Lífið 9.-15. Janúar 2005   

Fréttavefurinn Lífið á Sigló  

9. til 15. janúar 2005

Sunnudagur 9. janúar 2005 

Siglfirskt leiklistafólk: Ólöf Daníelsdóttir, dóttir Guðnýjar Páls kennara og Hrólfur Baldursson, sonur Baldurs Bóassonar og Hrólfdísar.  Þau hafa verið að gera það gott í leiklistinni. Meðal annars tóku þau þátt í síðastliðnu Áramótaskaupi hjá Sjónvarpinu.       Aðsent: H.G.- Ljósmyndari "ókunnur"   

Sunnudagur 9. janúar 2005  Ein gömul:  

Kristján Ásgrímsson að vitja um netin sín inni á Siglufirði, í júlímánuði 1965  

Sunnudagur 9. janúar 2005 -- 8. janúar 2005 af síðu HAFRÓ : Loðnuleit og yfirstandandi mæling á loðnustofninum. Eins og kunnugt er hélt rannsóknarskipið Árni Friðriksson ásamt 9 loðnuskipum til leitar og mælinga á loðnumiðum þann 4. janúar s.l. Leitarsvæðið náði frá því út af sunnanverðum Vestfjörðum norður og austur um á móts við Norðfjarðarflóa. Út af Norðurlandi fannst loðna á 100 sjómílna löngum kafla frá því norður af Melrakkasléttu vestur og norður fyrir Kolbeinsey. ----    Vonandi fá Siglfirðingar að njóta einhvers loðnuafla sem þarna kann að veiðast. SK 

Sunnudagur 9. janúar 2005 

Ekki hefur orðið vart snjóflóða fyrir ofan Siglufjarðarkaupstað í þessum hríðahaglanda að undanförnu, enda virðist lítill snjór  í fjöllunum miðað við láglendið og dali.

 Það sást að vísu ekki á meðan snjóaði- og ekki er að efast um að fólkið sem býr í skjóli snjóflóðavarnargarða í suður og norðurbænum hafa sofið rótt, vitandi um þá vörn sem þeir kunna að veita ef snjóflóð fara af stað - og sennilega þess vegna, þurfti engin hús að rýma á Siglufirði eins og á Vestfjörðum.  

Þó féll snjóflóð á Siglufjarðarvegi í morgun, sem lokaði veginum um stund. 

Myndin hér af byggðinni neðan við Stóra bola og Litla bola, var tekin klukkan 11:30 í dag  

Mánudagur 10. janúar 2005 

Ein gömul:  

Þorleifur Hólm og Þorleifur Jóhannesson. 


Myndin er tekin við aðalinnganginn  í forstofu gamla Sjúkrahússins 19. febrúar 1964 

 Mánudagur 10. janúar 2005  


Aðsend mynd:  


Saumaklúbburinn Siglósystur; Kópavogur 8. janúar 2oo5. 

Aftari röð: Solveig Helga, Stína, Mumma, Hulda, Bylgja, Olla og Gústa.

Fremri röð: Anna Laufey, Kittý, Guðný, Unnur, Guðrún Inga og Gitta. 

Kveðja, + Ljósmynd Hulda G Kristinsdóttir

Mánudagur 10. janúar 2005 --  Aðsendur fróðleikur: 

Ég var að lesa ágætar hugleiðingar þínar um snjó og hugsanlega snjóflóðahættu. Ástæða þess að ekki hefur verið rýmt hér vegna snjóflóðahættu eins og fyrir vestan er fyrst og fremst sú að hér hefur ekki viðrað jafn illa og snjóalög eru mun stöðugri en þar vestra.  ----  Snjóeftirlitsmenn fara reglulega og þegar þörf krefur til snjóathugana í Hafnarfjalli ofan við miðjan bæinn þar sem varnir vantar ennþá - niðurstaða athugana síðustu vikna hafa bent til þess að snjóalög væru fremur traust og virðast fjöllin sjálf staðfesta það þar sem við höfum ekki séð nein snjóflóð utan tveggja úr bröttum giljum á Strandarvegi. Og er þar mikill munur á og þeirri miklu snjóflóðahrinu sem gekk yfir Vestfirði í síðustu viku.  -----  En ekki er skortur á snjónum hér; á láglendi og í bænum er snjór mikill miðað við árstíma eða 65-70sm jafnfallið á sléttlendi - í Hafnarfjalli er snjódýpt við mælistangir 70-380sm. Vildi senda þér þetta til fróðleiks. Kveðja, Ö.K. 

