Miðvikudagur 1. júní 2005 Aðsent.
Nemendur úr 10. bekk grunnskólans fóru á dögunum í starfskynningu. Starfskynningin stóð yfir í tvo daga og heimsótti hver einstaklingur tvo vinnustaði. Krakkarnir voru mjög ánægðir með þessa daga og fengu að kynnast því sem daglega fellur til hjá hverjum vinnustað fyrir sig. Mikil fjölbreytni var í vali nemenda og fengu allir að heimsækja þá staði sem þeir óskuðu eftir. Grunnskólinn þakkar þeim fyrirtækjum, sem um ræðir, kærlega fyrir jákvæðar móttökur og velvilja í garð nemenda. -- Myndasyrpa
Miðvikudagur 1. júní 2005 --
Ein gömul
Sunnusvæðið um 1948(?)
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Miðvikudagur 1. júní 2005 -- Aðsent; Fyrri þemadagur Grunnskólans var í gær. Seinni dagurinn í dag hefst með uppákomu úti við efra skólahús kl. 10:40.
Síðar munu krakkarnir í neðra húsi setja bátana sem þeir hafa smíðað á flot. Tími ekki ákveðinn ! G.R. Fjórar myndir hér neðar, ljósmyndari ókunnur
Miðvikudagur 1. júní 2005
Nú er sumarið komið sögðu blómadrottningarnar í gær seinni partinn, þegar blómabíllinn kom í bæinn og allar blóma drottningarnar þyrptust að til að versla blómin sín sem þær koma fyrir hér og þar og allsstaðar.
Einstaka karl (þrælar) meðal annars ég komu til að bera út í bílana og keyra heilu "gróðurhúsunum" heim eftir innkaup eiginkvennanna.
Miðvikudagur 1. júní 2005 Aðsendar myndir - sem mér hafa borist eru mjög vel þegnar hingað á síðu mína, enda nánast allar birtar. En ég á oft við vandamál að stríða í sambandi við sumar myndir. Vandamál sem ég á auðvelt með að leysa, en það tefur mig mikið fram yfir það sem þyrfti.
Sendandi myndanna þarf að hafa eftirfarandi í huga áður en hann sendir myndir, sérstaklega ef um margar myndir er að ræða. EKKI nota séríslenska stafi í nafni mynda, netið tekur ekki við bókstöfum samber þæðöáí osfv. og löng nafnaruna í nafninu eins og til dæmis „Hvaða stærð vantar þig af buxum“ er hvimleið, fyrir utan íslensku stafina sem netið hafnar í skjalanöfnum. Notið annað hvort upprunanúmer myndavélar, eða númerið myndirnar í þeirri röð sem þið viljið að þær komi fram, tölvan raðar sjálfvirkt eftir stafrófsröð og númerum- og skrifið svo skýringartexta, sem oftast er æskilegt fyrir þá sem ekki þekkja til og það gefur myndunum gildi og vitnið þá í viðkomandi númer. Og hafið einhvern formála með vegna tilefnis myndatöku. Bestu þakkir SK
Miðvikudagur 1. júní 2005 -- Þemadagur Grunnskólans hélt áfram í morgun við efra skólahúsið, þar var eðlisfræðin látin ráða ríkjum, en aðalhlutverkið á þeim vettvangi var loft og vatn. -- Gerður hafði verið skotpallur, en í stað eldsneytis eins og notað er á Floridaskaga og víðar í heiminum til að knýja hin ýmsu loftför á ferð sinni upp í himinhvolfið, þá notuðu nemendur loft og vatn til að koma sínum flaugum á loft. Loftförin sjálf voru tveggja lítra gosflöskur (margar), í flöskurnar var sett smáleki af vatn, þær tengdar með loftslöngu
(í tappann) og síðan komið fyrir í hólk (skotpallinum) Þegar loftinu var hleypt á losnaði tappinn með látum og flaugin þaut á loft upp og sveif síðan niður í fallhlíf (ef vel tókst til) --
Þá var gerð tilraun með heimagerðan gosbrunn.
Fimmtudagur 2. júní 2005
Ein gömul:
Á lóð Síldarverksmiðja Ríkisins einhvern tíma fyrir 1940. Stafli af lýsistunnum tilbúnar til útflutnings, á lóðinni nánast þar sem nokkrum árum síðar, SR-46 var reist.
