Sunnudagur 22. janúar 2006
Ein gömul:
Sundlaug Siglufjarðar, var byggð í NORÐURBÆNUM á sínum tíma, þar sem staðsetningin á þeim tíma þótti heppilegri en í nánd við gömlu sundlaugina sem var í SUÐURBÆNUM,-
Og enginn í suðurbænum fór í fýlu. Og þá er það stóra spurningin: Verður Siglufjarðarsvæðið í framtíðinni kallaður VERTURBÆRINN og Ólafsfjarðarsvæðið AUSTURBÆRINN ?
Ljósmynd: Haraldur Sigurðsson
Sunnudagur 22. janúar 2006 Nægur snjór og mikið fjör á skíðasvæðinu í Skarðsdal var í gær sagði Hrönn Einarsdóttir, sem sendi mér þessar tvær myndir hér fyrir neðan sem hún tók þar í gær.
Sunnudagur 22. janúar 2006
Pílukastmót var í Allanum-Sportbar í gærdag og fram á kvöld. Góð þátttaka var, fólk á öllum aldri og báðum kynjum. --
Ég leit þar aðeins inn í gærdag og við verðlauna afhendinguna um kvöldið.
Sunnudagur 22. janúar 2006
Aðsent: - Sæll Steingrímur, -- Ég var á þorrablóti í gærkvöldi í Breiðfirðingabúð en það var á vegum Breiðfirðingafélagsins, og tók Guðjón sonur minn meðfylgjandi mynd af hljómsveitinni Miðaldamönnum frá Siglufirði sem spiluðu fyrir dansi frá 22:00 til 03:00 -- kær kveðja Júlli Jóns.
ES. myndin er tekin á "farsíma" --- Tengill á Breiðfirðingasíðuna
Mánudagur 23. janúar 2006 -- Fyrsti fundur í Félagi eldri borgara á Siglufirði og í Fljótum var haldinn í gær. Þar var til umfjöllunar: Almenn fundarstörf - tillögur um nýja stjórn - Önnur mál - Runólfur Birgisson mætti á fundinn og sagði frá stöðu mála varðandi sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar - Danshópur kom í heimsókn - Skálarhlíðarkórinn söng undir stjórn Sigurjóns Steinssonar og ekki má gleyma kaffinu og öllu meðlætinu sem ávalt fylgir. Kona mín mætti þar galvösk með myndavélina sína og tók myndir, sem koma í ljós ef smellt HÉR
Mánudagur 23. janúar 2006
Ein gömul:
Haraldur Sigurðsson (Halli á Eyri) og Jónas Björnsson
Úr safni Haralds -
Mánudagur 23. janúar 2006 Ég var að fá ábendingu um þessa frétt utan af landi: Íslandsbanki styrktaraðili Pæjumótsins 2006 Nú um áramótin var skrifað undir samstarfssamning Íslandsbanka og Knattspyrnufélags Siglufjarðar um aðkomu bankans að Pæjumótinu á Siglufirði sem ............... Þeir sem hafa áhuga á að lesa meira smelltu HÉR Tengill óvirkur í dag
Þriðjudagur 24. janúar 2006 -- Ein gömul: Eftirtaka frá gamalli smámynd, sennilega ekki tekin á Siglufirði (?) og af erlendum ljósmyndara. En á myndinni má þekkja, lengst frá vinstri: Sigurður Gunnlaugsson - Gunnlaugur Sigurðsson - Gústaf Þórðarson - Þormóður Eyjólfsson stjórnandinn --- lengst til hægri: Jósep Blöndal - fjórði frá hægri Gunnlaugur (faðir Vidda Gull). Fleiri þori ég ekki að nefna, enda ekki viss. Tekið á Alþingishátíðinni á Þingvöllum 1930
Þriðjudagur 24. janúar 2006 Ný Siglfirsk vefsíða í flokknum 123.is =
Lárey Valbjörnsdóttir http://www.123.is/fletturimi Síðan óvirk í dag
Þriðjudagur 24. janúar 2006 Látið skoðun ykkar í ljós um sameininguna: Fundur á Bíó Café í kvöld klukkan 20:00 -- mætum vel.
Þriðjudagur 24. janúar 2006 Siglufjörður fyrir hádegið í dag -- útsýn frá gatnamótum Hverfisgötu og Hávegs
Þriðjudagur 24. janúar 2006
Lífið við höfnina í dag Ljósmynd: Sveinn Þorsteinsson
Miðvikudagur 25. janúar 2006
Ein gömul:
Ásgrímur Sigurðsson og Haraldur Sigurðsson, þarna staddir fyrir framan "Vöru afgreiðsluna" á Hafnarbryggjunni.
Myndin er úr safni Haraldar Sig. - Sennilega tekin öðru hvoru megin við árið 1950
Miðvikudagur 25. janúar 2006 Borgarafundur (2) með sameiningarnefndinni var haldinn í gærkveldi á Bíó Café.
