<<<<<Sunnudagur 23. janúar 2005 -- Ein gömul:
Fyrsta síldin á sumrinu, 3. júní 1964. Landað til frystingar hjá Hrímnir hf -- Pétur Baldvinsson fylgist með.
Sunnudagur 23. janúar 2005
Kristrún Jónsdóttir, sem varð 50 ára síðastliðinn föstudag 21. janúar, hélt upp á afmæli sitt í gærdag að Sambýlinu á Siglufirði.
Ég mætti þar til að næla mér í kaffi og góðgæti sem nóg var af og tók ég þar nokkrar myndir í leiðinni
Sunnudagur 23. janúar 2005 --- Með hækkandi sól, var fyrirsögn á fundarboði til almenns stjórnmálafundar á vegum Sjálfstæðisflokksins sem haldinn var seinnipartinn í gær.
Á fundinn mættu til framsögu; Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra og Halldór Blöndal forseti Alþingis.
Á fundinn mættu um 40-50 manns. Aðeins þrír fundarmanna (úr sal) kvöddu sér hljóðs, en þeim mun ítarlegri voru svörin og ræður fundarboðenda. -
Jonni vinur okkar tannlæknir, lét sig ekki vanta og hafði mikið að segja, en eftir að hann hafði talað í tvo tíma (fannst mér) og var hann beðinn að stytta mál sitt, sem hann gerði og fékk hann að sjálfsögðu svör við "erindi" sínu.
Margt athyglivert kom fram á þessum fundi sem lauk með orðunum Sigríðar; "Siglfirðingar geta treyst því að staðið verður við loforðin um Héðinsfjarðargöng" um það voru frummælendur innilega sammála- og Halldór sagðist ekki hætta á þingi fyrr en málið væri komið í höfn.
Eitthvað þessu líkt hljómaði það í mínum eyrum.
Sunnudagur 23. janúar 2005 -- Kvenfélag Sjúkrahússins hélt aðalfund sinn í Skálahlíð seinnipartinn í gær.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa var boðið upp á kaffi og meðlæti og spilað var bingó. Stjórnin undir formennsku Magðalenu Hallsdóttur var endurkjörin, en Magðalena er nú að hefja sitt 24. ár sem formaður kvenfélagsins.
Eitt af því sem fram kom á fundinum var að upphæð sú sem Kvenfélag Sjúkrahússins hefur safnað til Sjúkrahússins og Skálarhlíðar síðustu 50 árin, nemur alls rúmlega 94 miljónum króna (framreiknað samkvæmt vísitölu, af starfsmanni Íslandsbanka) -.Það munar um minna. Ljósmynd: Guðný Ósk Friðriksdóttir.
Sunnudagur 23. janúar 2005 -- Orðsending: Halló árgangur 55! Nú er stórt ár hjá okkur . Við í Sigló-saumaklúbbnum 55 í Reykjavík tókum af skarið og erum búnar að fastsetja helgina 8. , 9. og 10. júlí til endurfunda á Sigló.
Nú vantar okkur heimilisföng ykkar til að senda nánari upplýsingar. Vinsamlegast sendið okkur línu og heimilisföng ykkar og annarra sem þið vitið um. Kveðjur f.h. saumó 55 Dóra og Stína Netföng : dora@merkismenn.is og kristinhjorleifs@hotmail.com
Sunnudagur 23. janúar 2005 Um þessa helgi hefur stendur yfir svæðamót í sveitakeppni í Bridge þ.e. í Norðurlandi vestra (gamla kjördæminu) keppt var um rétt til þátttöku í undankeppni v/ Íslandsmóts. Spilaðir voru 3 leikir í gær frá kl.10 fh. til kl. 21:00 Eru leiknir 2 leikir og hófst keppnin í morgun kl. 10:00 og áætlað að ljúki kl. 17:00 Spilastaður er Shell húsið við Tjarnargötu rishæð. Úrslitin verða kynnt hér síðar.
Viðbót við þetta: ÚRSLITIN: Keppninni lauk seinnipartinn í dag og var í lokin mjög spennandi. Úrslit urðu þau að sveit Eyjólfs Sigurðssonar (tannlæknir Sauðárkróki) sigraði með 108 stigum auk Eyjólfs eru í sveitinni Guðni Kristjánsson (sonur Kristjáns Rögnvaldssonar) Ágúst Sigurðsson, Ólafur Sigmarsson, Jón Örn Berndsen og Ásgrímur Sigurbjörnsson í öðru sæti var sveit Sparisjóðs Siglufjarðar með 107 stig og í þriðja sæti varð sveit Gunnars Þórðarsonar Sauðárkróki með 72 stig. Einnig var reiknuð út meðalskor úr spiluðum leik einstaklinga svokallaður "Butler" en þar varð í efsta sæti með meðal tal 19,60 Kristján Blöndal en hann spilaði í sveit Sparisjóðs Siglufjarðar. Keppnisstjóri var Sigurður Hafliðason.