SR-30 sést lengst til vinstri á myndinni.
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Fimmtudagur 2. júní 2005
Þessar tvær myndir hér fyrir neðan voru teknar í gær þegar Mark Duffield var í "körfu" frá bílnum hans "Ninna", Sigurjón Steinsson vörubílstjóri.
Mark var að mála Vökuhúsið að utan.
Fimmtudagur 2. júní 2005 Flutningaskipið HEIN (erlent) kom til Siglufjarðar í gærkveldi klukkan 21:30 og lestaði hér 183,4 tonn af loðnumjöli hjá Síldarvinnslunni. Héðan fór skipið strax eftir lestun hér, áleiðis til Neskaupstaðar til að lesta þar meira af mjöli.
Fimmtudagur 2. júní 2005 --- Olíuskipið OPHELIA (erlent) fór héðan klukkan 7:45 í morgun, eftir að hafa losað slatta af olíu til OLÍS hf
ooooOoooo
Fimmtudagur 2. júní 2005
Jón Óðinn Reynisson hefur opnað nýja KS síðu þar sem fjallað er um leikmenn og leiki liðsins sumarið 2005.
Einnig eru myndir úr leikjum á síðunni.
Slóðin er www.folk.is/ks2005 (síðan ekki aðgengileg 2019)
Fimmtudagur 2. júní 2005 -- Núna á næstu dögum munu Lionsmenn ganga í hús og selja hið feyki vinsæla Heimabingó Lions. Mikið hefur verið spurt um Heimabingóið og vonum við að viðtökurnar verði eftir því. Þetta er leikur sem allir geta spilað, ungir sem aldnir. Hægt er að nálgast tölurnar í síma 467-1910 og í glugganum hjá Frey í Rafbæ og byrjar leikurinn í dag, 2. júní. --- Bingó bókin kostar aðeins 500 kr. Að vanda eru vinningarnir glæsilegir s.s. matarúttekt í Samkaup/Úrval, miðar í jarðböðin við Mývatn og fleira.--- Bækurnar verða einnig til sölu í Rafbæ, Versló og Sigló-Myndir. --- Þeir sem hafa áhuga á að vera með í leiknum og vilja styrkja gott málefni, en eru búsettir fyrir utan Siglufjörð geta haft samband við undirritaðan í síma 868-9333. Guðmundur Gauti Sveinsson Ritari Lionsklúbb Siglufjarðar.
Fimmtudagur 2. júní 2005
Frá Leikskálum: Útskrift elstu barna Föstudaginn 27. maí var útskriftarathöfn í leikskólanum. Þá komu foreldrar, ömmur og afar til að fagna þessum áfanga með börnum sínum. Fulltrúar frá Rauða Krossinum komu og gáfu öllum börnunum hjálma. Addi lögga kom og var með gagnlegar upplýsingar til barnanna varðandi umferðarreglur og hjálmanotkun. Steini hjúkka kom einnig og var með eggjagjörning sem tengdist hjálmanotkun. Í lokin buðu Rauðakrossmenn börnunum upp á prins póló og safa.
Kveðja Leikskálar Myndir HÉR
Föstudagur 3. júní 2005 -- Ein gömul:
Siglufjörður árið 1931 -- Ljósmyndari ókunnur
Föstudagur 3. júní 2005 -- Varp og útungun fugla hér í firðinum virðist ganga vel. Skógarþrestirnir eru komnir með unga og kollan hefur sést á ferli með unga, þó sumar liggi ennþá á hreiðri sínu hjá ungunum.
Föstudagur 3. júní 2005 - Mokfiskirí það sem staðið hefur yfir síðustu vikur stendur enn, og enn fjölgar aðkomu bátunum sem gera út héðan frá Siglufirði. Algengt er að bátarnir rói með 10-25 bala eftir stærð bátana og fái allt að 500 kg á bala og þeir sem komnir eru að mörkum leyfilegs kóda, velta fyrir sér hve marga bala þeir eigi að fara með í síðasta róðurinn svo þeir lendi ekki í vandræðum.
Myndin er af bátnum Hópsnes GK 77 2580 koma inn klukkan 03:00 í gær.
