Sunnudagur 6. mars 2005
Ein gömul:
Þarna fékk þingmaðurinn duglegt "spark" í afturendann.
En þarna eru vinirnir Kristján Möller alþingismaður og Birgir heitin Steindórsson að bregða á leik sem unglingar á leið sinni í Æskó. 1964 +/-
Sunnudagur 6. mars 2005 -- Boccíamót Snerpu og Góugleði -- Mótið fór fram í gær í Íþróttahúsinu - og um kvöldið fór fram Góugleði á Kaffi Torg með hópnum og fleiri góðum gestum. Ég var þar fjarri góðu gamni, en kona mín Guðný Ósk Friðriksdóttir var þar, bæði keppandi og þáttakandi í Góugleðinni, auk þess sem hún tók myndavélina sína með.
Myndin hér fyrir neðan er af keppendunum, Smelltu HÉR til að skoða fleiri, ásamt veislunni á eftir Sparisjóðurinn styrkti keppnislið Snerpu til að kaupa nýja búninga, sem voru vígðir í gær.
Sunnudagur 6. mars 2005-- Aðsent: Ein lítil athugasemd. -- Varðandi fyrirlestur Þorsteins Hauks Þorsteinssonar, þá var þetta ákveðið fyrir mörgum mánuðum að hann kæmi til Siglufjarðar. Sjálfur vissi ég ekkert af ferð fermingarbarna til Reykjavíkur fyrr en á föstudagsmorgni, Þegar ég bað skólastjóra um að farið yrði inn í 8. bekk og tilkynnt um fyrirlesturinn og börnin hvött til að mæta. Hann var semsagt auglýstur þar. --
Einnig í Tunnunni. Það virðist bara því miður lítill sem enginn áhugi vera á svona málum hjá foreldrum eða kennurum. Einhver allsherjar deyfð yfir mannskapnum.
Ég minnist svipaðs fundar í fyrra eða hitteðfyrra, þar sem enginn kennari mætti. Sá fyrirlestur fjallaði um fíkniefnavandann og var ekki á kristilegum nótum, heldur á vegum SÁÁ, og í safnaðarheimilinu.
Ég bendi á, að foreldrar hefðu vel getað mætt á föstudagskvöld, þótt börn þeirra hafi verið í Reykjavík. Sjálfur er ég í fæðingarorlofi, þótt ég hafi auglýst fundinn fyrir Þorstein Hauk, og var ekki beðinn um að skipuleggja eitt eða neitt. Kveðja. SÆ
(Vegna athugasemda um sama mál í gær laugardaginn 5. mars - SK)
Sunnudagur 6. mars 2005 Aðsent:
Laugarásvídeó besta vídeóleiga landsins. -- Í gærkveldi var haldin árleg og myndarleg uppskeruhátíð allra þeirra sem standa að myndbanda markaðnum á Íslandi og kosið um hver væri m.a. besta spennumynd ársins, besta gamanmynd ársins og svo framvegis. Besta vídeóleiga landsins var hins vegar kosin á netinu og hin hálf-Siglfirska Laugarásvídeó stóð þar uppi sem sigurvegari.
Eftirmáli: Sæll Steingrímur.
Það var hringt í mig seint í gærkvöldi með þessar fréttir og ef þú getur eða vilt nota þær þá eru þær hér.
Ég er reyndar pínulítið montinn af þessu öllu og mun skrifa um þetta á síðunni minni en ekki er víst að þau skrif falli öllum í geð því þau verða ekki eins og einhver þægilega orðuð fréttatilkynning.
En aðstandendur leigunnar vilja þakka velunnurum sínum stuðninginn og lofa að halda áfram á sömu braut svo allir verði kátir í framtíðinni... Kveðja - Leó.
Sunnudagur 6. mars 2005
Loðna.
Færeyski loðnubáturinn SIKU var að landa í morgun um 1300 tonnum loðnu hjá Síldarvinnslunni.
Myndin tekin klukkan 09:30
Mánudagur 7. mars 2005
Ein gömul: Á þessari mynd má sjá mörg þekkt andlit Siglfirðinga, flestir þeirra eru farnir "yfir móðuna miklu" - en öll eiga þau sameiginlegt; Virtir borgarar Siglufjarðar.