Sunnudagur 23. janúar 2005
Eftirlegukindur. Um klukkan 15:00 í dag kom Keilir SI 145 með 25 eftirlegukindur úr Héðinsfirði, þar sem þær hafa haldið sig til þessa. En þar hafa þær verið ýmist innst inni í firði eða meðfram fjörunum. Þær voru í góðum holdum og vel á sig komnar sagði einn bændanna, en meirihluti kindanna mun vera úr Fljótum en restin úr Ólafsfirði.
Á leiðinni frá Héðinsfirði mættu þeir á Keilir, Sigurbjörgu Óf 1 og náðu þar um borð í tvo mjög þakkláta skipverja sem losnuðu við fleiri hundruð kílómetra akstur í fríið fyrir vikið, en skipið var á leið inn á aðra höfn en Siglufjörð. Kær kveðja frá þeim til Gunna.
Ég tók á móti mannskapnum, 9-10 körlum frá Siglufirði og eigendum kindanna og tók nokkrar myndir
Mánudagur 24. janúar 2005 -- Aðsend mynd frá Bessastöðum þegar Þjóðlagahátíðin fékk Eyrarrósarverðlaunin. Frá vinstri: Forsetafrúin frú Dorrit Moussaieef, Orgelleikari okkar Siglfirðinga Renáta Ivan og Gunnsteinn Ólafsson frumkvöðull þjóðlagahátíðarinnar. Til gamans má geta þess að barnastúkan okkar heitir Eyrarrós og er no 68. Þetta er í fyrsta sinn sem Eyrarrósin er veitt. - KLM
Mánudagur 24. janúar 2005
Félag eldriborgara á Siglufirði og í Fljótum hélt sinn fyrsta fund á árinu, á hinum hefðbundna stað Skálarhlíð.
Hin venjubundna dagskrá var við heiðri höfð.
Almenn fundarstörf, kosning stjórnar og formanns, önnur mál.
Upplestur; Guðjón Sverrisson, Skálahlíðarkórinn og Himnabandið.
Svo og kaffi, tertur og fleira góðgæti eins og venjulega. -
Ég mætti ekki á þennan fund frekar en venjulega, en kona mín Guðný Ósk mætti og tók nokkrar myndir frá fundinum.
Mánudagur 24. janúar 2005 -- Hellan 1. tbl 2005 af Hellunni er komið út. -- Fullt af efni, þar á meðal völvuspá. --Áskrift að Hellunni er 3,540.- kr árið. Þeir sem vilja gerast áskrifendur geta sent tölvupóst á tunnan@simnet.is eða hringt í síma 467-1288467-1288 Tunnan prentþjónusta ehf
Þriðjudagur 25. janúar 2005 Ein gömul: Starfsmannafundur hjá Síldarverksmiðjum Ríkisins 1981 - Þarna voru mættir yfir 60 starfsmenn, boðaðir á kaffifund að Hótel Höfn, af yfirmönnum fyrirtækisins á Siglufirði, Geir Zoega ofl.-- Þarna eru jú einnig mættir starfsmenn SR-Vélaverkstæðis
Hvað ætli allur þessi hópur, þar áður 1930-1940 á þriðja hundrað mans, hafi haft að gera?
Svarið er "einfalt": Það sem tveir menn á vakt gera í dag á notarlegum stað framan við tölvuskjái, og fáir í viðbót við stjórn, viðhald og eftirlit. Þeim mundi nægja eitt borð til að funda við, ef svo bæri undir. Tímarnir, og tæknin breytist og mennirnir með.