Föstudagur 3. júní 2005 -- Þær eru bestu vinkonur, Hildur og æðarkollan, og búa fyrir handan fjörð. Í mörg ár hefur þessi kolla verpt rétt við húsið Hildar sem fer daglega og stundum tvisvar á dag til að klappa henni og gá hvort eitthvað bóli á ungunum. Stundum leyfir kollan henni að skoða eitt egg. Eftir 28 daga í dúnhlýjunni og undir mömmunni er unginn fullvaxta og fer að brjóta sér leið út og þá má heyra svolítið tíst inni í egginu ef það er lagt við eyrað.
Föstudagur 3. júní 2005
BREMER URANUS heitir þetta flutningaskip sem í dag er að lesta 1160 tonn loðnumjöli frá Síldarvinnslunni á Siglufirði
Föstudagur 3. júní 2005 Frá Golfklúbb Siglufjarðar:
Fjögur vinnukvöld hafa verið hjá félagsmönnum Golfklúbbs Siglufjarðar undanfarið og góð mæting. (24,26,30 maí og 2 júní) --
Unnið hefur verið við lagfæringar og breytingar á golfvellinum ásamt tiltekt á svæðinu.-- Þökur voru lagðar á nýja flöt á holu 2, og yfir álagssvæði þar sem búið er að fylla upp í skurði á braut 1, 4 og 6. --
Sandur settur í glompur, möl í stíga og brýr bættar. Nýir bekkir settir upp við hverja holu. -- Eftir síðasta vinnukvöldið 2. júní var Myndir HÉR
Föstudagur 3. júní 2005
Refur var skotinn í æðarvarpi austan við flugvöllinn í nótt.
Hann hafði komið nóttina áður og skilið eftir sig slóð rændra og egglausra hreiðra, svo kallaðir voru til löggiltir tófubanar, Rögnvaldur Gottskálksson og Halldór Bogi Sigurðsson, sem hafa staðið í sérstökum aðgerðum í varplandinu á Hraunum í vor.
Halldór kom sér fyrir þar sem helst var tófunnar von í gærkveldi með splunkunýjan riffil sem hann hafði fengið í gær.
Og rebbi mætti á svæðið undir klukkan tvö, og ekki geigaði fyrsta skotið úr gripnum nýja í uþb 150 m færi.
Og í morgun lá svo þessi ræfill skottlaus og bærði ekki á sér við myndatökuna – enda steindauður. Svona fer stundum fyrir þeim sem ræna frá fuglunum!
Föstudagur 3. júní 2005 --
Mikið er um að vera frammi á firði um þessar mundir, Vegagerðin er að vinna að umfangsmikilli lagfæringu á vegakerfinu, fram að Hóli, og upp að hesthúsum, vestan á Ásnum norður að Árós.
Föstudagur 3. júní 2005 -- Svalur og þurr norðan vindur flesta daga. Svona hefur vorið verið. Og ekki er hægt að hugsa sér betri tíð til að verka fisk í hjalli. Fiskur sem var hengdur upp fyrir 16 dögum er að orðinn fullverkaður. -- Minnstu þorskflökin orðin gómsætur harðfiskur og ekki eru þau verri, sigin grásleppan og þorskurinn!
Föstudagur 3. júní 2005
Í kaffitímanum hjá Bás ehf. í morgun.
Á myndinni eru: Finnur Sigurbjörnsson - Ægir Bergsson - Hreinn Júlíusson - Sveinn Zophoníasson og Sigurður Björnsson
Föstudagur 3. júní 2005
Þessi fallega skúta Vagabond ELLE, lá í morgun við enda Ingvarsbryggju. Skútan er verulega falleg og vönduð, smíðuð úr mahogany . Um borð eru hjón sem greinilega kunna til verka vegna siglinga sagði hafnarvörðurinn. Héðan halda þau til Ísafjarðar og síðan til Grænlands.
Föstudagur 3. júní 2005
Veraldarvinir komu hingað í gærkvöldi til að dvelja hér í tvær vikur og vinna að umhverfisverkefnum. Þetta er þriðji hópurinn sem kemur hingað á tveimur árum.
Alls hafa komið hingað 46 manns til að vinna að því að fegra bæjarlandið og nánasta umhverfi. Verkefni þessa hóps verður að mestu í skógræktinni í Skarðsdal.