Á fundinn mættu nefndarfulltrúar Siglufjarðar, Ólafsfjarðar og Háskólans á Akureyri, fundarstjóri var Óskar Þór Halldórsson. (Ak) Og umræðuefnið var að sjálfsögðu "sameiningarmálin" Myndir frá fundinum eru HÉR
Miðvikudagur 25. janúar 2006
Pálshús - Mjóstræti 2. Spes fyrir Magga Páls, en hann ætlar að koma norður um helgina, og var að spyrja hvort hann þyrfti að taka með sér skóflu til að komast inn til sín þegar hann kæmi heim.
Hann þarf þess ekki, en gatan hefur þó ekki verið mokuð, þar sem eingin hefur búið við götuna eftir að snjóaði.
Fimmtudagur 26. janúar 2006 --- Ein gömul: Þessi mynd var tekin árið 1963 þegar Skarðsmótinu´63 var senn að ljúka. Þarna eru 2 starfsmenn mótsins á fjallabrún þaðan sem svig og stórsvigsmenn voru ræstir. En þetta eru þeir Bjarni Þorgeirsson og Jón Gunnar Þórðarson. Sitjandi til hægri er Svanberg Þórðarson Ólafsfirði að hvíla sig ögn eftir erfiða göngu upp á brún, en engar skíðalyftur voru til taks þarna árið 1963. Svanberg þurfti að láta ræsa sig tvisvar vegna mistaka tímatökumanna niðri.
Fimmtudagur 26. janúar 2006 Eplin falla ekki langt frá eikinni, segir máltækið. Það má með sanni segja með "eplin" sem komu frá Gunnari Guðmundssyni, umsjónarmanni Grunnskóla Siglufjarðar og margföldum skíðameistara. En samkvæmt frétt af síðu Skagafjörður.com þá urðu feðgar Íslandsmeistarar í skíðagöngu - Sennilega hefur það ekki gerst hér á landi fyrr en á laugardaginn að feðgar yrðu Íslandsmeistarar í skíðagöngu sama daginn. -- Þessir nýkrýndu Íslandsmeistarar eru sonur og sonarsonur Gunna Guðmunds og Sóleyjar Þorkelsdóttur Siglufirði
Fimmtudagur 26. janúar 2006
Í hvora áttina eigum við að fara ?
Gætu þeir verið að hugsa þessir tveir hrafnar, en nokkuð hefur borið á mörgum hröfnum á flökti víða í byggð að undanförnu, jafnvel á götum niðri þar sem þeir hafa verið að gogga í brauðleifar sem "dottið" hefur á götur utan við sjoppur ofl.
Fimmtudagur 26. janúar 2006 --
Áberandi bryggjupolli -
Falleg mynd frá síðu Guðmundar Albertssonar
Pollinn er á norðaustur horni Hafnabryggjunnar á Siglufirði.
Föstudagur 27. janúar 2006 Ein gömul: Hvað ætli margir þekki sjálfa sig á þessari mynd sem tekin er á Suðurgötunni árið 1952 ? (Suðurgata 43 í bak)
Ég tel mig þekkja stærri drengina aftan við, þá Guðjón Jónsson (?) og Val Johansen, hina krakkana þori ég ekki að spá í -- Aðsend Nöfn: Okkur langar til að bæta við nöfnum, frá vinstri Lína Erlends, svo ?, Svava Eggerts, Stína Eggerts, Rafn Erlends. Fyrir framan er Pétur Ásgeirsson. Ég þekki ekki þennan við hliðina á Val. -- Kveðja Gugga og hinar á vaktinni.
Föstudagur 27. janúar 2006 Norski rækjutogarinn Remöy kom í morgun og losaði hér frosna rækju til Þormóðs Ramma Sæberg.
Olíuskip kom einnig í nótt með um 400 tonn af olíu
Föstudagur 27. janúar 2006 -- Þessir broshýru menn eru starfsmenn Vörumiðlunar, sem hefur afgreiðslu hjá Olísbúðinni á Siglufirði, en þetta eru Björgvin Jónsson (Sauðárkrók) og Stefán Friðriksson, sem einnig starfar hjá Olís (3ja manna maki)
studagur 27. janúar 2006
Sjálfsbjörg - Sólarpönnukökur voru bakaðar og seldar í dag eins og venjulega í tilefni af "sólarkomunni" - fyrsta deginum sem sólin sést niðri í byggð á Siglufirði, það er þegar heiðskírt er.