Myndin er tekin við vígslu Sjúkrahússins 15. desember árið 1966
Þarna eru ma. td. Pál G Jónsson byggingameistari, Kristine Þorsteinsson (Ólafs Þorsteins læknis) Jakob Ármannsson Útvegsbanka starfsmaður, Birgir Gestsson rafvirkjameistari, Gísli Þorsteinsson bæjarverkstjóri, Steingrímur Kristjánsson apótekari, Jón Stefánsson Síldarútvegsnefnd, Kjartan Bjarnason Sparisjóðsstjóri, Garðar Hallgrímsson meinatæknir mfl., kona hans Guðlaug Jónsdóttir hjúkrunarkona, Guðrún Rögnvaldsdóttir kaupmaður og Anna Snorradóttir ofl.
Mánudagur 7. mars 2005 -- Þessi mynd var tekin klukkan rúmlega 15:00 í gærdag, og þarfnast vart skýringa, í forgrunni er gamall "barkur" skip sem hét Skoger og Siglufjarðarkaupstaður í bak.
Mánudagur 7. mars 2005 -- Loðnuskipið SIKU lauk löndun á tæpum 1300 tonnum af loðnu laust fyrir klukkan 15:00 í gær. Þarna sést er Siku leggur úr höfn á miðin á ný.
Frétt af síðu Síldarvinnslunnar (5.3.2005)
Loðnan lokar hringnum. Loðna hefur nú veiðst nánast allt í kringum landið á þessari vertíð. Í gær stóð veislan helst skammt norður af Siglufirði þar sem t.d. Börkur NK fékk 1700 tonn á hefðbundnum dagvinnutíma frá 8-17. Tvö eða þrjú önnur skip voru þar einnig og fengu góðan afla.
Margir bátar fengu góðan afla í gær NV af Dýrafirði, einn bátur fyllti út af Breiðafirði og fleiri fengu þar góðan afla. Fréttir berst frá Grímsey og innan af Skjálfanda og víðar og víðar. Það er helst á hefðbundnum loðnuslóðum suður af landinu sem lítið sést.
Þar á öll loðnan, sem mæld var í vetur og kvótinn var gefin út á, að vera. Rannsóknarskipið Árni Friðriksson er nú farinn til að skoða hvað gangi á og vonandi finna þeir týnda hluta.
Mánudagur 7. mars 2005 -- Byrjað var í morgun klukkan 07:00 á því að rífa húsið númer 6 við Lindargötu. Þar mun í staðin koma autt svæði; bílastæði?
Húsið við Lindargötu 6
Sturlaugur Kristjánsson, Hafþór Kolbeinsson, Árni Haraldsson og Hörður Hjálmarsson
Mánudagur 7. mars 2005 -- Ekki er mikill snjór í marsmánuði, það sem af er, miðað við mörg fyrri ár á Siglufirði. Það er með veðrið, þróun þess og hætti, ekki er vitað mikið meira um veðrið en loðnuna. Myndin er tekin fyrir hádegið í dag.
Mánudagur 7. mars 2005 -- Bjarni Ólafsson AK 70 kom inn núna klukkan 12:20 með um 1300 tonn af loðnu til löndunar hjá Síldarvinnslunni á Sigló
Mánudagur 7. mars 2005 Leiðrétting við athugasemd: Sæll. -- Ég fór dálítið fram úr sjálfum mér í síðasta bréfinu, (hér ofar á síðunni) vegna skrifa um fyrirlestur Þorsteins Hauks Þorsteinssonar. Ég ætlaði upp í gagnfræðaskólahús til að hitta 8. bekk að morgni föstudagsins, en hringdi á undan mér og ákvað í framhaldi af því að biðja Jónínu Magnúsdóttur um að koma ákveðnum upplýsingum varðandi fermingarundirbúninginn til 8. bekkjar, sem hún og gerði skilmerkilega.
-- Hins vegar ætlaði ég að biðja um að þetta með fund Þorsteins yrði ítrekað líka, en hef því miður gleymt því. Ég biðst afsökunar. --- Einnig hefur komið í ljós, að auglýsing Þorsteins í Tunnunni var villandi. Fyrst er talað um "fermingarbörn og foreldra þeirra", en síðar sagt að fyrirlesturinn sé opinn öllum. -- --- Það er því ýmislegt sem hefur lagst á eitt við að gera þetta sem erfiðast.
