Takið eftir Bjarna Júlíusi Ólafssyni fjær, sem togar í vogarstöng til að létta þeim félögum átökin. (myndin hér fyrir ofan)
Sunnudagur 22. ágúst 2004 Tvær gamlar: Svona fóru þeir að í gamla daga (1964) Jóhann Ísaksson heldur þarna á glóandi efni í 12" snigilblað og Jóhann Halldórsson og Jón Sigurðsson eru þarna að móta snigilblaðið, sem síðar var soðið við fleiri til að smíða snigil (snellur) Í dag nota þeir á S.R.-Vélaverkstæði aðra og fullkomnari aðferð við skrúfsmíði, enda eru þeir fremstir í slíkri smíði á Íslandi.
Sunnudagur 22. ágúst 2004
Lífið á Sigló 1954
Skemmtilegur fróðleikur, skrifað af Andrés Hafliðasyni í apríl - maí 1954:
Annálar apríl og maí árið1954 -- Veðurfar. Mánuðurinn var mjög hagstæður yfirleitt hvað veðráttu snerti.
Meðalhiti mánaðarins mun hafa verið talsvert yfir frostmarki.
All umhleypingarsamt var, en þó voru bjartviðri tíð framan af mánuðinum og um miðjan mánuðinn mun hafa verið hlýjast og er leið á mánuðinn var jörð farin að grænka og garðablóm farm að spretta. Brum á trjám var farið að þrútna.
Sunnudagur 22. ágúst 2004
Báthúsið, í kvöldkyrrðinni í gærkveldi
Sunnudagur 22. ágúst 2004 Í gærkveldi var við hesthúsabyggðina sunnan Steinaflatar verðlaunaafhending á vegum Hestamannafélagsins Glæsir; vegna tveggja hestamóta sem fram fóru í gærdag. Um var að ræða Stefánsmót og árlega firmakeppni. Nánari upplýsingar eru neðst á þessari síðu.
Sunnudagur 22. ágúst 2004
Mjölskipið Koningsborg, leiguskip Eimskips kom hingað í morgun til að lesta hér 2500 tonn af gæðamjöli til Bandaríkjanna.
Þar á eftir mun skipið lesta mjöl frá Seyðisfirði og víðar á vegum Síldarvinnslunnar.
Ekki þekkti ég "þjóðfánann"(?), en legg lesendum eftir að finna það út eftir meðfylgjandi mynd, sem erfitt var að ná sökum lognsins sem var í morgun.
Mánudagur 23. ágúst 2004 Ein gömul: Úr safni Júlíusar Júlíussonar Tveir stórlaxar: Ottó Jörgensen með góðan feng.
Mánudagur 23. ágúst 2004 Golfklúbbur Siglufjarðar.
Félagar klúbbsins voru margir á golfvellinum í gær og létu hellirigningu sem brast á um klukkan 15:00 (sem stóð stutt yfir) ekkert á sig fá og einn golfarinn svaraði er ég kallaði til hans: "Það rignir" - og svarið kom um hæl: "Hvað er það þó rigni tvisvar á ári"
Mánudagur 23. ágúst 2004 Skógræktin: Skógardagur á Siglufirði var haldinn hátíðlegur frammi í Skógrækt með smá dagskrá í gær. Sýndur var nýr göngustígur sem verið er að vinna að ásamt erlendum gestum okkar, Veraldarvinum. Þeir eru rúmlega 20 og hafa verið og eru að vinna í skógræktinni og víðar á Siglufirði. Stutt ávörp voru flutt og boðið upp á veitingar, harmonikkuspil og fleira. Ég mætti á staðinn og tók þar myndasyrpu sem þú sérð með því að smella HÉR
Mánudagur 23. ágúst 2004 Mikael e.h.f. Þeir eru á fullu við undirbúning að uppslætti við brúarstólpa starfsmenn Mikael, vegna brúargerðar við Fjarðarána (Hólsá)- Þessi mynd var tekin í gær er verið var að jafna steinstólpana sem áður höfðu verið reknir 10-12 metra niður í jarðveginn, en umhverfis þá verður slegið upp móti fyrir steinsteypta sökkla.