Mánudagur 10. janúar 2005 Loðna: Óvissa um áform Hafró, samkvæmt frétt RÚV 

Loðnuvertíðin hefur farið þokkalega af stað en útgerðir loðnuskipanna bíða í ofvæni eftir frekari upplýsingum frá Hafrannsóknastofnun um aukinn loðnukvóta. Stofnunin tilkynnti í gær að ljóst væri að svo mikið hefði fundist af loðnu að fyrirsjáanlega verði hægt að auka loðnukvóta verulega. Björgólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, spyr hvað felist í þessum skilaboðum Hafró. ----  Hvað er veruleg aukning loðnukvótans? Þetta er stóra spurningin sem útgerðarmenn og sjómenn loðnuflotans spyrja sig nú. 

       Hafrannsóknastofnun tilkynnti í gær um leiðangur rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar fyrir norðan land; fundist hefði mikið af loðnu á stóru svæði og ljóst væri orðið að svo mikið sé af loðnu þar að fyrirsjáanlega verði hægt að auka útgefinn loðnukvóta verulega. Ekki fylgdu frekari upplýsingar né skýringar á hvað átt væri við með þessu orðalagi og því velta menn nú fyrir sér. Björgólfur Jóhannsson er framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, stærsta fyrirtækisins í uppsjávartegundum. Honum líst ekki illa á byrjun vertíðarinnar.

      Skipstjórar Síldarvinnslunnar telja vænlega horfa um vertíðina, segir Björgólfur, en engu að síður veltur allt á niðurstöðum Hjálmars Vilhjálmssonar fiskifræðings og leiðangursstjóra á Árna Friðrikssyni en mælingum á að ljúka um miðja vikuna. Og Björgólfur segir ekkert vitað enn um framhaldið. 

Ókunnir ljósmyndarar

Mánudagur 10. janúar 2005  --  Aðsent:  

Gleðilegt ár og þakka hlýja kveðju! Ég fór í gær 2. janúar í heimsókn til Valbjörns Þorlákssonar í Reykjavík. Valbjörn er eins og margir vita Siglfirðingur en þjóðþekktur sem afreksmaður í íþróttum, tugþraut og stangarstökki sérstaklega og vann til ótal verðlauna á innlendum og alþjóðlegum íþróttamótum. Tók m.a. þrisvar átt í Ólympíuleikunum. Þarna sat ég hjá honum og ræddi við hann um þann áhuga hans og vilja að allir gripir og upplýsingar um íþróttaafrekin fari norður í heimabæinn. 

Á eldhúsborðinu á milli okkar lá níðþungur pappakassi fullur af medalíum. Auk þess tveir stórir kassar af bikurum niðri í kjallara.
Enn heldur hann sér enn í góðu formi og varð heimsmeistari á heimsmóti öldunga 69 ára gamall. Þess má geta svona aukreitis að Valbjarnarvöllur í Laugardal heitir eftir honum.

 Í stjórn Fáum hefur oft verið rætt um nauðsyn þess að setja upp sýningu um mannlífið í síldarbænum, hvað fólkið aðhafðist milli síldarvertíða og hvernig menn þreyðu langa og dimma vetur. Þar væri t.d. fjallað um karlakórinn Vísi, leiklistarstarfsemi og síðast en ekki síst skíðaíþróttina sem Siglfirðingar voru svo frægir fyrir.   