Þriðjudagur 25. janúar 2005
Aðsendur Tengill:
Sæll vertu ! -- Mér datt í hug að senda þér tengil á myndir sem ég hef sett á netið og eru frá þorrablóti í Fljótum nú á föstudaginn, sem var fjörugt og fjölmennt að vanda.http://www.holmavik.is/skoli/stina_kennari/fljotin/blot2005/index.htm
Bestu kveðjur af Ströndum Kristín Sigurrós Einarsdóttir
Þar sem helmingur Fljótamanna eru "Siglfirðingar" og hinn helmingurinn hér á Siglufirði eru "Fljótamenn" þá birti ég þennan tengil með ánægju. SK
Þriðjudagur 25. janúar 2005
Guðmundur Ólafur ÓF 91 2329 kom með til löndunar á Siglufirði fullfermi af loðnu. Það var hart sótt í tveggja til þriggja metra ölduhæð og vestan vindur allt upp í 50 m/s, það er "beint" á móti. Skipinu seinkaði um eina klukkustund. Nú er aftur á móti komið logn á Siglufirði og 6 °C hiti (kl. 10:00)
Þá kom Örn K.E. rétt fyrir hádegið með fullfermi og þá verður aflinn hingað kominn vel yfir 10 þúsund tonnin. Ég tók nokkrar myndir á vettvangi í morgun, og hitti þar meðal annars Björgólf Jóhannsson forstjóra og Jón Már Jónsson verksmiðjustjóra Síldarvinnslunnar, en þeir voru nýkomnir frá Raufarhöfn úr heimsókn þar
Þriðjudagur 25. janúar 2005
Aðsent: Við erum nokkrir strákar sem erum í hljómsveit og fyrir nokkrum mánuðum fengum við æfingaaðstöðu hjá Marteini Haraldssyni. Við geymdum allar okkar græjur þarna enda spiluðum við oft og mikið. Um Jólin neyddumst við til að taka okkur smáfrí.
En þegar við komum úr fríinu hafði verið brotist inn og vantaði einn Peavey magnara, Boss Mega-distortion, 3x gítarsnúrur og trommukjuða.
Ef einhver hefur vitneskju um hvar þessir hlutir eru staðsettir eða jafnvel með þá í fórum þínum viltu þá vinsamlegast hafa samband við Aron Inga í síma 865-2764 eða Vigfús í síma 849-1193. "Hljómsveitin á hafnarbakkanum"
Þriðjudagur 25. janúar 2005
Nýtt á vefnum -
Dagatal með uppákomum, það er ef viðkomandi aðilar, þeir sem sjá um uppákomur, Þorrablót, dansleiki, skemmtanir, árgangsmót og annað sem fólk kemur til með að hafa áhuga á. Sendið mér upplýsingarnar, ég kem þeim fyrir á dagatalinu.
Einnig ef áhugi er á, þá skal ég koma dagskránni einnig fyrir, (á bak við) þannig að smellt er á tengil innan viðkomandi dags á dagatalinu. Dagatals tengilinn verðar alltaf til staðar efst á síðunum. (frá 23.jan).
Ath.: Tenglar frá þessari síðu eru ekki til staðar nú þegar þetta er uppfært, aðeins sýnishorn á því sem var. - Varðveitt á HD disk
Þriðjudagur 25. janúar 2005 Selkópur - sennilega sá sami sem heimsótti þennan sama stein fyrir framan Síldarminjasafnið, oft á síðasta ári. -- Hann lét fara vel um sig á steini sínum í dag um klukkan 15:00
Miðvikudagur 26. janúar 2005
Ein gömul:
Þetta er "árgangur 1932" í boði Bæjarstjórnar, á skrifstofu bæjarins árið 1982. (Árgangsmót)
Ég þekki öll andlitin, man nöfn sumra en sum ekki, svo ég nefni engin nöfn að sinni.
Miðvikudagur 26. janúar 2005
Að sögn Arnars Jónssonar garðyrkjufræðings Siglufjarðarkaupstaðar, þá fengu Siglfirðingar, Ólafsfirðingar og Hólar, styrk frá Ferðamálaráði Íslands, samtals eina og hálfa milljón króna til að vinna að gerð og útgáfu útivistarkorta með merktum gönguleiðum.
Útivistarkort: Svarfaðardalur, Ólafsfjörður, Héðinsfjörður.+ Útivistarkort: Fljót, Siglufjörður, Héðinsfjörður, og göngukort af miðjum Tröllaskaga.
Aðilar innan þessara svæða munu vinna sameiginlega að þessu verkefni. Ljósmynd: Árni/Guðný ------
Þá skal þess getið að Sögufélag Siglufjarðar fékk frá Menningarsjóði KEA rétt fyrir síðustu jól, 150 þúsund króna styrk
Miðvikudagur 26. janúar 2005 Sjálfsbjörg ! Sólarpönnukökurnar verða seldar að venju, í tilefni af sólardeginum föstudag 28. janúar. Allir, sem og fyrirtækin geta hringt í síma 467-1815467-1815 og pantað og sótt pönnukökur til að gleðja starfsfólk sitt og fjölskyldur. Við erum í Sjálfsbjargarhúsinu.
