7. ágúst. 2003
"Hann setti svip á bæinn"
Guðjón H Kristjánsson vélstjóri.
Hann átti lengi heima í Ásgeirsbragganum (nálagt þeim stað sem norðurendi Túngötu er nú).
Guðjón var lengst af á sjónum en vann þó að jafnaði, öll venjuleg störf er til féllu í landi.
Þetta var dugnaðarforkur, og nokkuð áberandi í góðra vina hópi. Guðjón Kristjánssonar fæddur 22. mars 1901 Mig minnir að hann hafi flutt héðan frá Siglufirði suður til Vestmannaeyja, þegar síldin hvarf ásamt atvinnu.
7. ágúst. 2003 - Að gefnu tilefni.
Ég hefi fengið nokkrar ábendingar um "Hann setti svip á bæinn", um hvaða persónur ég ætti að velja osfv. -- En aðferð mín er einföld, hvað valið viðkemur. Ég fletti skránni yfir elstu filmurnar í safni mínu (Kristfinns), það er yfir gler plöturnar, og þegar kemur að einhverri persónu sem ég man eftir, og er mér er minnisstæð og ég veit að vakti athygli. Ekki endilega að viðkomandi hafi skilið eitthvað eftir sig, "annað en minninguna". S.K.
7. ágúst. 2003 - Enn eru rollu tu.... að ónáða íbúana í norðurbænum, sumir sváfu lítið fyrir stöðugu jarmi þeirra í nótt. Þessar rollur var einn af starfsmönnum bæjarins að reka, aðeins norðar í morgun, en þær voru komnar aftur á svipaðar slóðir nokkru seinna.
VIÐBÓT: kl. 14:00 - 14:45 Hraðferð um bæjarlandið, og talning með sjónauka úr og við bílinn á akvegi: 36 rollur og lömb voru ofan og neðan Strandarvegar, utan byggðar, 4 í Hvanneyrarhlíð, norðan árinnar, 6 fyrir sunnan ána. 3 fyrir ofan Steinaflatir, 4 á veginum framan við hlið Skóræktarinnar, sem var opið, ég fór ekki inn til að leita, en ég lokaði hliðinu, og 8 stykki sá ég ofar í Skarðsdalnum. Þetta eru 61 rollur og lömb, sem ég sá frá veginum, eins og áður segir, sennilega eru þær fleiri.
Er ekki orðið tímabært að gera eitthvað í málinu, smala og láta Fljótabændur að leysa gripina út?
7. ágúst 09:30 2003 - Þessi mynd sýnir óvenjulega fjallasýn, ekki óvenjulega vegna sólskins, blíðu og fegurðar fjallahrings okkar umhverfis Siglufjörð, heldur hvað lítill sem enginn snjór er í dölum og skorningum.
En elstu menn muna ekki jafn lítinn snjó í fjöllunum okkar og nú. Snjór, jafnvel jöklar sem verið hafa allan ársins hring undanfarna áratugi, sjást ekki lengur.
7. ágúst. 2003
Aldrei er góð vísa, of oft kveðin, segir máltækið.
En ég var að frétta fyrst í dag, af alveg frábæri ljósmyndasýningu í Alþýðuhúsinu, sem mér er sagt að hafi verið auglýst í "Tunnunni" og búin að vera opin í allt sumar, en það greinilega farið fram hjá mér.
Ég leit þarna inn í dag, og gleymdi mér yfir myndunum, þrátt fyrir skvaldrið í kerlingunum, en þarna stóð yfir á sama tíma og ég var inni, einhver kvenfata markaður.
En myndirnar eru alveg frábærar, og ætti fólk að gera sér ferð til "Gumma" og skoða þær. Ég fór á netið og hélt áfram að skoða, er ég kom heim.
Þetta eru ljósmyndir frá síldarárunum um 1957.
Ljósmyndarinn heitir Haukur Helgason. Heimasíða hans er: http://www.myndverk.is/index.html
(síðan er ekki aðgengileg í dag 2018, því miður)
8. ágúst 2003
"Hann setti svip á bæinn"
Þorsteinn Sveinsson frá Lónkoti, var búsettur á Siglufirði í áratugi, eftir að hann hætti búskap.
