Lífið 17.-21. júlí 2003

Fréttavefurinn Lífið á Sigló 

2003

Óskars Berg Elefsen verkstæðisformaður

17. júlí 08:15 -   SR-Vélaverkstæði hf., er ungt fyrirtæki, nokkurra mánaða gamalt, en er þó með margra áratuga starfsferil, þó það hljóði undarlega í eyrum ókunnra. Verkstæðið var sett á laggirnar 1935 sem viðhaldsdeild hjá Síldarverksmiðjum ríkisins. Síðan, rekið sem sjálfstæð deild innan SR-MJÖL hf.

Verkstæðið var áður þjónustuverkstæði fyrir Síldarverksmiðjurnar en í dag þjónar það almennum markaði.

Skömmu eftir yfirtöku Síldarvinnslunnar á eignum SR-MJÖL HF á þessu ári, keyptu starfsmennirnir ofl. allan rekstur verkstæðisins og héldu nafninu sem verkstæðið var þekkt undir, það er; SR-Vélaverkstæði hf. 

Reksturinn gengur vel undir stjórn Óskars Berg Elefsen og Ólafs Sigurðssonar og næg verkefni eru fyrir hendi, sem aðallega felast í nýsmíði úr ryðfríu efni, en starfsmennirnir eru jafnvirkir á nánast hvaða sem er innan almenna verkstæðisgeirans, enda vel búnir vélakosti. Myndin hér, er af Óskar Elefsen.



17. júlí 09:00

JE-Vélaverkstæði ehf, hefur sérhæft sig við allskyns viðgerðaþjónustu, en sinna jafnframt, þegar til fellur allskonar nýsmíði. Ávalt hafa verið næg verkefni, enda sinna þeir Siglfirska togaraflotanum og annarri útgerð, á Siglufirði og víðar að komnum bátum.

Verkstæðisformaðurinn Guðni Sigtryggsson er á myndinni hér til jægri, en fleiri myndir eru á tenglinum JE-Vélaverkstæði

2003-07-17-15 Guðbrandur Gústafsson og Ámundi Gunnarsson. Það var fámennt á verkstæðinu þegar ég kom, enda stór hluti mannskapsins í sumarfríi 
2003-07-17-19 - Jón Ingi Björnsson og Hjörtur Sævar Þorsteinsson 


2003-07-17-20 


Það er glæsilegt "lógóið" á einum vegg JE-Vélaverkstæði


Merkið hannaði. Valgerður Erlendsdóttir


17. júlí.

Stefán Þór Haraldsson, er ekki af baki dottinn þó kominn sé á "úreldingar aldurinn" og hættur á vinnumarkaðnum. ,

Þarna er stefán að "ýta úr vör" og halda til fiskjar, - til að leggja kolanetin sín.

"Það er það versta helvíti, við þetta nú, að ef maður ætlar að sækja sér og sínum nokkra kolatitti í matinn, þá þarf maður að sækja um það leyfi." 

En hann brosti, samt eins og alltaf, - og veifaði í kveðjuskyni.

17. júlí


Jóhannes Arelakis, eða Jannis (fb.Janus) eins allir kalla hann, situr hér í sólinni og hitanum og er að dytta að grásleppunetum til að gera þau klár fyrir næstu vertíð.

Jannis, er Grikki að uppruna, en er Íslenskur ríkisborgari og hefur búið á Siglufirði í yfir 23 ár. 

Hann hefur sinnt hér ýmsum störfum. "Lífið er einn stór lærdómur". Segir hann.



17. júlí

Þessar vísur, þótti mér þess virði að birta þær hér. 

Höfundur er ókunnur, vísurnar eru ritaðar með "túss" penna á borð það, sem er við innkeyrsluna í bæinn okkar, við "Bakkatjörn"

En ég á það til að fara þangað út eftir ásamt konu minni og slappa þar af í sólinni og logninu, sem svo oft yljar okkur Siglfirðingum.



17. júlí 

Þetta eru þeir Guðmundur Magnússon skipstjóri, með "dósirnar" á lofti. 

Ólafur er að vinna við uppbyggingu, ytra útlits,"Gránu" Síldarminjasafnsins og Ólafur Þór Haraldsson vélstjóri, sem kom í heimsókn á safnið. 

18. júlí- 08:55  Unglingarnir koma víða við, þarna eru tveir þeirra að vinna að snyrtingu Ingvarsbryggju, og mála kantinn viðeigandi litum, gulu og orange. Sólinn hátt á lofti, 15 stiga hiti og logn. 


18. júlí- 09:45 

Þessir menn heita: 

Hreinn Júlíusson tæknideild bæjarins, Luvis Pétursson, Sigurður Hlöðversson tæknifræðingur bæjarins og Guðlaugur Einarsson verktaki Hafnarfirði. 

