Hvanneyrarskál og

Sunnudagur 31. júlí 2005    -  Hvanneyrarskál - Síldarævintýrið 

Fjallahringurinn og byggðin kynnt fyrir gestum : Hreinn Júlíusson - og smá bænastund með séra Sigurði Ægissyni  í morgun klukkan 11:30 - 13:00  

Blíðskapa veður, hiti og sól. Það eina sem vantaði var magnarakerfi eins og verið hefur til reiðu undanfarin ár - en af einhverjum sökum hefur stjórnendum Síldarævintýrsins ekki komið búnaðinum á vettvang, sem háði það mjög heyrnadaufum og þeim sem fjærst voru, vegna þess fróðleiks sem sumir misstu af þegar Hreinn Júlíusson miðlaði gestum nöfnum og kennileitum fjallahringsins okkar og fleira bænum tengt.  -   Og einnig háði það bænastund þeirri sem Sigurður Ægisson stjórnaði.  

En allir nutu þó þessarar heimsóknar í Hvanneyrarskálina.