Lífið 1. - 7. sept. 2003

Fréttavefurinn Lífið á Sigló 

Fréttir 1. til 7. september 2003




1. september 2003

"Þau settu svip á bæinn" 

Dagbjört Sæmundsdóttir, fædd 25. maí 1900 og 

Jóhann Einarsson vatnsveitustjóri, fæddur 26. október 1890 

Ljósmynd: Kristfinnur

1. september 17:30 - Þeir sögðu nei -- og oft nei, við beiðninni til "Vegagerðarinnar" um að taka litla spölinn sem eftir var, og klára jarðvegsskipti og malbikun Gránugötunnar, þrátt fyrir að fleiri en einn hafi bent á hagkvæmni þess að vinna verkið strax, sem þurfti hvort að er að vinn. Nei, nei, nei. En svo kom maður að sunnan frá vegagerðinni, til að taka út nýafstaðið malbikunarverk og sá dæmið eins og heimamenn höfðu séð það. Eitt símtal frá honum dugði og fékk því framgengt að farið var í að klára dæmið að fullu. Myndirnar sýna gröfuna á fullu, stjórnandi hans er Kári Hreinsson 





2. september 2003

Hann setti svip á bæinn

 Finnur Jónsson, fæddur: 16. janúar 1922 -- dáinn 31. desember 1998 

Ljósmynd: Kristfinnur




2. september 2003

Bátahúsið við Síldarminjasfnið

Lokið er við að reisa grind hússins, og fer að líða að klæðningu þess. 

2. september 2003

Nú lítur út fyrir, að kosningaloforðin varðandi Héðinsfjarðargöng hafi ekki verið venjuleg kosningarsvik ríkisstjórnarinnar, heldur einnig pólitískt klúður og bruðl á fjármunum til einskis. Þetta má lesa út úr fréttum fjölmiðlana um þá lögleysu, til viðbótar svikunum sjálfum, varðandi Héðinsfjarðargöng.

Spurningar hafa vaknað í fjölmiðlum, hvort Sturla ætti ekki að víkja úr embætti sínu sem ráðherra, þar sem í ljós hefur komið að hann hefur brotið lög.

Allstaðar annarstaðar í lýðræðisríki hefði það skeð, en við erum í hálfgerðu banalýðveldi, svo það er ekki talin ástæða til þess? Svo er það spurningin, hvort aumingja Sturla sé ekki bara hamar og sigð í höndum Davíðs.

Einn ráðherrann lýsti því jú yfir í Bíósalnum forðum að það væri Davíð sem tæki allar ákvarðanir, hinir ráðherrarnir verði bara að hlýða, ef þeir vildu halda stólunum.

Vonandi bera þessir svokölluð ráðherrar, að keisaranum Davíð meðtöldum, gæfu til að semja við verktakann um að hefja strax verkið, frekar en að henda hundruðum miljónum króna í málskostnað og tapað mál.




3. september 2003

Þeir settu svip á bæinn 

Björn Magnússon bifreiðastjóri fæddur 27. september 1921 -- dáinn 29. september 1986

Meira um Björn og Hinrik Andrésson

Hinrik Andrésson umboðsmaður fæddur 3. júní 1926 - dáinn 25.febrúar 2000 

Ljósmynd: Kristfinnur

3. september. 2003

Byrjað er á að flytja inn á grunn Bátahússins litlu bátana, Sigurvin, snurpu-nótabáta ofl. Stærri bátarnir voru komnir áður. 

3. september. 2003    Ég hefi undanfarna mánuði, verið að vinna gögn úr gömlum Siglufjarðarblöðum (sem sumum mun vera kunnugt) Oft hefi ég rekist á athygli verðar fréttir og greinar, sem fróðlegt og gaman hefur verið að lesa. En í morgun rakst ég á eina mjög athygli verða grein, sem ég get ekki stillt mig um að benda á hér, í ljósi síðustu umræðna um hnífstungu þá, er ríkisstjórnin rak í bak Sjálfstæðismanna hér í bæ..

En árið 1939 var Ólafur Thors, atvinnumálaráðherra, og Siglfirðingum fannst þá að Sjálfstæðismenn í ríkisstjórn hefðu ekki staðið við gefin loforð, sem þó voru ekki nærri því eins greinileg og nú varðandi Héðinsfjarðargöng.