Grafan er austan megin við ána. Hægri myndin sýnir núverandi farveg vestan megin og steinstólpana þar. (myndirar hér fyrir neðan)
Mánudagur 23. ágúst 2004 Berlínarmúr eða gyðingamúr ? Miklar umsviptingar eru vegna vegaframkvæmda á Hávegi og Hverfisgötu, þar sem verið er að byggja stoðveggi við Hólaveg annarsvegar og einnig stoðveggi vegna breytingar á Hverfisgötu úr blindgötu í gegnumstreymi. Það sem vakti athygli mína er ég kom á vettvang í morgun og sá stoðvegginn sem búið er að reisa vegna lengingar Hverfisgötu. Til hvers er veggurinn hafður svona hár ? Að minnsta kosti 80-90sm hærri en núverandi malbikaður vegur ? Hversvegna er vegurinn ekki látinn halla í suður meira til að samræmast húsaröðinni fyrir neðan götuna? Það hljóta fleiri en ég hafa spurt sjálfan sig og aðra svipaðra spurninga. Auðvitað eru stoðveggir nauðsynlegir á þessu svæði, en máltækið segir "Palli er ekki einn í heiminum." Þetta minnir mig á "fram og aftur stefnuna" þegar veginum var breytt fyrir ofan húsið mitt við Hvanneyrarbraut 80, þar sem hæðarpunktar og línur voru á stöðugu flakki og endaði með óþarflega háum vegi og stoðvegg. Sjá fleiri myndir sem teknar voru í morgun, með því að smella HÉR
Mánudagur 23. ágúst 2004
Íslenskir aðalverktakar, sem tóku að sér að reisa stoðmannvirkin til varnar vegna snjóflóða fyrir ofan norðurbæinn. Verkið hefur gengið vonum framar, raunar svo vel að núverandi staða er tveim mánuðum á undan áætlun og klárast að heita má um næstu helgi.
Verkstjórinn Reynir Þór Reynisson segir það hafa verið hreina umbun að hafa fengið að vinna við þetta verk í þeirri veðurblíðu, auk lognsins sem þeir hafa notið í sumar, raunar má segja að það eina sem hafi "háð þeim," var of mikill hiti, sem komst upp í 30 °C þegar heitast var í forsælu .
Svo hefur það ekki skemmt, sú jákvæða þjónusta sem þeir hafa fengið eftir hjá heimamönnum, S.R-Vélaverkstæði, Bás e.h.f. og fleirum, sem leitað hefur verið til. Ég fór á vettvang í dag og tók nokkrar myndir í fjallinu. Smelltu HÉR
Þriðjudagur 24 .ágúst 2004
Ein gömul:
Jólin undirbúin um borð í Haferninum úti á „miðju“ Atlantshafi árið 1967; Guðmundur Björnsson og Snorri Jónsson
Þriðjudagur 24 .ágúst 2004
Varðandi "Berlínarmúrinn" sem ég sagði frá í gær og hefur komið mörgum "brott fluttum" Siglfirðingum á óvart ef marka má þann fjölda tölvupósta sem ég hefi fengið.
Mér var bent á skipulagskort af þessu svæði í vefnum: http://kort.siglo.is/files/Siglo-deili-havegur%20A1-500.pdf sem skýrir málið, en í umræðunni hér áður fyrr var að framlenging Hverfisgötunnar mundi vísa niður á við með líðandi sveig niður á Suðurgötu, en verkfræðingarnir, eða eigum við að segja snillingarnir, tóku upp á því að sveigja veginn upp á Háveg, í stað niður á Suðurgötu og með því rjúfa nálæg tengsl milli tveggja Hverfisgata. Til glöggvunar þá merkti ég húsið hans Einars Hermannssonar með rauðum lit og húsið hennar Rönnu með bláum lit, þar sem stoðveggurinn er sem hæstur. Græni liturinn merkir línu núverandi stígs frá Suðurgötu upp á Háveg. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri
Þriðjudagur 24 .ágúst 2004
Það óhapp varð rúmlega 6 í gærkvöld, að jarðýta fór á hliðinn í hlíðina ofan við bæinn þar sem verið var að vinna við snjóflóðavarnargarðana.