Þetta er þó hálfgert þjófstart, því "sólardagurinn" er ekki fyrr en á morgun, en þar sem vinnustaðirnir eru aðal viðskiptavinir Sjálfsbjargar um þetta leiti og helgi framundan, þá fór salan og pönnukökuátið fram í dag föstudag og var víða vel til þess tekið. Myndin hér til hliðar er af Sjálfsbjargarliðinu sem var á vakt klukkan 8 í morgun þegar ég leit þar við og fékk þær til að slappa augnablik af. Fleiri myndir eru hér á tenglinum frá vinnu þeirra --
Og klukkutíma síðar......... þegar ég heimsótti tvo vinnustaði og belgdi í mig kaffi og pönnukökum ásamt fyrrverandi vinnufélögum og fleirum ! Fleiri myndir HÉR
Föstudagur 27. janúar 2006
Nemendur 1.-6. bekkjar sungu sólarlög á kirkjutröppunum kl. 11.20 í dag --
Ég mætti - og krakkarnir sungu nokkur lög í tilefni af "sólarkomunni" sem lét þó ekki a sér kræla, en nýstings nepja var og skýjað.
En krakkarnir voru vel klædd og létu ekki Kára gamla ná til að bíta sig og sungu hástöfum. Nokkrar myndir HÉR
östudagur 27. janúar 2006 Ferðafélag Siglufjarðar -- Villtu gerast félagi ? Stofnfundur Ferðafélags Siglufjarðar verður haldinn 16. febrúar kl. 20 í fundarsal Bátahússins. Gestir frá Ferðafélagi Íslands mæta og halda erindi um félagið. Fundurinn verður nánar auglýstur þegar nær dregur.
Föstudagur 27. janúar 2006
Og svo var það blessuð sólin -- Hún gægðist á milli fjallstoppa og skýhnoðra og lýsti svefnherbergi mitt og svalir af björtum sólargeislum rúmlega 14:00 í dag - ekki nær þó sólin að lýsa upp "allt" byggðarlagið fyrr en á morgun 28. ef heiðskírt verður. Því ræður Siggi stormur segja krakkarnir.
Laugardagur 28. janúar 2006 Ein gömul: Það var stundum ekki mikið pláss fyrir gangandi vegfarendur á götum, hvað þá aðgengi að sumum húsum á Siglufirði í marsmánuði 1952.
Þarna er olíubifreið frá "BP" - nú Olís að koma eftir ný ruddri Hverfisgötu. En þarna var aðeins "stungið í gegn" svo hægt væri að afgreiða olíu til húshitunar í götunni. En á þessum tíma var engin hitaveita á Siglufirði, eins og flestir vita.
Laugardagur 28. janúar 2006
Freyr KÓ 77 2575 hefur verið í gagngerum breytingum hjá JE-Vélaverkstæði á Siglufirði undanfarnar vikur.
Báturinn var lengdur um tæpan metir og síðan byggt ofan á hann myndarlegt skjólshús.
Hvað útlit snertir þá hefur það verk tekist frábærlega vel og ekki er að efa að það sem innvortis er, er ekki síðra, ef miðað er við fyrri verk, vandvirkni og reynslu sem þessir drengir á JE-Vélaverkstæði hafa.
Þarna er báturinn á Hafnarvoginni í morgun, eins og lög gera ráð fyrir eftir miklar breytingar.
Eigendur bátsins er útgerðin Þrift ehf. Reykjavík - Höfn Kópavogur (KÓ)
Laugardagur 28. janúar 2006 Úrslit kosninganna vegna sameiningar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar sem fram fara í dag klukkan 10:00 til 20:00 verða birt hér á vefnum, innan 10 mínútna frá því að talningu líkur. Að líkindum verður það upp úr klukkan 22:00 í kvöld.
Laugardagur 28. janúar 2006
Myndin er frá kjörstað á Siglufirði í dag
Sunnudagur 29. janúar 2006
Ekki þekki ég neinn af þessum guttum -
En eflaust eru einhverjir sem gera það og láta mig vita.
Myndin er tekin í marsmánuði 1952 ---
Upplýsingar Sá sem er lengst til hægri er Indriði Jóhannsson og sá í miðið Freysteinn bróðir hans (synir Jóhanns Þorvaldssonar). Indriði er fæddur 1943 og hinn er eitthvað yngri.
Ljósmynd: Krstfinnur
Sunnudagur 29. janúar 2006 -- Í gær eftir hádegið var þessi glæsilegi bátur sjósettur. Önnur myndin er tekin stuttu eftir sjósetninguna - Hin myndin er látin fylgja svona til gamans af þeim félögum Sverri Júll og Guðna Sigtryggssyni verkstjóra hjá JE-Vélaverkstæði vera að koma böndum á bátinn áður en hann var hífaður upp og sjósettur.