Hitt, þetta með almenna deyfð bæjarbúa í ákveðnum málum, held ég samt að geti staðist og mun útskýra það betur síðar. -- Bæjaryfirvöld eru þar ekki undanskilin, frekar en aðrir. En varðandi kennara í því sambandi er ég kannski að hengja bakara fyrir smið, og biðst afsökunar á því líka, ef svo er. --- Margir kennara eru nefnilega að fást við þessa hluti daglega í starfi sínu, og spurning hvaða kröfur er hægt að gera til þeirra utan þess. -- Hins vegar er nokkuð ljóst, að við sem hér búum verðum að standa saman í því sem að höndum ber, einnig að takast á við erfiða hluti í samfélaginu. Það leysist fátt af sjálfu sér. Og fíkniefnavandinn ekki. -- Kveðja. SÆ
Þriðjudagur 8. mars 2005 - Ein gömul: Til að mæta snjóleysinu að undanförnu, þá kemur hér ein mynd frá 1965 (+/-)
Mynd sem kalla mætti: Hvað er í bíó í kvöld?
Þriðjudagur 8. mars 2005
Vinna er nú hafin við að endurbyggja flóðvarnargarðinn við Hvanneyrarkrók, frá enda öldubrjótar alveg upp í krika. Verður garðurinn í sömu hæð og garðurinn austur af Öldubrjótnum, auk þess sem meira verður til hans vandað en áður.
Stórvirkar vinnuvélar verða notað til verksins.
Meðal annars er von á enn stærri vinnuvél en nú hefur hafið verkið, með "Jaxlinum" á morgun.
Ég staldraði þarna við í morgun og mér sýnist ekki skorta á fagmennsku og þekkingu hjá þeim sem þar stjórnaði vinnuvél, hann vissi nákvæmlega hvaða steinn passaði hér og þar og hvernig þeir ættu að snúa.
Greinilega vanur maður.
Þriðjudagur 8. mars 2005
Ég verð að játa að ég er ekki mikið gefin fyrir blóm, mín áhugamál eru á öðru sviði.
En ég fékk áðan (klukkan 12:00) ábendingu um að "vorið væri komið" - það er að ákveðin blóm; útsprungnar Prímúlur í garðshorni að Hólavegi 37 héldu það.
Ég fór á vettvang þegar ég hafði lokið við uppvaskið og sótti þær heim.
Myndin sýnir árangurinn. Húsráðandinn Stefán Jóhannsson var að renna í hlað er ég fór að munda myndavélinni - og hafði á orði að það gæfist ekki einu sinni tím til að hefja vorverkin, og benti á leifar frá síðastliðnum áramótum sem þarna voru enn. Prímúlurnar voru víðar útsprungnar þarna við tröppurnar að húsinu
Miðvikudagur 9. mars 2005 -- Ein gömul:
Verið er að undirbúa að hella í steypumót (stáli) hjá SR-Vélaverkstæði, en talsvert var um það að þar væru steyptir hlutir, allt frá dragarahjólum niður í flóknustu og smáa vélarhluti.
Myndin er tekin um 1964
Miðvikudagur 9. mars 2005 -- Loksins - loksins, fékk hún Margrét það útsýni sem hún hefur þráð í "40 ár". Nú er húsið Lindargata 6 horfið og komið bílastæði og útsýni frá húsinu hennar Margrétar, útsýni sem hún hefur ekki notið þaðan í rúm 40 ár. Væntanlega er hún ánægð. Til hamingju Margrét með útsýnið og afmælisdaginn þinn í dag. Myndin sýnir er verið var að slétta svæðið framan við hús hennar í gær.
Væntanlega verður þetta bílastæði malbikað í vor. ?
Miðvikudagur 9. mars 2005
Nýr bátur keyptur til Siglufjarðar;
Aggi SI 8 - Eigandinn Sverrir Sveinsson fv. rafveitustjóri ætlar að stunda þorskveiðar á komandi sumri. Hann varð of seinn til að sækja um byggðakvóta, en lét það ekki á sig fá.
Hann keypti sér kvóta. Báturinn kom eins og eldflaug inn spegilsléttan fjörðinn klukkan 16:56 er þessi mynd var tekin. Ég hafði ekki einu sinni tíma til að still myndavél mína.