Ýtan mun hafa skransað á stórum steini og við það snúist snögglega og farið á hliðina án þess að renna frekar til. Engin slys urðu á mönnum.
En Suðurverksmenn voru ekki lengi að koma ýtunni á réttan kjöl, þeir kunna til verka drengirnir.
Þriðjudagur 24 .ágúst 2004 Athugið, - samkvæmt upplýsingum sem ég fékk á vettvangi, um óhappið sem varð í gærkveldi með ýtuna (hér fyrir ofan) þá voru þær ekki með öllu réttar, en mér var sagt á vettvangi, að ýtan hefði verið uppi á brúninni, og gat ég þess hér fyrir ofan (búinn að taka það út) að ýtan hefði runnið um 50 metra niður hlíðina, SEM VAR RANGT.
Ýtan valt einfaldlega hægt og rólega á hliðina, án þess að renna neitt til. Beðið er velvirðingar á þessum mistökum, sem byggjast á röngum upplýsingum, manns sem var að hans sögn sjónarvottur að atvikinu, það er verið á vettvangi þegar óhappið varð, þar sem ég hitti hann skömmu eftir óhappið átti sér stað.
Miðvikudagur 25. ágúst 2004
Hólsbrúin -
Mikael ehf Þeir eru komnir á fulla ferð við uppsláttinn vegna brúarsmíði yfir Hólsána.
Þessi mynd var tekin seint í gærkveldi.
Miðvikudagur 25. ágúst 2004
Borgarísjaki og smá íshrafl í kringum hann er nokkuð djúpt út af Siglufirði í morgun.
Sennilega um 10 mílur frá landi.
Fimmtudagur 26. ágúst 2004 Ein gömul: Ekki þekki ég þær allar svo ég nefni þær ekki, en karlmaðurinn; þjálfarinn er Einar Hjartarson - 1964 +/-
Fimmtudagur 26. ágúst 2004 Borgarísjakinn sem ég tók mynd af í morgun hafði færst aðeins austar og nær landi og sást betur þrátt fyrir mistur í kvöldsólinni í gær. Myndin til vinstri er tekin ofan frá snjóflóðagarðinum norðast, hin frá gangnamunna að austan.
Fimmtudagur 26. ágúst 2004 Þessi mynd er tekin seinnipartinn í gær, sunnan til á snjóflóðagarðinum ofan við norðurhluta bæjarins. Það sést vel gímaldið sem er fyrir ofan garðinn, einnig "plastfellingar" sem raðað er og fyllt í vegna efsta hluta garðsins til styrkingar.
Fimmtudagur 26. ágúst 2004 Hólsáin
Mikael ehf - Fyrsta steypumálið var losað í morgun í mótin vegna brúar smíðinnar yfir Hólsána.
Fimmtudagur 26. ágúst 2004
Veiðarfæri í skrúfuna (?) Röst SK 17 (sá rauði) kom í hádeginu með Ólaf Magnússon HU 54 sér við hlið inn til Siglufjarðar.
Veiðarfæri þess síðarnefnda voru úti að hluta og benti til festu í skrúfu eða stýri.