Fimmtudagur 27. janúar 2005
Ein gömul: Bátadokkin 1982 --
Ath.; árið 2018
Húsunum efst á myndinni hefur verið breytt í veitingastaðina Hannes Boy og Kaffi Rauðka og húsið lengst til hægri, þarna Sunna, en nú Sigló Hótel -
Þökk sé þér Róbert Guðfinnsson, fyrir framtakið.
Fimmtudagur 27. janúar 2005
Bolludagurinn verður ekki fyrr en 7. febrúar næstkomandi, en Kiwanis konur halda við margra áratuga hefð, með því að búa til og dreifa bolluvöndum.
Upphaflega byrjaði þetta er Kristine Þorsteinsson (Ólafs læknis) kenndi konum í Kvenfélagi Sjúkrahússins þá list að búa til bolluvendi, en þá voru "teiknibólur" notaðar til að halda "rósavirkinu" saman, en nú nota konurnar trélím.
Þær búa ma. til um 70 vendi sem fara á leikskólann Leikskálar.
Þá verða seldir vendir frá þeim í Aðalbakaríinu og á Bensínstöðinni.
Fimmtudagur 27. janúar 2005 1. Sólardagurinn (skráður) á Siglufirði er á morgun. Þær Stella Einarsdóttir, Valey Jónasdóttir og Björg Einarsdóttir, byrjuðu að baka sólar pönnukökurnar í dag eftir hádegið. Seinnipartinn verður settur á fullur dampur og margar konur munu bætast við í baksturinn, svo og snemma í fyrramálið hafa þær tæpa tvo tíma til að smyrja og setja rjóma á pönnukökurnar áður en fyrstu kaffitímarnir hefjast, klukkan 09:00. -
Allir, sem og fyrirtækin geta hringt í síma 467-1815467-1815 og pantað og sótt. Á morgun mun birtast myndasería frá bakstrinum, þegar allt er á fullu.
(þær vinna ekki hjá Sparisjóðnum þessar, þó halda mætti af húfum og svuntum, þær eru bara slungnar) Myndir HÉR
Föstudagur 28. janúar 2005 -- Ein gömul:
Þennan véla-"sal" hafa ekki margir augum litið, hann var byggður árið 1924, en í dag horfinn með öllu. Þetta er sýningarklefi Nýja Bíós á Siglufirði 1924-1999. Þrisvar sinnum hefur verið skipt um vélbúnað þarna, síðast 1924.
Þarna er einn af sýningarmönnum Nýja Bíós Kristinn Steingrímsson, þarna 14 ára gamall að gera vélarnar klárar fyrir sýningu.
Þessar sýningarvélar voru settar upp árið 1946 og voru vélarnar notaðar þar til bíósýningum var hætt á Siglufirði árið 1999 -Vélarnar voru í fullkomnu lagi allt til þess síðasta, enda vönduð samstæða frá RCA-Brenkert USA.-
Föstudagur 28. janúar 2005 -- Pönnukökubakstur. Ég heimsóttir Sjálfsbjargarhúsið seinnipartinn í gær og tók af þeim myndir eins og ég lofaði;
Myndir HÉR (sami tengill og hér ofar)
Föstudagur 28. janúar 2005 Pönnukökuát hjá SR-Vélaverkstæði Myndir HÉR
Á þessari mynd eru Hermann Einarsson og Arnar E Ólafsson
Laugardagur 29. janúar 2005 --- Ein gömul: 1984
Sunnudagur 30. janúar 2005 -- Ein gömul:
<<<< Löndunarbið hjá SR á Siglufirði, sennilega um 1940, Frigg MB 68 að koma inn með fullfermi af síld. Ljósmynd, Kristfinnur Guðjónsson
Mánudagur 31. janúar 2005 --
Aðsent: Sendi hér nokkrar myndir teknar á þorrablóti Norðlendingafélagsins í Vestmannaeyjum 15 janúar 2005. Þar var alveg rífandi stemning og eyjabúar höfðingjar heim að sækja, að vanda. -- Kv Finni Hauks.
Mánudagur 31. janúar 2005 -- Ein gömul:
Fyrir framan verslunina Álfhól á Sigló 1984
Mánudagur 31. janúar 2005 -- Smábátarnir sem gerðir eru út frá Siglufirði, fóru í róður í nótt og í morgun er lægði eftir stormasama viku, nú í þokkalegu veðri. (logn í landi) Bátarnir fóru að týnast inn aftur eftir hádegið, þessi bátur Minna BA 322 2280 virðist vera með þokkalegan afla er hann kom inn klukkan 14:00 í dag