Hægt er að skoða vefsvæði samtakanna á slóðinni http://www.wf.is/veraldarvinir/default.asp?l=en Vefurinn er ekki lengur aðgengilegur, 2019
Föstudagur 3. júní 2005 Fyrstu BINGO tölurnar frá heimabingói Lions --
21-47-19-23-44-43-18-12-9-20-64-46-17-38-59
<<<<< Fylgist með
Laugardagur 4. júní 2005 Ein gömul: Sæfinnur NK 76 við Pólstjörnu bryggju einhvern tíma eftir 1940 (stríðsárin) - Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Laugardagur 4. júní 2005 -- Frá Örlygi -- Í gær tók Síldarminjasafnið formlega við sínum fyrsta tölvubúnaði að gjöf frá Þormóði ramma – Sæbergi hf.
Þetta eru tvær skrifstofutölvur og prentari ásamt tveimur sýningartölvum í fræðslusal Bátahússins. Samtímis var ný myndasýning Steingríms Kristinssonar opnuð í sýningartölvunum.
Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar - hafði fyrr á þessu ári styrkt Steingrím til þess að miðla myndum sínum til safnsins og koma þeim þannig fyrir almenningssjónir.
Í þessari fyrstu syrpu úr Ljósmyndasafni Steingríms hafa gestir Síldarminjasafnsins aðgang að 2-3000 myndum í ýmsum flokkum sagnfræðilegra mynda frá síldarárunum á Siglufirði og víðar.
Síldarminjasafnið hefur óskað eftir því að koma á framfæri bestu þökkum til stjórnenda Þormóðs ramma – Sæbergs hf, Sparisjóðsins og Steingríms fyrir þann vinarhug sem felst í þessum góðu gjöfum og styrkjum. -
Laugardagur 4. júní 2005 ---
Frá áhöfn og útgerð Ásdísar Ólafar SI.23. --
Þó að seint sé, viljum við koma á framfæri kærum þökkum til Björgunarsveitarinnar STRÁKA, og áhafnarinnar á björgunarskipinu SIGURVIN. Viðbrögð þeirra og vinnubrögð sýndu enn og einu sinni, þörfina fyrir góðan og öflugan björgunarbát og vel æfða áhöfn. --- Við kunnum öllum þeim er að þessu máli komu, og öllum Siglfirðingum hjartans þakkir fyrir aðstoð, hlýhug og góðar óskir í okkar garð.
Sigurður Ólafsson -- Ragnar Hauksson -- Árni Stefánsson -- og fjölskyldur þeirra allra.
ES: Óskum sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með Sjómannadaginn
Laugardagur 4. júní 2005
Aðsent:
Félagar úr kirkjukór Siglufjarðar tóku sig til og mættu heima hjá Birni Jónassyni og Ásdísi Kjartansdóttur kl. 7.15 í morgun og vöktu heimilisfólkið með söng og trompet leik.
Fyrst var spilað lagið Siglufjörður á trompet og síðan söng kórinn afmælissönginn.
Uppátækið vakti óskipta athygli og ánægju hjá heimilisfólkinu að Suðurgötu 56 og var kórnum boðið upp á dýrindis afmælisköku, kaffi og gos í sólskálanum. -
SH Myndir HÉR
Laugardagur 4. júní 2005
Óvenjuleg sýning í Bátahúsinu.
Í morgun var verið að losa flutningabíl fyrir framan Bátahúsið af allskonar furðuverum innpökkuðum í plast.
Þetta eru ýmis skúlptúr í mannslíki, sem verða þarna til skoðunar --
Aðalheiður Eysteinsdóttir: Skúlptúr um mannlíf Siglufjarðar --
Opið frá 13-17 alla daga - til 7. júní, ókeypis aðgangur
Sunnudagur 5. júní 2005 --- Ein gömul: Verslunar og íbúðarhúsið Einco brennt til grunna af slökkviliði Siglufjarðar. -- Húsið átti að rífa vegna byggingar olíuvöruverslunar. - Slökkviliðsmenn notuð húsið Einco til æfinga og kveiktu síðan í því. Æfingarnar gengu að óskum og húsið var síðan látið brenna. Blanka logn var svo engin var hættan, þrátt fyrir nálægð bensínstöðvar OLÍS
Sunnudagur 5. júní 2005 Árgangur 1938 kom saman nú um helgina. Meðal annars sem þau tóku sér fyrir hendur, var að bjóða vistmönnum á Skálarhlíð upp á kaffi og meðlæti í salnum að Skálarhlíð. Þar mættust margir sem þekktu hvor aðra frá sínum yngri árum. Ég mætti þar og tók nokkrar myndir sem sjá má ef smellt er HÉR
Sunnudagur 5. júní 2005
Kappróður og fleira til skemmtunar fór fram í gær við höfnina vegna Sjómannadagsins.