Fimmtudagur 26. ágúst 2004
Girðingavinna. Þetta er Hreinn Júlíusson við girðingarvinnu í botni Skarðdals laust eftir hádegið. Hann var með ungan aðstoðarmann: Hilmar Símonarson
Fimmtudagur 26. ágúst 2004 Veraldarvinir voru að vinna í Skógræktinni eftir hádegið í dag, þeir stilltu sér upp ásamt Arnar Heimi Jónssyni garðyrkjufræðingi og Guðmundi Ingólfssyni bæjarstarfsmanni. Þetta er hluti hópsins, hinir "áttu að vera" var mér sagt við Þjóðlagasetur í Maddömuhúsinu, en þar fann ég þá ekki, svo ekki koma myndir af þeim hóp að sinni. --- Og fossinn fallegi í Skógræktinni, Leyningsfoss heitir hann í tali flestra og í örnefnaskrám - örfáir segja að hann heiti Kotafoss og gæti þá vísunin verið til Skarðdalskots - en Leyningsfoss er fallegt nafn og hæfir honum vel því þarna sunnan við Leyningsá er jörðin og gamla býlið Leyningur (heimildir ÖK- ofl.)
Fimmtudagur 26. ágúst 2004 Aðsent: - K.S. í baráttu um 1. deildar sæti. KS tekur á móti Aftureldingu n.k. laugardag kl. 16.00 á Hólsvelli. Leikurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir KS og með sigri er mögulegt að 1. deildar sæti sé tryggt, þ.e. ef úrslit í öðrum leikjum verða hagstæð. Þrjú lið berjast nú um 1. deildar sæti og athyglisvert er að skoða þá leiki sem eftir eru: KS er i öðru sæti deildarinnar eins og er, og 1. deildarsæti er tryggt ef við sigrum í báðum leikjunum. Við hvetjum fólk til þess að fjölmenna á völlinn á laugardaginn og hvetja okkar menn í þessari baráttu. Óhætt er að mæla með leikjum KS sem hefur skorað að meðaltali yfir 3 mörk í leik, en liðið hefur skorað 49 mörk í sumar. nn
Föstudagur 27. ágúst 2004
Ein gömul:
Birgir Runólfsson (tilhægri) ásamt einum af bílstjórum sínum.
F-148
Ljósmynd: Júlíus Jónsson
Laugardagur 28. ágúst 2004
Skipt um brunahana.
Þarna eru bæjarstarfsmenn að skipta um brunahana í morgun.
Það er dýrt að vinna við slíkt í yfirvinnu- en dýrara væri það ef ónothæfur brunahani torveldaði slökkvistarf ef bruna bæri að í nágrenninu, en nógur er þar eldsmaturinn. Verkið gekk vel eins og til var ætlast.
Laugardagur 28. ágúst 2004 -- 3:1 Fyrir K.S. K.S. og Afturelding léku á Hólsvelli í dag. Leiknum lauk með sigri K.S. --- Vegna fjölda áskorana- þá lét ég mig hafa það að mæta með myndavélina og tók slatta af myndum. Veðrið var hálf hráslagalegt, norðan 10-12 m/s og gekk á með skúrum. Ég yfirgaf völlinn í hálfleik, en þá var staðan 1:1 - Myndirnar sem ég tók, þokkalegur slatti koma á netið í fyrramálið.
Sunnudagur 29. ágúst 2004 - Eins og kom fram í gær, þá tók ég slatta af myndum frá fyrri hálfleik K.S. og Aftureldingar- og birti ég þær nú. Ég ætla ekki að reyna að lýsa leiknum eða því sem á myndunum er, enda yrði það hálfgert rugl úr mínum "munni," þar sem þekking mín á fótbolta er engin. En hvað um það, þessar 80 myndir sem í ljós koma ef þú smellir HÉR, hljóta að segja þér eitthvað.
Laugardagur 29. ágúst 2004 Ein gömul: Landað úr togara.
Jóhann Stefánsson, Þorvaldur Þorleifsson og Erlendur Jónsson
Sunnudagur 29. ágúst 2004 Íslenskir aðalverktakar. Starfsmenn þeirra sem unnið hafa að undanförnu við snjóflóðavarnargirðingar hér í Siglufirði, héldu í gærkveldi reisugildi í tilefni að velheppnuðu verki í sumar og gerðu sér glaðan dag með tilheyrandi. Þeir skutu einnig upp flugeldum og tendruðu blys á stöllum snjóflóðagirðinganna.