En þeir voru þarna á svæði Síldarminjasafnsins, að huga að svæði því sem smíða á bryggjur, upp á gamla mátann, tilheyrandi safninu. 

En Guðlaugur og Luvis eru framkvæmdaraðilarnir. 

Frekari upplýsingar koma síðar. 




18. júlí- 09:55 

Þarna eru bræðurnir Stefán Einarsson og Hjalti Einarsson, ásamt Stefáni Sævar, syni Stefáns, að blanda málningu, til undirbúnings að mála flutningapramma sem Hjalti á. 

18. júlí - 11:00  Alls hafa nú borist tæp 30 þúsund tonn (29.893.448 kg) á land, af loðnu til bræðslu hjá S.V. á Siglufirði. 

Nýjustu fréttir frá bræðslunni eru þær, að nú er Ásgrímur Halldórsson á leið til Siglufjarðar með um 1 þúsund tonn af kolmunna til bræðslu. 


18. júlí 17:00 

 Stormar/menningarfélag/hljómsveit. 

Bíóbarinn / Sparisjóðurinn, héldu smá útihátíð á torginu klukkan 16:30 í dag við mikinn fögnuð þeirra sem mættu.

Sparisjóðurinn bauð upp á pylsugrill og Svala, undir þrumandi músík  hljómsveitarinnar Stormar.  




19:júlí  -- Árgangur 53 Vel heppnað árgangsmót þeirra Siglfirðinga, brott fluttra og heima kæru, sem fæddust árið 1953, var haldið hér í gær. - 

Og í dag,  ma. fór hópurinn í Skóræktina eftir hádegi. 



19.júlí 07:00 

Kolmunna veiðiskipið Ásgrímur Halldórsson S.F. 250, landaði í morgun, 966.119 kg. af kolmunna hjá S.V. á Siglufirði.

Ekki er vitað um framhald kolmunna löndunar á Sigló, en menn lifa í voninni, einnig að meiri loðna eigi eftir að koma.




20.júlí 

Heljarmikill afmælisfagnaður Kristjáns Möller, var haldinn í "Gránu" Síldarminjasafnsins í gær 19/6. 

Var þar samankominn mikill fjöldi gesta, sem þáðu glæsilegar veitingar í óvenjulegu, en skemmtilegu umhverfi, það er í GRÁNU, Síldarbræðslu minjasafni  Síldarminjasafnsins. 



20.júlí 09:46 

30 þúsund tonna loðnulöndunarmúrinn var rofinn er Grænlenska loðnuskipið Siku kom í morgun með um 1200 tonn. til S.V. á Siglufirði. 

Alls eru þá komið um 32 þúsund tonn af loðnu og kolmunna, á land þegar lokið er við að losa Siku 



20.júlí 11:17 

Árgangur 53 fór áleiðis út á Siglunes rétt fyrir hádegið í dag. Þar var kveiktur varðeldur í fjörunni og fleira gert til dundurs. 

Nokkrir höfðu hug á að ganga til baka. 

Aðrir verða sóttir af "Sigurvin" sem fór með hópinn út eftir. 


20.júlí 17:15

Skjólgarður. Það er óhætt að segja að ég hafi orðið verulega hissa, (vægt til orða tekið) er ég sá þennan nýreista skjólgarð.

Ekki vegna þess að hann væri gallaður eða ljótur, öðru nær þetta er laglegt verk og vel frá gengið.

En að leyfa staðsetningu hans á gangstétt, og hrekja þar með gangandi út á götuna, og enn lengra út á götuna, þegar bifreiðar leggja við innganginn, sem er algengt. Þarna er umferð oftast mikil, bæði stórar bifreiðar og vinnuvélar. 

Hvað eru menn í Tækni og umhverfisnefnd, og væntanlega umferðaráði, einnig að hugsa? 

Er þetta væntanleg stefna; að loka gangstéttunum í bænum á fleiri stöðum?

21. júlí 07:00

Ég fór hina hefðbundnu hringferð um bæinn í morgun og fann ekkert markvert til að færa hingað, vinsamlega látið mig vita af eitthvað er að ske markvert.

Til að birta einhverja mynd, þá er þessi tekin út um svefnherbergisglugga minn í morgun þegar ég fór á fætur, eftir svefnlitla nótt vegna jarmsins í þessum rollutussum. Vinsamlega gefið mér upp símanúmer "löggjafans sem ber ábyrgð" sem ég get hringt í, í hvert skipti sem ég vakna við jarm rollanna og lambanna næstu nætur, svo einhver geti vakað meeeeeeeð mér ! S.K.

Athygliverð grein; Reimleikar í Alþýðuhúsinu 


21. júlí 2003


Grein Guðnýjar Pálsdóttur forseta bæjarstjórnar Siglufjarðar, birt í Morgunblaðinu. 