Hann vann öll algeng störf, á síldarplönunum, en lengst af sem starfsmaður SR, þar sem hann vann ýmis störf.
Ég þekkti Steina vel og var gaman að spjalla við hann, þó svo að oft hnýtti hann í okkur yngri vinnufélagana, honum þótti við oft vera ærslafullir.
Þorsteinn var fæddur 6.febrúar1906 - Hann lést af slysförum við hafnarvinnu þann 20. apríl 1965
8. ágúst 09:15
Hið árlega Pæjumót Þormóðs Ramma -Sæbergs er haldið nú um helgina. Mótið er fjölmennt að vanda, talsvert fleira fólk virðist mætt nú, en t.d. um síðustu helgi, en þá mættu að talið var um 4000 manns. Fullorðnir koma nú til að fylgja börnum sínum eftir, slappa af og njóta góða veðursins. Ekki veit ég um endanlegan fjölda, en tjaldsvæðin í bænum eru að varla fullsetin, en næg tjaldstæði eru frammi á Hóli, þó þar sé kominn all nokkur fjöldi.
Ef að líkum lætur, miðað við síðasta mót, þá birtir mótsstjórnin fjölda mynda á vef sínum, svo ég geri ekki ráð fyrir að blanda mér í þá vinnu.
8. ágúst 14:20 - 2003
Það skal tekið fram að íþróttamyndir tilheyra ekki minni "deild" - ég er ekki mikill íþróttaáhugamaður, og ekki stundað slíkar myndatökur.
9. ágúst
Hljómsveitin 8Villt lék á Torginu, í gærkveldi við mikinn fögnuð allra Pæjanna og annarra sem mættir voru.
Rigningin, sem rann í stríðum straumum um andlit krakkanna, virtist ekkert draga úr ánægju þeirra.
9. ágúst
Hólm Dýrfjörð, 89 ára skörungur, var mættur á torginu í gærkveldi og skemmti sér greinilega konunglega, og ekki síður við það að hitta kunningjana.
Þarna er meistarinn og með honum; Helgi Magnússon pípulagningameistari.
9. ágúst 11:00
Gott afdrep, en þarna þyrfti að vera borð og bekkir við það, eins og raunar eru víða.
Þetta er uppi á enda "Stóra bola", snjóvarnargarðs í suðurbænum.
Þegar ég sótti staðinn um kl. 11 í morgun, þá þarna nær logn, sól og 20 stiga hiti.
9. ágúst 11:00
Pæjumótið hélt áfram í dag samkvæmt dagskrá.
Myndin sýnir mótssvæðið að Hóli >>>>>>>>>>>>>
9. ágúst 16:00
Útvarpið okkar, "allra" landsmanna, sagði frá rúmlega 21 gráðu hiti á Dalvík á Fiskidaginn, en að aðeins væri 15 stiga hiti á Pæjumóti á Siglufirði
Neikvæð frétt í huga RUV ?- Var það þess vegna sem Siglufjörður var nefndur? --
Mælirinn hjá Sparisjóðnum sýndi á sama tíma 25 °C og mælirinn minn heima í forsælu 27,2 °C
9. ágúst 17:30
Óvenjuleg sjón við sundlaugina, biðröð hefur verið við sundlaugina í dag, þar sem hleypt er inn í grúppum.
Svona var þetta einnig á föstudaginn 8. ágúst.
10. ágúst
"Hann setti svip á bæinn"
Magnús Vagnsson síldarmatsstjóri fæddur 5. nóvember 1890 - d.12. febr. 1951
Bragi Magnússon lögregluþjónn var sonur hans
10. ágúst.
Flugeldasýning, hófst í gærkveldi, um það bil sem skemmtihaldi Pæjumótsins var að ljúka á Torginu.
8Villtar skemmtu og héldu uppi fjörinu að vanda.
Hellingur af myndum frá kvöldinu á tenglunum 7 og 8. Allar upplýsingar um Pæjumótið er
10. ágúst 2003
Sigurvegararnir..... voru krýndir í lok Pæjumótsins, upp úr klukkan 15:00 í dag.