Því miður varð ég að yfirgefa vettvang áður en dagskránni lauk, og tók því færri myndir en ég ætlaði.
En myndirnar og væntanlegar myndir sem teknar verða í dag, munu birtast sem sería, ef til vill seinni partinn - eða á mánudag.
(mikið að gera hjá mér við annað)Þeir sem eiga góðar myndir af koddaslag og brettahlaupi sem fram fór á laugardaginn; slíkar myndir eru vel þegnar til birtingar hér á síðu minni með mínum, í væntanlegri myndasyrpu vegna Sjómannadagsins.
Sunnudagur 5. júní 2005 -- Sjómannadagurinn - Blómsveigur lagður á minnismerki drukknaðra sjómanna við athöfn klukkan 11:00 í morgun.
Mánudagur 6. júní 2005 -- Sjómannadagurinn - Kappróður og dorgveiði sl. laugardagur. Smelltu HÉR til að skoða mynda syrpu
Mánudagur 6. júní 2005 -- Sjómannadagurinn - Sjóferð með Múlabergi og... Myndasyrpa frá sjóferðinni
Mánudagur 6. júní 2005 Sjómannadagurinn - Blómsveigur lagður á minnismerki drukknaðra Myndasyrpa HÉR
Mánudagur 6. júní 2005
Sjómannadagurinn - Klifur, grillaðar pylsur og kaffiveitingar og leikir
Mánudagur 6. júní 2005 -- Aðalheiður Eysteinsdóttir: Skúlptúr um mannlíf Siglufjarðar -- Opið frá 13-17 alla daga - til 7. júní, ókeypis aðgangur.
Hér eru nokkrar myndir af skúlptúrum hennar, ma. þekktar persónur úr sögu Siglufjarðar.
Mánudagur 6. júní 2005-- Valgeir Sigurðsson flaggaði íslenska fánanum í gær í tilefni af Sjómannadeginum, fáninn sést fyrir miðri myndinni fyrir handan fjörð, þar sem horft er niður eftir Aðalgötunni seinni partinn í gær, hin er af móðir (?) og börn slappa af í sólinni og borða ís. -- Í dag ætlar Valgeir að flagga sænska fánanum í tilefni af þjóðhátíð Svía, en á laugardag flaggaði hann einnig sænska fánanum í tilefni afmælis einstaklings innan konungsfjölskyldunnar. Myndirnar hér fyrir neðan
Mánudagur 6. júní 2005
Byrjað er á því að fylla upp að nýju brúnni yfir Hólsá og við að tengja hitaveiturör og fleira sem komið er fyrir í brúargólfinu. - Mörgum finnst væntanleg brú vera full lág (hæðarpunktar) miðað við veginn að vestan verðu, sem þarf að lækka til að tengjast brúnni. En verkfræðingarnir ráða þessu víst og svona verður þetta.
Mánudagur
6. júní 2005
Ekki veit ég hvert ég á að beina orðum mínum. En taki það til síns sem eiga að gera það (?) Margir hafa amast yfir því að hundaeigendur hirði ekki upp "stykkið" sem hundar þeirra skilja eftir sig, og það er ekki af ástæðulausu. Í bænum sjálfum er ekki erfitt fyrir hundaeigendur að losa sig við "stykkin" í næsta rusladall. En þeir sem fara með hunda sína í göngutúr til dæmis eftir Langeyrarvegi og fram á fjörð eiga ekki gott með að losna við margnefnd "stykki" því hvergi er að finna rusladalla á þessum leiðum.
