23 .nóvember 2003 --- Ég varð þess heiðurs aðnjótandi í gærkveldi, sem einskonar hirðljósmyndari, að vera eini karlmaðurinn í 40-50 kvenna hópi.
En þessar ötulu konur, héldu upp á 50 ára afmæli félags síns sem í gegn um árin hefur safnað fé til gjafa vegna tækjabúnaðar og ýmsa annarra muna til Sjúkrahúss Siglufjarðar og einnig Skálarhlíðar.
En upphæðirnar í gegn um árin skipta tugum miljóna. --- Hér neðst á þessari myndasíðu má lesa ávarp, flutt af Halldóru Jónsdóttur í tilefni afmælisis
Magðalena Hallsdóttir
Bryndís Jónsdóttir
Katrín Þórný Jensdóttir, Líney Bogadóttir, Elsa Björnsdóttir
Björg Friðriksdóttir, Magðalena Sigríður Halldsóttir og Halldóra Jónsdóttir. Verið er að afhenda Möddu viðukenningu fyrir 22ja ára formannsstarf
Halldóra Jónsdóttir, hún flutti ávarpið sem er neðst á þaeessari síðu
Magðalena Hallsdóttir, var klökk en þakklát
Magðalena Hallsdóttir, var klökk en þakklát
Handverk: Brynja Baldursdóttir. Viðurkenningartáknið hennar Möddu.
Margrét Einarsdóttir og Pálína Pálsdóttir
Elsa Björnsdóttir og Katrín Þórný Jónsdóttir
Jóhanna Vernharðsdóttir og Líney Bogadóttir
Pálína Gústafsdóttir og Soffía Andersen
Þórný, Jalobína Þorgeirsdóttir og Svava Baldvinsdóttir
Soffía, Guðrún Elísabet Friðriksdóttir og Steinfríður Ólafsdóttir
Margrét Björnsdóttir, ???? og Ólöf Margrét Ingimundardóttir
Soffía, Guðrún Elísabet Friðriksdóttir, Steinfríður Ólafsdóttir og Margrét Björnsdóttir
Margrét Árnadóttir og Jóhanna Jónsdóttir
????, Ólöf Margrét Ingimundardóttir og Hulda Guðveig Magnúsdóttir
Auður Björnsdóttir og Björk Hallgrímsson Jónsdóttir
Sólveig Þorkelsdóttir og Sigríður Skarphéðinsdóttir og ?
Ingibjörg Jónasdóttir og Guðrún Björnsdóttir
Sigríður Björnsdóttir, Svava Aðalsteinsdóttir og Ásdís Gunnlaugsdóttir
Sigríður Björnsdóttir, Svava Aðalsteinsdóttir og Ásdís Gunnlaugsdóttir
Guðný Ósk Friðriksdóttir, Gréta Jóhanssdóttir og Sigurlaug Jónsdóttir
Bryndís Jónsdóttir og Sigríður Björnsdóttir
Anna Björnsdóttir og Erna Rósmundardóttir
Karolína Hallgrímsdóttir, Anna Snorradóttir og Anna Vignisdóttir
Björg Friðriksdóttir og Magðalena Hallsdóttir
Hrefna Hermannsdóttir
Björg Friðriksdóttir og Magðalena Hallsdóttir eru þarna að draga í happdrætti
Vinningar afhentir
Vinningar afhentir
Vinningar afhentir
Vinningar afhentir
Magðalena Hallsdóttir
Vinningar afhentir
Vinningar afhentir
Guðrún Elísabet Friðriksdóttir og Guðbjörg Friðriksdóttir
Björg Friðriksdóttir og Svala Bjarnadóttir
Svala Bjarnadóttir og Guðrún Elísabet Friðriksdóttir
Magðalena Hallsdóttir og Björg Friðriksdóttir
Margrét Einarsdóttir og Pálína Pálsdóttir
Stjórn Kvennfélags Sjúkrahúss Siglufjarðar: Björg Friðriksdóttir, Svala Bjarnadóttir, Magðalena Hallsdóttir, Guðbjörg Friðriksdóttir, Björk Hallgrímsson og Halldóra Jónsdóttir.