Glæsilegir verðlaunagripir að vanda.
Veður hefur verið einstaklega gott um þessa helgi, og allir ánægðir.
Eins og ég nefndi á fyrsta degi mótsins, þá gerði ég ekki ráð fyrir að blanda mér í myndatökur tengdar mótinu, þar sem ég hélt að, mótstjórnin, gerði slíku aftur skil, jafnmyndarlega og á síðasta ári. En ekkert varð úr því hjá þeim að þessu sinni, svo ég ákvað að slá til - og tók slatta af myndum og setti á netið um 400 ljósmyndir á síðu mína Lífið á Sigló Myndir má finna á tengli hér til hliðar
11. ágúst. 2003
"Hann setti svip á bæinn"
Aðalsteinn Jónatansson fæddur 20 maí 1900 -- dáinn 25. nóvember 1960
Alli ver mjög félagslindur, mikill söngmaður (bassi) og var ma. í karlakórnum Vísir
11. ágúst 09:00
Múlaberg landaði um 20 tonnum og Stálvík landaði 37 tonnum af rækju í morgun.
Skipin voru á sitt hvoru veiðisvæðinu.
11. ágúst 14:00 - 2003
S.R.Vélaverkstæði. Eins og flestum er kunnugt, hér á Siglufirði, þá keyptu starfsmenn verkstæðisins ofl. Vélaverkstæði það sem SR-MJÖL HF átti og rak, fyrr á þessu ári.
Nú hafa þeir bætt um betur og tekið á leigu meirihluta húsnæðisins, þar sem Lager SR var til húsa og keypt mikinn hluta þess, sem inni á lagernum var. Verið er að gera skilrúm á efra lager plássinu, sem undan skildu um þ.b. 30% af öllu lagerplássinu f.v., og á neðri hæð um þ.b. 15 % ----
12 ágúst. 2003
"Hann setti svip á bæinn"
Egill Steingrímsson matsveinn / bakari.
Fæddur 31. september 1906, hann druknaði 10.-11. febrúar 1962 er togarinn Elliði SI 1, fórst
12. ágúst 2003 GRÁNA. Nú er lokið við að mála framhlið hússins.
Litadýrðin, er ekki tilviljun, svona lituð var framhlið á gömlu Gránu / Goos verksmiðjunni. Hinsvegar voru hin táknin. SR30 - INGO og KVELDÚLFUR Ltd. ekki á gamla húsinu, því þessi merki;
SR-30 tilheyrði fyrstu síldarverksmiðju Ríkisins, sem gekk undir þessu nafni, og mun merkið eins og þarna sést þarna, vera fyrsta "Lógó" verksmiðjunnar. INGO, var vörumerki verksmiðjunnar á Ingólfsfirði og Kveldúlfur Ltd. tilheyrði síldarverksmiðju fyrirtækjanna.
En Þær vélar og búnaður, sem inni í nýju Gránu eru, var sótt í leifar þessara verksmiðja, sem fyrir löngu höfðu verið aflagðar, og ekki viðhaldið, eftir að síldin hvarf á þeirra svæði.
11. ágúst 2003
Merkileg tilviljun. Þessar 2 myndir hér fyrir neðan, voru teknar á sama sekúndubrotinu, af tveimur ljósmyndurum, sem hvorugur vissi af hinum.
Annar þeirra var Steingrímur sem var við dyrnar á Ráðhúsinu, en hinn Almar Möller (sem benti mér á og sendi mér sína) stóð uppi á svölunum á Íslandsbanka.
Myndirnar eru frá flugeldasýningu Pæjumótsins þann 9. ágúst sl. kl. 22:49:06 samkvæmt klukku minnar myndavélar. S.K.
12. ágúst 12:58 2003
Landgræðsluvélin Páll Sveinsson kom inn Siglufjörð í hádeginu, í lágflugi, og út fjörðinn til baka.
Ég náði þessari mynd við það tækifæri. >>>>>>>>>>>>