Harley Davidson 2003
Fréttavefurinn Lífið á Sigló
Fréttavefurinn Lífið á Sigló
2003
2003
16. ágúst 08:50
Harley Davidson. Inni í skemmunni hans Gunna Júll, voru í morgun 14 Harley Davidson gljándi mótorfákar.
Þrettán þeirra komu í bæinn í gærkveldi, ásamt eigendum sínum að sjálfsögðu, til að heimsækja Gunnar Júlíusson, Harley Davidson eiganda með fleiru. Einnig var för þeirra heitið í sjóferð, með björgunarsveitarmönnum, á Sigurvin, en erindi björgunarsveitarmanna var að kanna hugsanlegan lendingarstað í Hvanndalafjörum. Og fengu Mótorhjóla drengirnir og stúlkur að fljóta með.