Þar gæti tengst sagan um Valbjörn Þorláksson.  -- Kær kveðja! Örlygur Kristfinnsson ---

Þetta líst mér vel á, ég er einn af þeim sem þekki sögu Valbjarnar hér heima á unglingsárunum, enda má segja að við höfum verið óaðskiljanlegir vinir þar til hann fór héðan 15 ár að aldri. Valbjörn, ef þú lest þetta, þá endilega hafðu samband og komdu norður í heimsókn, þú getur gist hjá mér, nóg pláss. Þakka þér fyrir Örlygur.    --  Steingrímur 

Valbjörn Þorláksson -- ljósmyndari ókunnur

Valbjörn Þorláksson -- ljósmyndari ókunnur

Mánudagur 10. janúar 2005  Loðna er væntanleg til Siglufjarðar öðru hvoru megin um miðnættið.   En von er á Hugin VE 55 með ?? (1000 tonn)  

Þriðjudagur 11 .janúar 2005 


Ein gömul: 

  Fótboltakappleikur 1965. KS og?

Á "áhorfendasvæðinu" (Túngötunni) sjást meðal annars Gústaf Þórðarson, Aage Schiöth og Karl Magnússon.

Fótboltakapparnir tveir fyrir miðju, sýnist mér vera Gunnar Guðmundsson og Konráð Baldvinsson. (?)  

Þriðjudagur 11 .janúar 2005   

Aðvörun / ábending: 

Nú undanfarið hefur borið á allmiklum klaka víða á húsum, jafnt húsum einstaklinga, verslunum og annarra fyrirtækja. 

Eigendum húsa er bent á að hreinsa klaka sem safnast ofan við dyr og gangvegi húsa sinna, því skaðabóta ábyrgðin, ef slys verða af völdum klakahruns, hvílir á húseigendum. 

Fólk er hvatt til að gæta sín og horfa upp fyrir sig þegar það gengur undir þakskegg. Þessi mynd var tekin í gærkveldi eftir ábendingu um þessa hættu, en víða eru klakahlussurnar margfalt hættulegri og stærri en þessi sem var mér nærtökust.  

 Þriðjudagur 11 .janúar 2005 -- Huginn VE 55 kom  til Siglufjarðar með fyrstu loðnuna á árinu rétt rúmlega 12 á miðnætti. Þetta voru um 700-800 tonn sem komið var með til vinnslu á 1. flokks úrvalsmjöl hjá Síldarvinnslunni.  --  Forseti bæjarstjórnar, Guðný Pálsdóttir færði skipstjóranum og skipshöfn tertu frá bæjarbúum eins og venja hefur verið er fyrsta loðnan (og síldin) kemur á hverri vertíð.    - -Þá lumaði Andersen á einhverju góðu í tilefni komunnar. Huginn mun að lokinni löndun fara til Dalvíkur og losa þar frosna loðnu, sem var hluti heildaraflans.  - Og með morgninum er Börkur NK einnig væntanlegur með 1600 tonn af loðnu til bræðslu hjá Síldarvinnslunni á Sigló  ---  skrifað kl. 00:45      

Huginn VE 55

Guðný Pálsdóttir, Skipstjórinn og Þórður G Andersen

Þriðjudagur 11 .janúar 2005  --  Börkur NK 122 kom klukkan 10:10 í morgun með 1600 tonn af loðnu til bræðslu hjá Síldarvinnslunni á Siglufirði.  Ég tók þar meðal annars nokkrar myndir á bryggjunni og víðar. 

Smelltu HÉR 

Miðvikudagur 12. janúar 2005  -   Ein gömul:   

Síldin metin af "áhugamönnum", sumarið 1965.  Á myndinni eru ma. Friðjón Vigfússon faðir Vigfúsar, Bjarni Þorsteinsson,  Kristján Möller (guttinn) , Vigfús Friðjónsson, Haraldur Árnason (Shell) Halldór Kristinsson ofl. 

Miðvikudagur 12. janúar 2005  

  Það er keðjuverkandi og atvinnuskapandi viðburður þegar loðna berst til lítils byggðarlags eins og Siglufjarðar. Því það eru fleiri en karlarnir í bræðslunni sem njóta góðs af; verslun eykst og oft fá iðnaðarmenn vinnu vegna allskonar þjónustu við loðnuskipin og síðar þeir sem vinna að flutningi afurðanna - og ekki má gleyma Hafnarsjóði og Bæjarkassanum. 

