Fréttavefurinn Lífið á Sigló 2003
1. desember 2003
Hann setti svip á bæinn.
Sigurbjörn Frímannsson, bifreiðastjóri, fæddur 26. apríl 1917
Ljósmynd: Kristfinnur
1. desember 2003
AÐALBÚÐIN er enn á sínum góða gamla stað, sem stöllurnar Hrafnhildur Hreinsdóttir og Guðrún Hauksdóttir reka. Þær eru nú búnar að reka fyrirtæki sitt í rúmt ár.
Þarna hjá þeim kennir margra grasa, bækur, föndurvörur skrautmunir, allt fyrir hestamanninn og fleira og fleira.
Ég tók þar nokkrar myndir í dag, sem þú sérð hér fyrir neðan
2. desember 2003
Hann setti svið á bæinn
Þann stutta tíma er hann dvaldi á Sigló
Eiríkur Ásmundsson f.v.kaupfélagsstjóri, í Haganesvík og víðar fæddur 22. janúar 1927
Ljósmynd: Kristfinnur
2. desember 2003
Það var nokkuð jólalegtá Torginu, raunar öllum bænum orðið í gærkveldi er þessi mynd var tekin.
Allar líkur eru á að þessi litli snjór sem komið hefur undanfarna daga, hverfi áður en langt um líður, svona rétt einu sinni enn.
En allir eru tala um það að það fari hlýnandi næstu daga.
2. desember 2003 - Það má búast við einhverjum seinkunum á uppfærslum á vefnum næstu 2-3 daga, en það vill svo til að ég réði mig í fulla vinnu annarsstaðar, en við vefinn. Það eru þó alltént einhverjir enn, sem telja sig geta haft gagn af "gamla manninum" - En ég geri mitt besta til að sinn tvöföldu verki, nú eins og svo oft áður.
2. desember 2003 - Aðalbakarí Siglufirði Þangað skrapp ég í morgun og náði "bakaraliðinu" í kaffi, - auk fastagestanna, Rafbæinga, lið Óla Kára og Helga Magg
Ingi Hauksson, Ómar Hlynsson, Guðmundur Lárusson, Sigurbjörn Jóhannsson, Jóhannes Friðriksson og Aðalsteinn Arnarsson -- Rafbæjarkarlar
Ólafur Kárason, Birgir Ingimarsson og Baldvin Kárason
Þorsteinn Sveinsson, ?, Jakob Kárason, ?, Agnes Björnsdóttir
Helgi Magnússon
3. desember 2003
Hún setti svip á bæinn
Regína Guðlaugsdóttir fimleikakennari., fædd 6. september 1928
Ljósmynd: Kristfinnur
3. desember 2003 -
Spurning, sem vefnum barst í gærkveldi:
Heyrst hefur að Mávur SI. hafi verið dregin frá bryggju í skjóli nætur og honum sökkt hér innfjarðar (undan Staðarhóli) ef rétt er, væri gaman að vita hver gefur slíkt leyfi og hver er ábyrgur, og eða láti vita, hvað sé rétt í þessu máli. Svar óskast.
Það skal tekið fram á ég hefi ekki sjálfur tekið eftir því hvort báturinn er farinn frá bryggju eða ekki, þar sem ég hefi verið of bundinn við annað í dag, til þess að athuga málið.
Myndin sýnir bátinn við bryggju, þar sem hann hefur verið undanfarna mánuði.
4. desember 2003
Hún setti svip á bæinn
Björg Guðmundsdóttir, fædd 15. nóvember 1913
Ljósmynd: Kristfinnur
4. desember 2003
Eins og flestum mun vera kunnugt, þá hlaut Reynir Vilhjálmsson landslagsarkitekt og teiknistofa hans, Landslag ehf., tilnefningu til evrópskra verðlauna í landslagsarkitektúr fyrir hönnun fyrsta áfanga snjóflóðavarna "Stóra og Litla bola", á Siglufirði.
Þeir fóru saman, Reynir og Þráinn Hauksson og tóku þátt 3 tvíræringum í landslagsarkitektúr, sem haldin var í Barselona á Spáni.
Þar hlutu þeir "sérstaka viðurkenningu," svonefnda "Spesial mention" Myndir sem þeir tóku í ferðinni. hér fyrir neðan.
Þessi mynd hér til hliðar, er tekin 5. nóvember 2003 (SK)- Á myndinni sést glöggt, hversu vel garðarnir Stóri boli og Litli boli, falla inn í landslagið - og ekki hvað síst, er greinilegt hve mikið gagn þeir munu gera ef snjóflóð losnar úr læðingi, úr fjallinu fyrir ofan. (og hafa gert > 2018)
4. desember 2003 --
Raggi Gísla SI 73.
Glæsilegur bátur var sjósettur, og snerti báturinn sjávarflöt í fyrsta sinn, seinnipartinn í dag kl.16:43.
Nokkur töf varð á sjósetningunni, en allt gekk fyrir sig slysalaust. Þetta er glæsilegur bátur eins og fyrr segir, og báturinn heitir Raggi Gísla SI 73 2594, - og ber það nafn, sem sómir honum vel: Raggi Gísla.
Eigandi bátsins er Ragnar Ragnarsson, en báturinn ber "gælunafn" föður hans sem hét Ragnar Gíslason Myndir HÉR
Ljósmyndari: ókunnur
Ragnar Gíslason, hinn eini sanni, ávalt kallaður Raggi Gísla >>>>>
5. desember 2003
"Hann setti svip á bæinn"
Kristinn Guðmundsson útvarpsvirki, fæddur 24. desember 1914
Meira um Kristinn í bíó - Og meira ef nafn hans er sett í leitarvélina
Ljósmynd: Kristfinnur
5. desember 2003
Þrír loðnubátar, - þar af einn að landa við Hafnarbryggjuna.