Sunnudagur 29. janúar 2006 --
En niðurstaðan var afgerandi, enda skynsamleg ákvörðun að mínu mati. Við erum siðmenntuð hér á Fróni og notum einfaldar kosningar til að komast að niðurstöðu en ekki morðvopn eins og því miður tíðkast alltof víða. --
Það verður gaman að fylgjast með þróuninni um valið um nafn á byggðarlagið nýja sem í gær var ákveðið að stofna. Mörg nöfn hafa verið nefnd í mín eyru eins og til dæmis: Tröllabyggð - Sjávarbyggð - Norðurbyggð og raunar mörg fleiri. En nafnið sem Signý Jóhannesdóttir nefndi á seinni borgarafundinum á Siglufirði held ég að flestum muni falla í geð, en það er nafnið Tröllaborgir (Tröllaborg, Tröllabær) sem á vel við norður og suðurbæinn, þar sem Siglufjarðarsvæðið væri norðurbærinn en Ólafsfjarðarsvæðið suðurbærinn. Það ætti einnig að vera auðveldara fyrir Dalvíkinga síðar, að sameinast "okkur" ef nafnið höfðaði til stærri einingar. - Og nafnið ætti einnig að geta höfðað til ferðaþjónustunnar og vakið athygli erlendra ferðamanna.
Mánudagur 30. janúar 2006
Vinur minn Arnold Bjarnason (Annó Bjarna) er 75 ára í dag.
Ég þekki ekki einlægari Siglfirðing en hann og því finnst mér ástæða til að senda honum afmæliskveðju í "Lífinu á Sigló". -
Hannes Baldvinsson.
Ég er þér algjörlega sammála Hannesi, þetta er gæðadrengur. Til hamingju Annó, Baddý og Guðný
Mánudagur 30. janúar 2006
Ein gömul: Sennilega tekið árið 1952-1953
Mánudagur 30. janúar 2006 -- Þessir fallegu krakkar voru að leika sér úti í rigningunni í gær(og logninu) þegar ég sá þau og bað um að fá að taka af þeim mynd sem fúslega var veitt. -- Ekki er ég alveg viss um að hafa tekið rétt eftir nöfnum þeirra en ég geri mitt besta - nöfnin eru ! Diana Mirela Turca - Michele Julia Turca og Dania ?.
Vonandi leiðréttir mig einhver ef nöfnin eru röng - og bætir við föðurnafni Daniu.
Mánudagur 30. janúar 2006 --- Herhúsið var bæði uppljómað og hljómað seinni partinn í gær er ÓB kvartettinn bauð eldri borgurum til smá uppákomu með söng, kaffi og meðlæti í Herhúsinu. ÓB kvartettinn skipa þeir Birgir Ingimarsson - Elmar Árnason - Óskar Berg Elefsen og stjórnandi og undirleikari Sturlaugur Kristjánsson. Þarna eru sæti fyrir um 50 manns og einstaklega góður hljómburður. Myndirnar sýna kvartettinn og Vorboðakórinn, kór eldri borgara á Siglufirði.
Ég tók nokkrar myndir við þetta tækifæri, sem eru hér á tenglinum HÉR ---- Einnig eru margar myndir á heimasíðusíðu Svenna > Tengillinn virkar ekki í dag
Þriðjudagur 31. janúar 2006
Ein Gömul: Ragnheiður Sæmundsson - Ingibjörg Eggertsdóttir - Gisela Schmidt - Ingibjörg Sigurlinnadóttir - Steingrímur Kristjánsson - Sigurður Gunnlaugsson - Gerhard Schmidt - Sigurjón Sæmundsson. - Árshátíð 1965
Þriðjudagur 31. janúar 2006 - Þrjá "Toppandir" gæti þessi skemmtilega mynd heitið, en myndin er stolin af heimasíðu Herdísar Sigurjóndóttur dóttir Sigurjóns og Ásdísar. Á síðu Herdísar er mikið af skemmtilegum myndum, einnig frá Siglufirði.
Jóna Bára Hauks og Rikka Guðjóns og Herdís Jóhanns
Þriðjudagur 31. janúar 2006
Enn er að aukast "fjörið " í Skoðið og takið þátt og látið skoðanir ykkar á nafni nýja sveitarfélagsins. --
Og hér er ein vísa sem ég fékk senda, vísa sem segir okkur margt og væri hægt að snúa einnig yfir á Ólafsfirðinga. Hvert svo sem nafnið verður þá:
Magnús Pálsson.
Þriðjudagur 31. janúar 2006 --- Spegilmynd. -- tekið í morgun
Þriðjudagur 31. janúar 2006 -- Tvær myndir af handahófi, teknar í gegn um grindverk umhverfis Leikskála --- tekið í morgun Myndirnar hér fyrir neðan
Þriðjudagur 31. janúar 2006
Forvitnilegur vefur - með tengil að nafni "Vefsjá" á vef Ólafsfjarðar
Skoðið samantekt LEÓS á umræðunni á Ólafsfjarðarvef, fyrir kosningarnar
Því miður: Engin tenging í dag við nefnda tengla.