Ekki er að efa að Sverrir og & muna fiska þann kvóta sem hann keypti.
Miðvikudagur 9. mars 2005 -- Frystiskipið Florindina var að losa hér í morgun stóran farm af frosinni rækju til Rækjuvinnslu Þormóðs Ramma. Myndirnar hér fyrir neðan
Miðvikudagur 9. mars 2005 -- Þessa litlu kisu vantar nýtt heimili. Hún fæst gefins með öllu tilheyrandi. Vandaða litla "húskörfu" til að sofa í, matarílát, dall til að sinna kalli náttúrunnar, leikföng og fleira. Hún er mjög vinaleg og falleg eins og sést á myndinni. Ástæðan fyrir þörf á nýju heimili er sú að dóttir þeirra hjóna Gumma og Röggu hefur slæmt ofnæmi fyrir köttum og uppgötvaðist ekki fyrr en eftir kisa litla var komin til þeirra og þau geta ekki hugsað sér að svæfa hana og leita því góðs heimilis. Hringdu ef þú hefur áhuga í síma 467-1735 + GSM 899-5735 + Ragna: 849-8426.
Miðvikudagur 9. mars 2005 -
Bjarni Ólafsson AK 70 kom inn núna í dag klukkan 12:15 með um 1300 tonn af loðnu til löndunar hjá Síldarvinnslunni á Sigló -
Enn einu sinni og aðeins 5 mínútum fyrr á deginum en þann 7. mars síðast liðinn (sést hér fyrir ofan) Og nú er komið vel yfir 30 þúsunda mörkin, magn af loðnu til Siglufjarðar - Og Siku er væntanleg um þrjú leitið í dag
Börnin taka lagið
Hér má sjá handverksfólk að störfum en afraksturinn er seldur til fjáröflunar fyrir heimili fyrir munaðarlaus börn og ungmenni í Maputo.
Miðvikudagur 9. mars 2005 Ágætu lesendur - - Aðsent.
Nú erum við sjálfboðaliðar úr Rauða kross deildum á Norðurlandi að leggja í hann til Mósambik, ásamt tveimur starfsmönnum Aðalskrifstofu, sem verða okkur til halds og trausts. Farið verður af stað næstkomandi föstudag og heimkoma er dagsett 20. mars. Flogið verður í gegn um London og Lissabon.
Rauði krossinn 2005
Rauða kross deildir á Norðurlandi hefja vinadeildarsamstarf við Mósambík.
Það er skrýtin tilfinning að vera að leita í gegn um skápana að sumarfötum, nú þegar við Íslendingar erum nýbúin að renna niður síðustu bitunum af þorramatnum. Tilefnið er ferð Rauða kross félaga til Maputo í Mósambik þar sem verið er að hefja vinadeildarsamstarf milli deildanna hér á Norðurlandi og deildarinnar í Maputo.
Ferðin hefst á föstudaginn (11. mars), þegar Lára Ellingsen og Hafsteinn Jakobsson frá Akureyrardeild, Katrín María Andrésdóttir frá Skagafjarðardeild og Guðný Björnsdóttir og Gestur Hrólfsson frá Aðalskrifstofu Rauða kross Íslands leggja af stað til Mósambik
Rauða kross deildirnar á Norðurlandi ætla að leggja heimamönnum lið með því að aðstoða við rekstur heimilis fyrir munaðarlaus börn og ungmenni. Tilgangur heimsóknarinnar er að byggja upp samstarf milli
Rauða kross deilda í þessum ólíku heimshornum og meta hvort og með hvaða hætti íslensku deildirnar geti komið að fleiri verkefnum. Verkefni af þessum toga eru undantekningarlaust mjög áhugaverð og lærdómsrík og auðga starf Rauða kross deildanna á Norðurlandi enda byggir samstarfið á því að miðla þekkingu og reynslu milli svæða.