Hér fer "niðurlag" greinar í Siglfirðing 3. október 1939

"Sjálfstæðismenn hér urðu fyrir sárum vonbrigðum, og þeim mestum er fremst höfðu staðið í baráttunni, er þeir sáu, að jafnvel þeirra traustustu menn brugðust þeim hrapalega, þegar mest á reyndi í þessu máli. Þess vegna hafa tveir þessara manna lagt niður umboð sitt sem fulltrúar flokksins í bæjarstjórn, og þess vegna hafa allir formenn sjálfstæðisfélaganna hér sagt af sér.

Það eru mótmæli frá þeirra hálfu gegn því, að þeim fannst sem verið hafi vegið að baki þeim, og sá veitt þeim mestan áverkann er stærstan gat fyrir þá borið skjöldinn."



4. september 2003

Þau settu svip á bæinn. 

Ingibjörg Jónasdóttir fædd 12. nóvember 1890 og 

Andrés Hafliðason fæddur 17. ágúst 1891 

Meira um þau hjónin   -    Ljósmynd: Kristfinnur

4. september 2003

Aldrei skeð í manna minnum (?) fyrr, að allur snjór og klaki hafi allur bráðnað í vesturfjöllunum við Siglufjörð. Svo má einnig segja um allan fjallahringinn, nánast allur snjór eða öllu heldur klaki, er horfinn, einstaka smáblettir innst í skorningum í suður fjöllunum. Hlíðin fyrir ofan Skollaskál, hefur að geyma einn lítinn klakablett, ennþá, en svo lítinn að hann sést ekki án sjónauka. 

Sigurjón Sæmundsson, frumkvöðull

4 . september 2003

Stórkostleg hugmynd er vöknuð, af frumkvæði Sigurjóns Sæmundssonar prentsmiðjustjóra, sem öllum Siglfirðingum er af góðu kunnur.

Sigurjón Sæmundsson, hefur sótt um lóð(ir) undir Prentsmiðjuvélasafn, safn sem segði sögu prentiðnaðar, ekki aðeins á Siglufirði, heldur alls landsins. Sigurjón hefur aldrei hent neinu af gömlum vélbúnaði og hlutum tengdum prentiðninni, þó endurnýjun vegna tækniþróunar hafi verið ör í gegn um tíðina hjá honum, og óhætt er að fullyrða að Siglufjarðarprentsmiðja var oft langt á undan öðrum prentsmiðjum með nýjungar, t.d. þegar tölvuvæðingin hófst í prentiðnaði hér á landi, þá var hann meðal hinna fyrstu. - Eins og segir hér ofar, þá henti Sigurjón aldrei neinu, - og á hann nú þegar, nægan búnað til að fylla veglegt safn, þó svo að alltaf megi við bæta.

Sigurjón hefur starfað við prentiðnina, alls í 74 ár svo hann þekkir söguna vel. Hann hefur hug á, ef safnið kemst á laggirnar, að það verði tileinkað Jóni Arasyni, sem fyrstur flutti til landsins prentsmiðju árið 1534.

Ég endurtek, þetta er stórkostleg hugmynd, og stórvirki, sem ekki er mögulegt fyrir einn háaldraðan mann að framkvæma. Vonandi kemur ríkisvaldið, menningarstofnanir,Prenttæknistofnunin og bærinn til móts við hugmyndir hans. Því viðbót við Síldarminjasafnið, væri Prentsmiðjusafn, góður kostur, og mundi auka verulega ferðamannastrauminn, til bæjarins okkar. - Meira um Sigurjón   

Skrifað 2018: Því miður, þá lest Sigurjón áður en hann kom þessum draum sínum í framkvæmd. Og því miður, höfðu börn hans ekki áhuga á (eða vilja) tl að halda undirbúningframkvæmdum föður síns áfram og seldu það sem hægt var að fá pening fyrir, og skildu hluta þess eftir, sem og lenti á Iðnaðarsafninu á Akureyri. --- sk.





5. september 2003

Hann setti svip á bæinn

Sveinbjörn Tómasson, kaupmaður (vel þekktur vegna fótbolta á Sigló) fæddur 21. ágúst 1921 

5. september 2003   -- Á Álfhól, í Siglufirði, er að finna þessi tvö "skilti" á stalli. (myndir hér neðar) Annað er útsýnisskífa, sem ber kenni og nöfn helstu örnefna á fjallahringnum í kringum Siglufjörð, hitt segir munnmælasögu um tilkomu hólsins sem útsýnisskífan er á. Varðandi þessa útsýnisskífu, sem ég heimsótti í gær, eftir að mig minnir um áratug .