Hendið þessu bara í sjóinn eða vatnið segja sumir, en átta sig ekki á því að þessu fylgir plastpoki sem seint eða aldrei eyðist í náttúrunni. Þeir sem ráða, komið fyrir nokkrum rusladöllum á þessum leiðum og ekki hvað síst við afdrepin sem gerð hafa verið sumstaðar á þessari leið. Og annað sem mætti gera, nú hefur sést til kolluunga á Leiruvegi; það vantar viðvörun til akandi að gæta sín á þeim.
Þriðjudagur 7. júní 2005 -- Ein gömul: Róaldsbraggi og nágrenni.
Núverandi umráðasvæði Síldarminjasafnsins
Þriðjudagur 7. júní 2005 -- Aðsent: (Erla Gull)
Þriðjudagur 7. júní 2005
Sif Friðleifsdóttir heimsækir Siglufjörð reglulega og dvelur hér oft um helgar, það gerði hún um síðustu helgi og tók að venju helling af myndum.
Hér á tenglunum fyrir neðan má sjá nokkrar þeirra á vef hennar.
http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1113
http://www.siv.is/i_mynd/myndir.lasso?id=6588
http://www.siv.is/i_mynd/index3.lasso?hopur=1114
Þriðjudagur 7. júní 2005
Aðsent:
<<<<< Steinunn Sveinsdóttir, Sveinn Björnsson og Gylfi.
Þrjár myndir úr Sjómannastund 2005.
Þar heiðraði Sjómannadagsráð Siglufjarðar Gylfa Ægisson.
Ljósmyndir; Sigurður Ægisson
<<<<< Gylfi Ægisson
Þriðjudagur 7. júní 2005 --- Aðsent: -
Seinni partinn í dag, á 44 ára skírnarafmæli mínu, fór ég út í Langeyrarhólmann með trjáplöntur, mold, grasfræ og áburð. Birki var sett niður (1 planta), sem og orravíðir (1 planta), skriðvíðir (1 planta), strandavíðir (2 plöntur) og urðarvíðir (1 planta). Planið er að kanna hvaða tegundir eru harðgerðastar, og því góðar til að mynda skjól þarna úti. - Læt fylgja hér 5 myndir, m.a. af eina landnemanum þetta sumarið.
Fyrir nokkrum dögum hafði ég farið út með gullvíði og loðvíði. Sumt af því sem sett var niður í fyrra hefur lifað af veturinn, en annað dáið. Það kemur á óvart að alaskavíðirinn virðist ekki pluma sig þarna úti, blöðin eru skemmd, jöðrunum, annaðhvort vegna seltu eða einfaldlega af þurrki.
Gullvíðirinn er hinsvegar nægur, sem og loðvíðirinn. -- Ljósmyndir; Sigurður Ægisson -- Smelltu HÉR
Þriðjudagur 7. júní 2005 -- Þormóður Rammi Sæberg hf. fékk 200 tonn af frosinni rækju með flutningaskipinu Florinda í gær.
Þriðjudagur 7. júní 2005 -- Unglingavinnan er komin á fullt skrið hjá bænum, þessi mynd var tekin norðan við Stóra bola í morgun
Þriðjudagur 7. júní 2005 -
Veðurstöðin í Bakka er komin á sinn stað og komin í gagnið. Fyrstu skráningar frá henni koma í hádeginu, þær verða settar inn handvirkt þar til 2. áfangi verður keyptur og tengdur.
Ég naut dyggrar aðstoðar Óskars Berg Elefsen við uppsetninguna sem lauk með því að mastrið sem hann smíðaði, - ásamt veðurstöðvar búnaðinum var reist í gær og veðurstöðin tekin í gagnið. Ég sá sjálfur mun sjá um allar tæknitengingar sem verkinu tengjast
Við kaupin og uppsetninguna naut ég margra góðra handa, en af öðrum ólöstuðum verð ég að nefna Baldvin Einarsson og Óskar Berg Elefsen sem voru aðal driffjaðrirnar frá upphafi til enda. -
2. áfangi (Wi-Fi), sem tengir stöðina "Live" við "Lífið á Sigló" verður keyptur væntanlega í sumar --
3. áfangi verður alvöru vefmyndavél "Live" (seinni tíma verkefni) Myndamöppur Veðurguðirnir -
Staðsetningin er: 66°09 N 586 - 018°54 V 199 (Fyrir neðan hús mitt við Hvanneyrarbraut 80)
Miðvikudagur 8. júní 2005 -- Ein gömul: Þetta er EKKI fótbolti, heldur handboltakappleikur á milli KS kvenna og Hofsóskvenna árið 196? á Hofsósvelli
Miðvikudagur 8. júní 2005
Glóa-fólk. Kvennahlaup ÍSÍ fer fram laugardaginn 11. júní nk. Hér á Siglufirði verður hlaupið frá Torginu og hefst hlaupið kl. 11.00. --- Ungmennafélagið Glói mun sjá um hlaupið annað árið í röð. Hanna Hrefna mun sjá um upphitun og veitingar munu bíða þátttakenda í lok hlaupsins. --- Forsala á bolum mun fara fram í dag á Torginu frá kl. 15.00 – 18.00.