Ég varð aðeins of seinn til vegna myndatöku, þar sem ég frétti ekki af atburðum fyrr en eftir að allt byrjaði, sem og flugeldasýningin- það er til að sjá dýrðina, en náði þó þessari mynd.
Sunnudagur 30. ágúst 2004 Ein gömul:
Söltunarsíld (léleg) lestuð á bíl frá veiðiskipi. Málið losar; Ómar Hauksson.
Mánudagur 30. ágúst 2004 Ein gömul: Bjarni Þorgeirsson og Halldór Kristinsson, málarar
Sunnudagur 29. ágúst 2004 -- Morgunblaðið á netinu & Veðurstofa Íslands -- Yfirlitskort af jarðhræringunum úti fyrir Norðurlandi frá kl. 12:02 í dag.
Jarðskjálftahrina úti fyrir Norðurlandi hófst síðastliðinn föstudag úti fyrir Norðurlandi um 22 km norðnorðaustur af Siglufirði.
Hrinan fór rólega af stað, en frá kl. 1:00-14:00 í gær náði hún hámarki, að því er segir í tilkynningu frá eðlisfræðisviði Veðurstofunnar.
Þá mældust stærstu skjálftarnir í hrinunni til þessa, 2,8 að stærð. Um klukkan 6 í morgun tók virknin aftur við sér, en þó ekki eins ákaft og í gær.
Nú þegar hafa mælst yfir 120 jarðskjálftar á svæðinu.
Skjálftavirkni á þessum slóðum er algeng.
Í september 2001 varð hrina á sama stað þar sem mældust yfir 120 jarðskjálftar og stærsti skjálftinn var 3,6 að stærð.
Mánudagur 30. ágúst 2004 Þormóður Rammi Sæberg hf -
Bolfiskvinnsla hefur verið í húsakynnum Þormóðs Ramma að undanförnu. Þetta hefur gengið vel og gert er ráð fyrir að þetta verði áfram stundað á vetri komanda, segir rekstrarstjórinn Rúnar Marteinsson. Fiskurinn kemur að mestu frá markaði, svo og frá skipum útgerðarinnar í Þorlákshöfn. Þetta eru góðu fréttirnar. Meðfylgjandi mynd er frá bolfiskverkuninni sem er í rúmgóðu og vistlegu vinnusvæði- og þar vinna 7 manns við verkun, konur og karlar. Ég tók fleiri myndir þarna í morgun, smelltu HÉR.--
En það hafa einnig borist slæmar fréttir, en yfirmönnum á rækjuskipunum Stálvík og Sólberg, sem gerð hafa verið út frá Siglufirði hefur verið sagt upp störfum vegna ört minnkandi rækjuveiði og hás olíuverðs.
Þegar ég spurðist fyrir um frekari breytingar vegna skipa fyrirtækisins hjá framkvæmdastjóra, var mér vísað á vefsíðu fyrirtækisins www.rammi.is þar sem ofanritaðar upplýsingar um slæmar fréttir, eru fengnar.
Þriðjudagur 31. ágúst 2004
Ein gömul:
Gunnar Guðmundsson og Ólafur Jóhannsson, í Siglufjarðarrétt.
Þriðjudagur 31. ágúst 2004 Aðsent efni:
Sæll Steingrímur. - ég sendi þér krækju á myndaseríu sem ég tók á Sigló þegar forsetinn og fleiri ráðamenn komu í heimsókn í tilefni 100 ára síldveiðarmælisins. Bið ég þig að skoða. Mig langar að vita hvernig þér líkar og hvort við gætum samið um að þú gæfir upp þessa krækju á heimasíðu þinni sem fjöldi Siglfirðinga sækir. Sjálfur hef ég ekki komið mér upp heimasíðu. Kveðja. Guðmundur Albertsson ---
Click the following link to view the collection http://www.photodex.com/sharing/viewalbum.html?bm=46210 This album is empty. There's nothing to see here. Skilboð sem upp koma í dag 2018