Kvenfélag Sjúkrahúss Siglufjarðar var stofnað 22. nóvember, 1953 í Lækjargötu 2 þar sem Versló er til húsa núna.
Tilgangur félagsins var að safna fé til væntanlegrar byggingar nýs sjúkrahúss og til að kaupa tæki og búnað í sambandi við rekstur sjúkrahússins.
Nýja sjúkrahúsið var síðan vígt 15. desember, 1966.
Formenn frá upphafi hafa verið eftirtaldar konur:
1. Bjarnveig Guðlaugsdóttir
2. Hildur Svavarsdóttir
3. Kristine Þorsteinsson
4. Anna Snorradóttir
5. Magðalena S. Hallsdóttir,
sem er búin að vera formaður frá árinu 1981 eða samtals 22 ár.
Aðaltekjulind félagsins var til að byrja með, basar sem haldinn var einu sinni á ári, en síðar sala á fermingarskeytum og afmælisskeytum en hugmyndina að þeirri fjáröflunarleið átti Ágústa Ragnars. Síðar komu til bingókvöld og basar, sem lauk með happdrætti. Oftast hafa þessi bingókvöld verið í nóvember og þeim hefur svo lokið með því að dregið er í happdrættinu. Vinningarnir er mestallir gefnir af félagskonum og fyrirtækjum í Siglufirði og víðar og öll vinna við undirbúning og í kringum þetta er unnin í sjálfboðavinnu.
Frá stofnun félagsins til 1980, reiknað með byggingarvísitölu og aftur frá 1980 til 1992 þá samkvæmt lánskjaravísitölu hafa gjafir K.S.S. til Sjúkrahússins numið 42.231.711 krónum. Þá er einnig rétt að telja framlög til Skálarhlíðar á árunum 1983 – 1993 framreiknuð samkvæmt lánskjaravísitölu alls að upphæð 8.653.148 krónur. Um næstkomandi áramót verða svo framlögin síðastliðin 10 ár framreiknuð og þá kemur sambærileg heildarupphæð í ljós.
Þetta er ekkert smáræði, sem við höfum safnað og gefið, enda höfum við haft eldhuga við stjórnun á félaginu þar sem er Magðalena S. Hallsdóttir. Hún hefur verið prímus mótor okkar allra. Stundum höldum við sem erum að störfum með henni að hugur hennar sé á hverjum degi ársins að einhverju leiti bundin við K.S.S. Við skulum votta henni virðingu okkar og þökk með því að rísa úr sætum og klappa henni lof í lófa.
Ennfremur þökkum við öllum fyrri formönnum og stjórnendum vel unnin störf í þágu félagsins.
Þá viljum við nota þetta tækifæri til að þakka ykkur öllum sem eruð í félaginu fyrir framlög, peninga, happdrættisvinninga og bingóvinninga gegnum öll árin og ennfremur fyrirtækjunum hér heima og annarsstaðar.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru í starfsemi félagsins, okkur til gamans á þessum 50 ára afmælisfagnaði. Það bíður hins vegar betri tíma að skrifa sögu K.S.S., en það væri alveg þess virði að það yrði gert.
Mig langar til að ljúka máli mínu með litlu ljóði, sem ég held mikið uppá og mér finnst passa við þetta tilefni. Ljóðið heitir Vinátta og það er einmitt sá andi sem ríkt hefur í þessu félagi.
Vinátta,
dýrmæt sem gull.
Þú átt hana
og gefur í senn.
Vinátta,
einstök sem demantur.
Endist um aldur
og ævi.
Vinátta,
Verðmæti, ekki í krónum talin.
Þú hvorki kaupir hana
né selur.
Vinátta,
sterk sem stál.
Þú getur ávalt leitað hennar
hjá sönnum vini.
Vinátta,
Kærleikurinn í vinarmynd.
Þakkaðu Guði fyrir, þá bestu gjöf
sem þú færð og gefur.