Miðvikudagur 8. júní 2005 -- Í tilefni af 50 ára afmæli Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar 22. nóvember 2003 lét félagið framreikna gjafir til Sjúkrahúss Siglufjarðar, nú Heilbrigðisstofnunin Siglufirði, frá 1955 til verðlags í desember 2004. - Heildarupphæð framreiknuð er um 85 m.kr sem skiptist þannig: Frá árinu 1955 til 1973 nam gjafafé, á verðlagi í desember 2004 til nýbyggingar sjúkrahúss um 40 m.kr--- Frá árinu 1973 til 2004 nam gjafafé, á verðlagi í desember 2004 til tækjakaupa um 45 m.kr.
Af þessu tilefni hélt framkvæmdastjórn Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar kaffisamsæti fyrir kvenfélagskonur og afhenda þeim bréf frá Jóni Kristjánssyni heilbrigðisráðherra þar sem hann þakkar þeim fyrir frábært starf og framlag til stofnunarinnar. -- Á myndinni til vinstri er Magðalena Hallsdóttir formaður og Konráð Baldvinsson framkvæmdastjóri eftir afhendinguna, baka til er Valþór læknir.
Valþór, Madda og Konni
Magðalena Hallsdóttir, Björk Jónsdóttir, Halldóra Jónsdóttir, Björg Friðriksdóttir, Brynja Stefánsdóttir, Svala Bjarnadóttir, Anna Gísladóttir og Konráð Baldvinsson Valþór Stefánsson stendur þarna að baki þau
Miðvikudagur 8. júní 2005 -- Óhapp í Bátahöfninni. Lítill plastbátur sökk einhvern tíma í nótt. Eigandinn hafði farið á vettvang um miðnættið, hann ætlaði þá að snúa bátnum upp í vindinn sem þá var allsnarpur, en treysti sér ekki til þess og bætti í þess stað á bátinn böndum. En í morgun tóku menn eftir því að hann var sokkinn. Myndin sýnir er verið var að undirbúa að hífa bátinn á land
Fimmtudagur 9. júní 2005 -- Ein gömul: Hljómsveit Þórðar Kristinssonar eða Gautar ? Ekki er ég viss, en þetta eru: Guðmundur Þorláksson - Þórður Kristinsson - Þórhallur Þorláksson og Guðmundur Frímannsson. líklega um 1955 (?)
Ljósmynd: Kristfinnur Guðjónsson
Fimmtudagur 9. júní 2005
Ný og fögur ásýnd er að myndast við innkeyrsluna í bæinn okkar.
Stórt og fallegt svæði, sem verður malbikað undir bílastæðum, hellulögðum gangstígum, grænum flötum, bekkjum, borðum og fallegri tjörn með táknrænum "grjótsúlum" sem tákna eiga fjölda snjóflóðavarnargarðanna. --
Í dag er tjörnin mórauð á meðan unnið er á svæðinu, en verður tær og vatnsmeiri þegar frá líður.
Stefnt er að því að þetta svæði verði tilbúið fyrir Verslunarmannahelgina.
Allar líkur eru á að það takist, en verkinu í heild stjórnar Guðmundur Sigurbjörnsson verkstjóri Suðurverks með áhuga og elju, en hann stjórnar einnig framkvæmdum við snjóflóðavarnargarðana.
(Ég hefi gefið tjörninni nafnið Bakkatjörn við Bakkatorg) (Bessaleyfi !)
