Sunnudagur 6. nóvember 2005 Norðurlandsmótinu í Boccia var slitið í gærkveldi eftir kvöldverð, skemmtiatriðum og verðlaunaafhendingu á Bíó Café. Kona mín Guðný Ósk Friðriksdóttir, sem félagi og keppandi fyrir Snerpu bauð mér með sér. Ég aftur á móti skildi myndavélina mína eftir heima (aldrei þessu vant) og ákvað að slappa af yfir góðum mat og tilheyrandi, eftir "skothríð mína" fyrri hluta dagsins á mótinu sjálfu. En kona mín tók nokkrar myndir á sína vél. Myndirnar HÉR
Sunnudagur 6. nóvember 2005 --- Skíðasvæðið í Skarðdal verður opnað klukkan 10:00 og verður opið til klukkan 15:00
Mánudagur 7. nóvember 2005
Ein gömul: "Sigló Síld" í smíðum: 1962
Jón Sigurðsson - Baldur Steingrímsson - Baldur Ólafsson og Örn Herbertsson
Mánudagur 7. nóvember 2005 Frá Bingó Kvenfélags Sjúkrahússins í gær á Allanum - Á myndinni er Madda að raða vinningunum og sjá til þess að allt sé í röð og reglu.
Fleiri myndir HÉR Ljósmyndir: Guðný Ósk Friðriksdóttir
Mánudagur 7. nóvember 2005 Bátarnir hafa verið að fiska mjög vel þegar gefið hefur á sjó svona 200-400 kg. á bala nú síðustu vikur, aðallega ýsa og einnig hefur aflast all þokkalega á handfæri, þá aðallega vænn þorskur.
Það er orðið nokkuð algegnt nú orðið að konur taki þátt í sjómennskunni og frágangi á afla og veiðarfærum, Þarna eru tvær að ganga frá línubölunum sem voru að koma frá borði. Nokkrar myndir frá höfninni teknar í gær, til viðbótar >
Mánudagur 7. nóvember 2005
TIL SÖLU er þessi notaða myndavél, sem kostaði 46 þúsund ný, selst nú með 50-60 % afföllum. Upplýsingar í síma 848-4143
(Sveinn Þorsteinsson.)
VÉLIN HEFUR VERIÐ SELD
Seldist sama dag og aulýsingin brtist
Þriðjudagur 8. nóvember 2005 Ein gömul: Skíðalyftan í Hólsdal vígð 1977 -
Myndin sýnir fyrsta formlega notandann og hluta hópsins sem fylgdist með.
Þriðjudagur 8. nóvember 2005 Einhverjir kunna að hafa gaman af að skoða myndir frá árinu 1967 á blogginu hans Leós. Ef svo er þá smelltu HÉR Því miður, ekki aðgengkleg í dag
Þriðjudagur 8. nóvember 2005 - Það er ekki á hverjum degi sem fram fer steypuvinna á Siglufirði í nóvember, og enn sjaldnar við íbúðarhús. Meðfylgjandi myndir voru teknar í hádeginu af þegar verið var að steypa þak/gólfplötu á húsið sem Sveinn Ástvaldsson er að byggja fyrir fjölskyldu sína, hús sem er með steyptum kjallara en einingahús sem verður þar ofan á.
Miðvikudagur 9. nóvember 2005 Tango Foxtrod Five Sierra Lima November eða TF5SLN er kallmerki Sigga Ben (Sigurður Benediktsson) sem hefur um nokkurt skeið stundað Radio Amatör iðju af fullum krafti. Hann er í Félagi Íslenskra fjarskiptamatöra.
Þarna á myndinni er hann við búnað sinn heima hjá sér við Suðurg0ötu 91. Siggi er rafvélavirki að mennt, þó svo að hann hafi ekki stundað þá atvinnu lengi. Áhugamál hans eru víða á sviði fjarskipta og rafeindafræðinnar -og er marga fróðleiksmolana hægt að nálgast frá honum á því sviði.
Miðvikudagur 9. nóvember 2005
Ein gömul:
Guðbrandur Gústafsson - Friðrik Hannesson og Leifur Halldórsson. -
Þarna um borð í Sigluvík vegna viðgerða á vegum JE-Vélaverkstæði, 1977
Miðvikudagur 9. nóvember 2005
Þessi mynd var tekin í birtingunni í morgun, myndina ætti vart að þarfnast frekari skýringa, en til hægri sést í "ósa"
Hólsárinnar, eða öllu heldur sjóinn sem flæðir á móti straumnum í Hólsánni, en aðfall var.
Miðvikudagur 9. nóvember 2005
Þessi fríði hópur eru 5. bekkur Grunnskólans, ásamt félögum í Tennis og Badminton félagi Siglufjarðar.
En það eru Jóhannes Egilsson og María Jóhannsdóttir.