Jarðgangna umræðan: Hátíð að Bjarnargili. (birt hér einnig, með leyfi höfundar)

Jarðgangnamálið á Norðurlandi 

er orðinn hinn mesti skrípaleikur í fjölmiðlum. Þegar þessi dæmalausa ríkisstjórn spilaði út trompinu sínu um frestun þeirra þá rauk Birkir Jónsson strax á fund formannsins síns til að ræða málið og finna lausn. Sjálfstæðismenn frá Siglufirði hentust til Reykjavíkur á fund sinna manna fullvissir þess að nú mundu þeir missa andlitið algjörlega ef þeir gerðu ekki eitthvað til að reyna að bjarga því!

Formaður Framsóknarflokksins á Siglufirði hótaði að leggja fram tillögu á fundi um að leggja flokkinn niður ef ríkisstjórnin sæi ekki að sér og sneri blaðinu við. Engar dúsur mundu duga!

En ríkisstjórnin notaði aldagamalt herbragð sem dugði á kappana. Dró pínulítið í land, tróð dúsu upp í okkur öll, formaður framsóknarmanna á Siglufirði kokgleypti hana, tók gleði sína og sagði að nú væri hátíð í bæ! Ég held að bærinn hans sé í Fljótum norður því þar varð gleði á einum bæ þar sem ötulasti talsmaður gegn göngunum býr og kemur iðulega fram í fjölmiðlum með reiðilestra á hendur Siglfirðingum því hann vill fá göng við hlaðvarpann hjá sér svo hann geti selt ferðamönnum viðurgerning.

Það má vel vera að framsóknar-og sjálfstæðismenn andi léttar og þykist hafa bjargað einhverju. En skaðinn er skeður. Svik og prettir flokksbræðra þeirra gleymast ekki. Vantraust á þessa ríkisstjórn hefur vaxið. Á meðan reykvíkingar fá vegabætur í stórum stíl sem aldrei teljast hafa þensluáhrif sitjum við og bíðum eftir aðgerðum sem ekki aðeins eru arðbærar heldur koma til með að hafa stórkostleg áhrif á líf fjölda fólks úti á landsbyggðinni. Þeir sem eru á móti göngunum vilja bara fá vegabætur heima hjá sér. Allir vilja fá eitthvað við sínar eigin bæjardyr, samb. Fljótamanninn og fleiri sem fara hamförum í fjölmiðlum til að skara eld að sinni eigin köku.

Nei, það er ekki hátíð í bæ á Siglufirði yfir lyktum þessa máls. Fjöldi manns er reiður yfir hegðun ríkisstjórnarinnar og ég vona að aldrei grói um heilt og menn hafi vit á að gefa heiðarlegra fólki atkvæðin sín í næstu kosningum.

21. júlí

Athyglivert: 

"Tjaldstæði á Íslandi" http://www.camping.is/index.html Ég rakst á þessa vefssíðu, og dró "ályktun" -  Þessi síða er sérstaklega hönnuð fyrir Siglfirðinga, hér búsetta: Af hverju? Þegar síðan er opnuð blasir við lítið Íslandskort og færirðu bendilinn á kortið, á Siglufjörð, þá kemur upp mynd af Síldarminjasafninu okkar, (flott) og þegar smellt er, kemur fyrirsögnin "Tjaldstæði á Norðurlandi" - en hvergi er minnst á eitt besta tjaldsvæði á öllu landinu; á Siglufirði.

Við Siglfirðingarnir (hér heima) þurfum auðvitað ekkert á slíkri kynningu um tjaldsvæðin á Siglufirði að halda, En væri ekki æskilegt að þau væru kynnt öðrum? - Viðkomandi vefsíða er "óaðgengileg" í dag águúst 2018

---------------------------------------

21. júlí 10:35 

Loðnuskipið Antares VE 18 er á leiðinni með um 900 tonn af loðnu til löndunar hjá S.V.


1. júlí 2003

Þóroddur Guðmundsson, hefði orðið 100 ár í dag, hefði hann lifað. Börn hans og aðrir ættingjar og vinir minnast hans með því að koma saman í Kiwanis húsinu á Siglufirði í dag.

Allir fullorðnir Siglfirðingar muna eftir þessum stjórnmálaskörungi, og síldarsaltanda m.f.l.

Ekki voru allir skoðunum hans í pólitík sammála, en fáir komust hjá því að sýna honum virðingu sína, því hann var vinsæll, þrátt fyrir hin þekktu hvatyrði sín. 

En hann var ófeiminn við að láta sínar skoðanir í ljós, á því tungumáli sem allir skyldu, tungumáli sem sumum, þessum sem vildu láta líta stórt á sig, fannst móðgandi, og ekki við hæfi.