Fimmtudagur 9. júní 2005 -- Opið hús og veitingar hjá Katrínu Sif Andersen. Einstakt tækifæri til að kynnast Aloe Vera vörunum frá Forever Living Products. -- Fimmtudags og Föstudagskvöld verður opið hús hjá mér kl. 20:30. Harpa Hauksdóttir sjálfstæður dreifingaraðili kemur og verður með mér til halds og trausts. Fleiri og fleiri bætast í hópinn og eru margir sem geta ekki hætt eins og ég. --- ALLIR VELKOMNIR, LÉTTAR VEITINGAR Á BORÐUM : -- Aloe Vera Gel drykkurinn hefur haft jákvæð áhrif á heilsufar margra og hefur m.a. reynst fólki með meltingartruflanir, exem, psoriasis, liðagigt og astma sérlega vel.--- Frá örófi alda hefur Aloe Vera jurtin verið þekkt fyrir lækningamátt sinn og næringareiginleika. Talið er að hin fagra Kleópatra hafi notað plöntuna í fegrunarkrem á meðan hinn gríski læknir Dislorides notfærði sér hina læknandi eiginleika jurtarinnar. Katrín Sif
Föstudagur 10 júní 2005 -- Ein gömul:
Föstudagur 10 júní 2005 --- Stokkönd
Föstudagur 10 júní 2005 -- Börn frá Leikskálum sem voru í göngutúr í morgun ásamt gæslumönnum sínum, horfa hér hugfangin á gosbrunninn á Torginu, en dælan sem dælir vatninu í hann var einmitt gangsett í morgun.
Laugardagur 11 júní 2005
Aðsent:
Ég er dóttir Helga Inga og Agnesar Þór, starfsmaður Íslandsbanka á Akureyri.
Vinkonu mína og vinnufélaga bráðvantar hús til leigu á Sigló um verslunarmannahelgina fyrir sig og fjölskyldu sína og vinafólk sitt, því þeim dauð langar að komast í sjóstöng.
Þetta eru tvær fjölskyldur, í Sjóak, 5 fullorðnir og 6 börn. Þetta er náttúrulega allt sómafólk og þau lofa að ganga vel um og allt það. vinsamlega látið mig vita í netpósti: Vilborg
Laugardagur 11 júní 2005
Ein gömul:
Haraldur Hjálmarsson - ? - ? - Gottskálk Rögnvaldsson
og Jóhann Guðmundsson
Starfsmenn Kjötbúðar Siglufjarðar
Ljósmyndari ókunnur.
Laugardagur 11 júní 2005
Kaupmannasamtökin og Stúlli hjálpuðust að við að lífga upp á mannlífið á Torginu í gær Sturlaugur Kristjánsson (Stúlli) lék létt lög á sviðinu við Torgið á vegum Kaupmannafélags Siglufjarðar.
Sumir nutu þess í ró og næði við gosbrunninn, aðrir fyrir framan Kaffi Torg og enn aðrir á þönum á milli verslana - og eða meðan gengið var framhjá.
Laugardagur 11 júní 2005 --
Kvöldsólin síðastliðinn sunnudag rétt fyrir miðnætti.
Með þessari mynd frá Hrönn Einarsdóttir fylgir kveðja til Siglfirðinga, en hún er að "fara í útlegð" Það er til vinnu á hóteli fyrir vestan, en hún kemur aftur í haust.
Laugardagur 11 júní 2005 --
"Ljóti svipurinn" á fjallinu okkar í Norðurbænum er óðum að breyta ásýnd til hins betra. Suðurverksmenn eru langt komnir með sjálft verkið. -
Eftir er að sá grasfræi dreifa áburð á hlíðina og ef það tekst til betur en við Stóra bola vona ég.
Þá verður þarna græn hlíð sem ókunnir gera sér ekki grein fyrir, að ekki sé um sköpun náttúrunnar að ræða.
Laugardagur 11 júní 2005 Kvennahlaup ÍSÍ fór fram hér í morgun - hlaupið var frá Torginu og hófst hlaupið kl. 11.00. --- Ungmennafélagið sá um hlaupið annað árið í röð. Hanna Hrefna sá um upphitun og veitingar sem biðu þátttakenda í lok hlaupsins. Myndir HÉR
Laugardagur 11 júní 2005
Keilir - olíuskipið, losaði hér olíu í morgun