 Á myndinni eru Sigurður Fanndal og Anton Sigurbjörnsson hjá Verslunarfélagi Siglufjarðar að taka til "kostinn" sem fór um borð í loðnuskipið Börk NK 122 sem landaði í gærdag 1600-1700 tonnum af loðnu til Síldarvinnslunnar á Siglufirði.  

Fimmtudagur 13. janúar 2005  --  Ein gömul: 

Höfrungur III AK Þetta var algeng sjón á árunum 1965 ma. er þessi mynd var tekin, að bátarnir kæmu svona vel hlaðnir að landi. 

Þarna kemur Höfrungur með fullfermi af síld, sem þætti ekki mikill afli í dag þar sem loðnu/síldarskipin (ekki bátar) bera í dag það mikið að svona afli væri bara smá slatti sem vart tæki að eyða olíu á til að koma með að landi.  

 Fimmtudagur 13. janúar 2005 --  Samfylkingin hélt almennan stjórnmálafund að Kaffi Torg í gærkveldi, á fundin mættu um 60-40 manns. Þá var rétt fyrir sjálfan fundinn, stofnuð deild innan Landssamtaka Samfylkingarinnar 60+sem eru samtök sem á að berjast sérstaklega fyrir hagsmunum 60 ár og eldri. Í stjórn deildarinnar voru kosin Sveinn Björnsson formaður - Sjöfn ? og Sveinn Þorsteinsson.  Varamenn Guðný Friðfinnsdóttir og Hafþór Rósmundsson. 

Af stjórnmálafundinum sjálfum er það að segja, að hann var nokkur fjörugur og forkólfarnir Össur Skarphéðinsson og Kristján Möller urðu að svara mörgum spurningum, sem og var höfuðtilgangurinn með fundarhaldinu. 

Ég ætla ekki að fjölyrða nánar um efni spurninga og svara, nema það að Össur Skarphéðinsson sagði; Að þó svo að hann mundi tapa atkvæðum á því í sínu kjördæmi í næstu alþingiskosningum, þá mundi hann berjast með oddi og egg fyrir því að jarðgöng um Héðinsfjörð til Ólafsfjarðar yrðu að veruleika, færi svo að núverandi stjórnvöld svikju gefin loforð enn einu sinni." Þetta er ekki orðrétt eftir haft, en þessa merkingu lagði ég í orð hans- og þótti athyglivert.                   Smelltu á HÉR    

 Fimmtudagur 13. janúar 2005   -- Smábátarnir voru að mokfiska á línu í dag, flestir lögðu af stað í róður upp úr miðnætti og lögðu þeir stærstu, línu sína allt að 40 bala. Bátarnir fóru að týnast inn eftir hádegið í dag, með afla frá 2 til 11 tonnum. Myndin sýnir Jonna SI 86 að koma um kl. 16:00 með 10-12 tonna afla. Veður var mjög hagstætt í dag, fyrsti róðrardagurinn eftir undanfarna ótíð. Ýmist var lagt upp hjá Þormóði Ramma – „Guðrún María Fiskverkun“, eða á Fiskmarkað Siglufjarðar. -- 

Ég tók nokkrar myndir við höfnina í dag sem þú sérð ef þú       Smelltu HÉR 

Föstudagur 14. janúar 2005   -  

Ein gömul: 

 "Að raða tunnum" var það kallað þegar söltun var undirbúin og oft voru það ungir drengir sem sóttust í að fá að gera þetta sér til gamans, að raða tunnum við síldarkassana - án greiðslu.  

Þessi mynd er tekin á Pólstjörnuplaninu 1965 

Föstudagur 14. janúar 2005 

Snjór og aftur snjór

Ef miðað er við síðustu tvö til þrjú árin, þá hefur talsverðum snjó kyngt niður í Siglufirði. Bæjarkarlarnir hafa verið duglegir við að hreinsa snjóinn af götum og sléttum. Þeir höfðu í nógu að snúast þegar snjóaði dag eftir dag síðustu vikna, en aldrei tókst snækónginum að gera neinar götur ófærar innan bæjarins því þeir "stungu í gegn" jöfnum höndum - 

Og nú þegar hætti að snjóa og í blíðunni í gær voru öll tæki á fullu við að "fínpússa" verkið og hreinsa göturnar. Nú eru allar götur eins og best verður á kosið á þessum árstíma. Ég tók "stóran hring" innan bæjarmarkanna og tók slatta af myndum fyrir þá sem heima sitja og brott flutta.   

