaka Siglufjarðarkaupstaðar í slíkri sameiningu er algjörlega háð því að tryggð verði betri vegtenging staðarins við Eyjafjörð með Héðinsfjarðargöngum.
Fimmtudagur 6. janúar 2005
Ein gömul:
Frá Sakarðsmótinu 1965
Þórður Þórðarson Hrímni - Sigurður Pálmi Sigurðsson, sem gefur mér hornauga úr 50 metra fjarlægð - Sigurður Sigurðsson læknir (með pípuna) - Tryggvi Sigurbjörnsson rafveitustjóri og ??
Fimmtudagur 6. janúar 2005 -- Ég skrapp eftir hádegið í dag í kaffi til hjónanna á Sauðarnesvita þeim Jóni Trausta Traustasyni og Herdísar Erlendsdóttur, í leiðinni tók ég myndir af hugsanlega, ákjósanlegum stað fyrir GSM sendir, nokkru vestan við Sauðarnesvita þar sem bæði er fyrir hendi húsaskjól, rafmagn og ljósleiðaratenging og ætti því ekki að vera mikill kostnaður því samfara að koma slíkum sendi fyrir. Slíkur sendir sem mundi ná alveg að Strákagöngum að vestaverðu og vestur úr öllu, skriðum og lengra, það færi eftir orku viðkomandi sendis.
Jón Trausti Traustason og Herdís Erlendsdóttir
Fimmtudagur 6. janúar 2005
Aðsent:
Ugla í heimsókn.
Þessi mynd var tekin núna í dag kl 12 á hádegi, á svölunum að Suðurgötu 77 Siglufirði.
Kv. Doddi Björns
Fimmtudagur 6. janúar 2005
Atvinnuskapandi verkefni flutt í bæinn. JE-Vélaverkstæði hefur keypt og látið flytja hingað enn einn plastbátinn, það er skrokkinn "tilbúinn undir tréverk" en þetta er/verður samskonar bátur og "Raggi Gísla SI" en JE-Vélaverkstæði hafa sérhæft sig í að gera við og byggja upp plastbáta.
Hingað til hefur Eimskip séð um þessa flutninga, en þar sem þeir eru hættir að sinna landsbyggðinni sjóleiðina, þá var fenginn sérhannaður bíll til flutningana.
Palli bifreiðarinnar er einfaldlega "sturtað" af og dregin í gegn um Strákagöng, þar sem göngin eru ekki með næga lofthæð svo hægt sé að flytja svona farm á lágum tengivagni, hvað þá í þeirri hæð sem var á farminum þegar hann kom að gangnamunanum vestanverðu. Þetta gekk eins og í sögu, enda greinilega fagmenn á ferð.
Föstudagur 7. janúar 2005
Ein gömul:
Frá Sakarðsmótinu 1965
Hafliði Helgason útibússtjóri Útvegsbanka og Helgi Sveinsson íþróttakennari eru þarna auðþekkjanlegir
Föstudagur 7. janúar 2005
Þrettándabrennan og tilheyrandi flugeldasýning hófst í gærkvöld klukkan 18:00 með skrúðgöngu frá Torginu með "álfa" sem raunar voru ekki nema tveir (?) og trumbuslagarar ásamt óbreyttum áhangendum að brennustæði á Suðurtanga.
Veðrið gat ekki verið betra, logn og úrkomulaust klukkan 18:00 -- en einni mínútu síðar komu flygsur úr lofti, sem smá saman fjölgaði og úr varð þétt slydda um það leiti sem flugeldaskothrinan hófst, svo vart sást til skoteldanna fyrir úrkomunni.
En svona er þetta stundum. Kiwanis sá um athöfnina.
Skíðafélagið um skoteldana - Veðrinu réð náttúran.
Laugardagur 8. janúar 2005
Ein gömul:
Frá Sakarðsmótinu 1965 -
Tímamæling. Stúlkuna þekki ég ekki, en hinir eru Guðmundur Árnason og Bragi Magnússon
Laugardagur 8. janúar 2005
Morgunblaðið á netinu í dag:
Kristján Möller fagnar orðum Davíðs um spítala "fyrir Símann" ---
Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar, segist fagnar þeim orðum Davíðs Oddsonar á fundi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í dag, að til greina kæmi að byggja sjúkrahús fyrir féð sem fæst fyrir sölu Símans.
Bendir hann á að hann (KLM) hafi ásamt fleiri þingmönnum Samfylkingarinnar lagt fram frumvarp um byggingu nýs sjúkrahúss, þar sem fram kom sú hugmynd að fé sem fengist fyrir sölu ríkiseigna, m.a. Símans yrði notað til að fjármagna byggingu spítalans. ----
Þetta er mjög gott mál - en vonandi verður það ekki notað til að afsaka enn einu sinni, að hætt verði við Héðinsfjarðargöng. SK