Þegar þessi mynd var tekin rétt fyrir hádegið í dag bættist við í hóp þann sem María þjálfar alls 23 10 ára krakkar, sem fengu við þetta tækifæri tennisapaða að gjöf frá félaginu ásamt ókeypis þjálfun.
Alls er nú hópurinn sem María þjálfar kominn yfir 80 krakkar
Fimmtudagur 10. nóvember 2005
Ein gömul:
Dr.Paul verksmiðja SR á fullu. -
Hvort þar var verið að bræða loðnu eða fiskúrgang, breytir ekki miklu, en það rýkur vel, bæði svörtu og hvítu hjá SR þennan logndag árið 1977
Jón Salmannsson og Egill Rögnvaldsson
Fimmtudagur 10. nóvember 2005 -- SímVerk.is ehf. heitir nýstofnað fyrirtæki þeirra félaga Jóns Salmannssonar og Egils Rögnvaldssonar. En eins og allir vita þá hætti Síminn hf að veita sömu þjónustu og hér hefur verið veitt í marga áratugi og lagði niður þjónustustöð sína á Siglufirði og sagði jafnframt viðkomandi starfsmönnum sínum upp störfum. Það var um tvennt að velja fyrir þessa starfsmenn, það er að flytja úr bænum, eða treysta á samkomulag um þjónustu við Símann hf, sem verktakar. Sem betur fer fyrir okkur Siglfirðinga, þá völdu þeir seinni kostinn. En nú virkar kerfið þannig, að vanti Siglfirðinga þjónustu tengda síma sínum, grun um kerfisbilun Símans td. Þá verðurðu að hringja í bilanaþjónustu Símans og vona að þú komist fljótt að eftir að hafa fengið samband við talvél. Síðan hefur bilanaþjónusta Símans samband við SímVerk. -- Þar fyrir utan sinna þeir félagar Jón og Egill á eigin vegum allri almennri símaþjónustu, tölvuviðgerðir og uppsetningu tölvubúnaðar og fleira eins og venjulegir iðnaðarmenn með útseldri vinnu. Þá munu þeir veita almennar upplýsingar, ráðleggingar um val á tölvu og samtengdum búnaði og útvegun búnaðar,- og verða væntanlega með einhver sýnishorn á verkstæði sínu við Túngötu 11 - Enn er verið að vinna við að innrétta húsnæði þeirra. - Ég hitti þá félaga í morgun og tók þessa mynd af þeim; Jón 893-3115 nonnisalla@simnet.is til vinstri og Egill 893-3116 egillrogn@simnet.is til hægri.
Fimmtudagur 10. nóvember 2005
Aðsent: Sjóferð 10. bekkjar með skólaskipinu Dröfn RE35 -- Skólaskipið Dröfn kom hér til Siglufjarðar í gær og bauð nemendum úr 10. bekk með í sjóferð hér út á fjörðinn.
Lagt var frá bryggju snemma morguns með 15 nemendur og tvo kennara. -- Í ferðinni fengu nemendur að kynnast sjávarútveginum og vinnunni um borð í fiskiskipum. Líffræðingur var um borð og fræddi nemendur um hinar ýmsu sjávarlífverur.
Skipstjórinn sýndi nemendum hin ýmsu stjórntæki skipsins. Siglt var út á fjörðinn og athugað um krabbagildru sem skipverjar höfðu lagt kvöldið áður. Þá var trollinu kastað. Þegar búið var að toga þá fengu nemendur að gera að aflanum undir handleiðslu áhafnarinnar og líffræðingsins.
Nemendur áttu afar skemmtilegan tíma og allir fórum heim með fisk í soðið. --
Myndir Hér Ljósmyndir: Erla Gunnlaugsdóttir
Föstudagur 11. nóvember 2005
Ein gömul: Fljótt á litið gæti verið erfitt fyrir suma að átta sig á hvar þessi mynd er tekin, en myndin var tekin er verið var að flytja með þyrilvængju, steinsteypu vegna undirstaða fyrir möstur í skíðalyftu, frá Hólssvæðinu þar sem steypan var hrærð og upp í fjall árið 1976
Laugardagur 12. nóvember 2005 Í gær klukkan 16:35 var báturinn Gísli KÓ 10 1909 sjósettur eftir gagngerar breytingar hjá JE-Vélaverkstæði. Sett var í bátinn ný vél, innréttingar endurnújaðar, auk allur rafbúnaður og fleira.
Báturinn hefur stundað héðan línuveiðar frá í vor og aflað frábærlega vel.
ugardagur 12. nóvember 2005
Kleinur og aftur kleinur -
Þeir voru enn einu sinni að selja kleinur skólakrakkarnir (10. bekkur ? -
Ég gleymdi einnig að spyrja hvað þeir heita) - Þeir heimsóttu okkur í gærkveldi.
En kona mín keypti af þeim tvo poka, eins og síðast er volgar kleinur voru í boði