Smelltu HÉR

Föstudagur 14. janúar 2005 

Úr fundargerð Bæjarráðs, í lok ársins 2004:

Bæjarráð Siglufjarðar leggur til við nefnd félagsmálaráðuneytis um sameiningu sveitarfélaga að kosið verði um sameiningu allra sveitarfélaga í og við Eyjafjörð, þ.e. að eftirfarandi sveitarfélög verði sameinuð í eitt; Siglufjarðarkaupstaður, Ólafsfjarðarbær, Dalvíkurbyggð, Akureyri, Grýtubakkahreppur, Hörgárbyggð, Grímsey, Arnarneshreppur, Eyjafjarðarsveit og Svalbarðsstrandarhreppur. Þátttaka Siglufjarðarkaupstaðar í slíkri sameiningu er algjörlega háð því að tryggð verði betri vegtenging staðarins við Eyjafjörð með Héðinsfjarðargöngum. - Og her er umsögn Ólafsfirðinga um sama mál   

  Þessi tengill til síður Ólafsfjarðar er ekki lengur til staðar, nú árið 2016 þegar þessi hluti var uppfærður og efnið ekki heldur finnanlegt á www.fjallabyggd.is vef hins sameiginlega sveitarfélags, Siglufjörður & Ólafsfjörður 




Föstudagur 14. janúar 2005  

Olíuskipið Keilir kom hér í morgun með olíu til losunar hjá Olís 

Föstudagur 14. janúar 2005   

Tilkynning vegna landssöfnunarinnar “Neyðarhjálp úr Norðri”.  

Stjórn Knattspyrnufélags Siglufjarðar hefur ákveðið að innheimta ekki æfingagjöld yngri flokka vegna vorannar 2005 og hvetur þess í stað foreldra barna hjá félaginu að hringja í söfnunarsíma og láta andvirði æfingagjalda renna til landssöfnunarinnar “Neyðarhjálp úr Norðri” vegna hamfaranna í Asíu.  

Með þessu vill félagið sýna stuðning sinn í verki við þau samfélög sem búa nú við hörmulegar aðstæður í kjölfar hamfaranna. 

Smelltu HÉR >  https://www.mbl.is/mm/folk/serefni/nhjalp/index.html 

Laugardagur 15. janúar 2005 - 

  Snjóhaugarnir minnka. 

 Í gær var unnið að því á mörgum stöðum, að minnka snjóhrúgurnar sem safnast hafa fyrir á undaförnum vikum við það að halda götum bæjarins færum. Stórvirkar gröfur komu snjónum fyrir á stórum bifreiðum sem síðan sturtuðu snjónum í sjóinn. 

Þetta gekk vel og mikið gekk á haugana. Hláka var og rigning allan daginn í gær með 4-6 °C hita. 


Laugardagur 15. janúar 2005 

Áskell EA 48 1807 kom í morgun með um 1000 tonn af loðnu til löndunar hjá Síldarvinnslunni.

Komin eru til Siglufjarðar rúm 3400 tonn af loðnu til bræðslu. 

Flestir smábátarnir fóru í róður til að leggja línu í nótt og í morgun 


 Laugardagur 15. janúar 2005 

 Eftir hádegið í dag fór fram í Sundhöll Siglufjarðar óvenjuleg sundkeppni. Þar voru saman komin félagar úr Starfsmannafélagi Heilsugæslunnar á Siglufirði. 

Allir sem ekki voru bundnir við störf það augnablikið. 

Tilgangurinn var að halda sér glaðan dag, sem svo sannarlega tókst. Keppt var í ýmsum greinum sundsins og síðan fengu þau sér holla næringu á eftir ofl. 

Ég mætti á staðinn og tók slatta af myndum eins og venjulega, sem þú sérð með því að smella HÉR