Þetta var mjög gott framtak þeirra, sem ég veit ekki hverjir voru, er gáfu þennan stall með skífunni. Skífan hefur eflaust veitt mörgum ánægju, við að skoða fjallahringinn og finna nöfnin sem skífan bendir til. En í dag (gær) gerir hún ákaflega takmarkað gagn, þeim sem á annað borð treysta sér til að nálgast hana.

Ég átti fullt í fangi með að komast að henni, og "kalla ég ekki allt ömmu mína" eins og máltækið segir.

Enginn sjáanlegur stígur sést þarna vegn hávaxins gróðurs, ef stígur er/væri þarna á annað borð fyrir hendi?

Djúpur skurður er á leiðinn meðfram flugbrautarvegi, sem sést ekki vegna áðurnefnds gróðurs, nema sérstaklega sé að hugað, og raunar fyrirfram vitað af honum, og er því stórhættulegt að hoppa yfir hann þar sem í hvorugan barminn sést fyrir gróðrinum. Hvað varðar skífuna sjálfa, þá segir myndin sína sögu um gagnsemina, aðeins er hægt að lesa brot af því sem þar stendur, vegna fugladrits og tæringar.

Ef einhver er ábyrgur fyrir þessu máli, ætti hann að drífa sig til að gera eitthvað í málinu, útbúa sjáanlegan göngustíg, og taka með sér góðan hreinsivökva og slípimottu.

5. september 2003 - Eins og flestum er kunnugt, fjölmenntu Siglfirðingar á "Menningarnótt" í Reykjavík í ár. Þeir voru þar með ýmsar uppákomur, vísir af Síldarævintýri, kórsöng, gallery ofl. sem tókst að sögn, með ágætum. Ég fékk nokkrar myndir frá þessari uppákomu frá Óla Kára, í tölvupósti í gærkvöld  -
Myndina eru hér neðar 

Theódór Júlíusson og ?

Friðfinnur hauksson og Sæmundur Árelíusson 
Sigurður Jóhannesson og Ómar Hauksson


6. september 2003

Hann setti svip á bæinn 

Jónas Ásgeirsson kaupmaður, fæddur 25. október 1920 

6. september - 2003

Fermingasystkin 1947 - Skólafélagar 1940-1950.  - Þau gáfu þessa skífu, árið 1988. (þetta stendur á skífunni, en sást ekki fyrr en nú) - Þau gerðu meira, þau gerðu brú yfir skurðinn, gerðu góðan gangstíg að hólnum - og gróðursettu tré meðfram honum. Grasið hefur greinilega orðið trjánum að bana (?) og hulið brúna (ef hún er til ennþá).

En á morgunrúntinum mínum í sólinni og logninu, sá ég bregða fyrir "skugga" á Álfhól --- Var Álfur þarna kominn, eða hvað var um að vera?

Jú það var maður í vinnugalla, bláum með rauðum bak og axlarfleti, í gríð og erg að pússa skífurnar. Hann var búinn að vera þarna á annan klukkutíma við að hreinsa og pússa skífuna í félagi við hinn gamla góða "Brasso"

Þessi skífa var honum í raun alveg óviðkomandi, nema að því leiti að hann er Siglfirðingur og átti slípimottu og Brasso í fórum sínum.

Þetta var Ó.B.E. (hann vildi ekki láta nafns síns getið, en ég nefni samt)

Nú er búið að pússa skífuna. Hver skyldi finna brú og gangstíg, svo auðvelt verði að komast að henni?




6. september 2003

Á göngutúr með ömmu. 

Kristrún Sigurbjörnsdóttir, var á göngutúr í morgunsólinni, með barnabörnum sínum, Vigdís Sævaldsdóttir (í kerrunni), Kristbjörn Sævaldsson, og Viktor Sævaldsson 




6. september  2003

Suðurbær speglast í lygnri Langeyrartjörn í morgunsólinni. 




7. september  2003

Hann setti svip á bæinn 

Jón Kjartansson fv, bæjarstjóri, fæddur: 5. júní 1917 

7. september 2003 -- Fjörðurinn okkar, Siglufjörður og umhverfi. 





7. september 2003

Þetta er Sverrir Björnsson, um borð í bát sínum Viggó SI 32, að gera að úti á firði.