Árið 1975
5. desember 2003 (aðsend frétt)
Knattspyrnuskóli KS byrjar með látum - 36 krakkar á fyrstu æfingu!
36 krakkar í 7. - 10. bekk mættu á fyrstu æfingu Knattspyrnuskólans í gær, en yfir 40 börn hafa skráð sig sem er framar öllum vonum.
Það sem er óvenjulegt við þennan knattspyrnuskóla er að hann er kl. 7.00 á morgnana. Er þetta hugsað sem prufa fram að jólum en eftir áramót verður aðalnámskeiðið og stendur það í 12 vikur.
Knattspyrnuskólinn snýst ekki eingöngu um knattspyrnu því hann er í samvinnu við Grunnskólann og krakkarnir þurfa að fara eftir ströngum reglum varðandi heimalærdóm, mætingar í skólann, hegðun og aga til þess að fá að taka þátt í æfingunum. Áhuginn er mikill meðal krakkanna og er það að sjálfsögðu mjög jákvætt ef þessi tilraun tekst.
Á aðalnámskeiðinu verður komið víða við, t.d. hugað að svefnvenjum, matarræði, markmiðssetningu, vímuvörnum o.fl.
Stórviðburður í sögu Siglufjarðar. Neðanrituð frásögn kom í Mjölnir 28. ágúst 1946- Þarna er verið að segja frá "fyrstu ferðinni" yfir Siglufjarðarskarð, og væntanlegum áætlunarferðum.
Bifreiðastjóri var Baldvin Kristinsson frá Sauðárkróki, sem er eigandi bílsins. - Varð hann þó að fá aðstoð yfir lítinn kafla vegarins. Bifreið þessi verður notuð til áætlunarferða upp á vegarenda, en önnur verður höfð til taks á vegarendanum Fljótamegin, þar til tengingu vegarendanna er að fullu lokið, en nú eru um 600 m á milli þeirra.
Ferðirnar hefjast í dag kl. 11,30. Afgreiðslan er á Nýju bílastöðinni. Ferðirnar verða á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 11,30. Farseðlar eiga að pantast fyrir kl. 10 kvöldið áður.
Baldvin var 1,3/4 úr klukkustund hingað frá vegarenda Fljótamegin.
6. desember 2003
Hann setti svip á bæinn
Jónas Jónsson málari, fæddur 19. desember 1909
Ljósmynd: Kristfinnur
6. desember 2003
Bás karlar, og.....
Þetta eru þeir Þröstur Ingólfsson kranamaður og bílstjóri mfl. og bræðurnir Sveinn Zophaniasson og Hilmar Zophaniasson sem allt geta og gera, varðandi vélar og bifreiðar.
Þarna eru þeir í morgun, að bíða eftir að steinsteypan sem verið er að hræra verði klár, sem nota á til að steypa brunn uppi í fjalli.
6. desember 2003
Endurbætti bryggjukanturinn, við Bátadokkina er langt kominn, en verkið hefur gengi vonum framar, vegna góðs tíðarfars, og auðvitað dugnaðar þeirra sem verkið vinna.
Þessi mynd var tekin í morgun.
6. desember 2003 -- Óæskilegt ástand. Sunnan við Seljaland, rennur þessi moldugi lækur, sem breytt hefur um farveg vegna framkvæmda við væntanlega snjóvarnargarða í fjallinu fyrir ofan.
Ofan við,- og við tvennar dyr þessa bílskúrs rann moldarleðjan
Lækurinn rennur síðan að stétt við hús eiganda bílskúrsins
Mold og grjóti, niður á Hólaveg
Og síðan áfram niður á Hlíðarveg. Og síðan áfram niður á Hlíðarveg -- Og áfram niður Þormóðsgötu og áfram niður
7. desember 2003
Hann setti svip á bæinn
Matthías Ágústsson fisksali, fæddur 29. september 1910
Ljósmynd: Kristfinnur
7. desember 2003
Ég var svo heppinn, að konu minni, sem fyrrverandi starfsmanni Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar, var boðið á árshátíð starfsfólksins, sem haldin var í "bíóhúsinu" KAFFI TORG í gærkveldi - og ég fékk að fljóta með.
Þarna var á borðum sannkallaður veislumatur, svo ríflega útilátinn af úrvali og gæðum, að sumum hætti til að borða nær yfir sig (þmt. ég, ég treysti mér ekki í eftirréttinn) Og þjónustuvilji starfsfólksins, gat ekki verið ánægjulegri né betri.
Og ekki má gleyma skemmtiatriðunum, sem að sjálfsögðu voru "heimatilbúinn" sem og starfsfólk Heilbrigðisstofnunarinnar skilaði frá sér með sóma.
Ég þakka fyrir ánægjulega kvöldstund.
7. desember 2003
"Eins og hraunleðja" skríður moldin, sem flutt hefur verið úr fjallinu að sunnanverðu, til norðurhlutans fyrir norðan byggðina, niður í átt til þjóðvegarins, moldin náði á dögunum alveg yfir veginn og nær lokaði honum, en var hreinsað fljótlega.
Nú er rennslið enn lagt af stað hægt og bítandi yfir á veginn.
Ræsi hafa stíflast á svæðinu og moldarlitað vatnið rennur óhindrað á þjóðveginum, alveg suður að og eftir Hvanneyrarbrautinni, niður í ræsin, sem fljót munu stíflast, auk þess sem hluti flaumsins rennur niður á lóðir fyrir neðan götuna, ma., mína lóð við Hvanneyrarbraut 80