Aðalskrifstofa Rauða kross Íslands hefur starfað um nokkurt skeið með Landsfélaginu í Mósambik
Óhætt er að segja að full þörf sé fyrir aðstoð Rauða krossins í Mósambik. Meira en helmingur þjóðarinnar lifir undir fátæktarmörkum, ungbarnadauði er með því mesta sem gerist og um fjórðungur barna undir fimm ára aldri er vannærður. Nokkur batamerki má þó sjá á efnahag landsins þar sem stjórnvöld hafa sett
metnaðarfulla stefnu í uppbyggingu samfélagsins eftir borgarastyrjöld og náttúruhamfarir síðustu áratuga. Verðbólga í Mosambik var 54% árið 1995 en var 12,9% árið 2004. Mikið verk er enn óunnið við uppbyggingu í landinu.
Af tæplega 19 milljónum íbúa Mósambik voru um 13% skráðir smitaðir af HIV veirunni árið 2003 og slæmt aðgengi að heilsugæslu gefur tilefni til að álykta að sú tala kunni að vera enn hærri í raun. Þegar 17 ára borgarastyrjöld lauk árið 1992 höfðu verulegar skemmdir orðið á samgöngukerfi landsins og enn leynast jarðsprengjur sem torvelda mjög jarðyrkju og aðra nýtingu lands.
Sjávarútvegur er nokkur í þessari fyrrum portúgölsku nýlendu enda standlengja landsins um 2500 km löng.
Sem fyrr sagði vinna heimamenn nú að uppbyggingu samfélagsins við erfiðar aðstæður. Það er ánægjulegt verkefni fyrir Rauða kross félaga á Íslandi að fá að taka þátt í þeirri uppbyggingu.
Á myndinni hér ofar til hliðar má sjá börn að syngja við móttöku Rauða kross fólks. ---
Rauði krossinn
Fimmtudagur 10. mars 2005 -- Ein gömul: Söngelskur og kátur hópur. - Myndin tekin á árshátíð skipverja á Hafliða SI-2 - Í marsmánuði árið 1966.
Þessi ljósmynd er að mörgu leiti nokkuð merkileg. En hún er sett saman frá tveimur ljósmyndum sem teknar voru á tvær filmu myndavélar nánast á sama augnabliki þar sem ljósmyndararnir stóðu hlið við hlið.
Aðra myndina tók Jóhann Örn Matthíasson og hina Steingrímur Kristinsson.
Nokkrum árum síðar með stafrænni tækni, skoðaði Steingrímur myndir frá þessum tíma í þeim tilgangi að setja tvær saman, þar sem myndin sem hann sendi með frétt til Morgunblaðsins, sáust ekki öll andlitin. Ekki fann hann neina í sínu safni sem hentaði.
Hann skoðað einnig myndir Jóa og fann eina líklega þar sem jafnvel gæti hentað við eina af hans myndum.
Nokkrar tilraunir gerði hann, og loka árangurinn er hér fyrir ofan.
Frásögn frá Morgunblaðinu má lesa HÉR -- Myndasyrpa HÉR
Föstudagur 11. mars 2005 --
Ein gömul:
Helena Sigtryggsdóttir og Jóhann G Möller á árshátíð SR 198?
Föstudagur 11. mars 2005
Úthlutun úr menningarsjóði Sparisjóðs Siglufjarðar fer fram á Kaffi Torg þriðjudaginn 15. mars kl. 20,30. Allir hjartanlega velkomnir, kaffiveitingar í boði Sparisjóðsins.
Stjórn menningarsjóða Sparisjóðs Siglufjarðar
Föstudagur 11. mars 2005
Snjöll hugmynd: Mér var bent á góða hugmynd til að bæta við flóru þá er við höfum uppá að bjóða hér á Siglufirði.
Nokkuð sem var til staðar hér í "gamla daga" þegar löndunarkranarnir hjá Rauðku og SR voru til. kaðlarnir voru alltaf til reiðu til að spranga á og voru þeir óspart notaðir á vorin áður en síldin kom. Hvernig væri það ef tildæmis "bærinn" kæmi fyrir slíkum möguleika með því að reisa mastur nálægt einhverju tjaldsvæðinu, eða á öðrum stað sem hentaði. Þetta þarf ekki að kosta mikið, einn langur staur og kaðalspotti, þessu yrðu bæjarkarlarnir fljótir að koma fyrir.
Auk þess þori ég að fullyrða að þetta mundi stytta þann tíma sem unglingarnir eyða í tölvuleikina, fyrir utan að styrkja vöðvanna með heilbrigðum leik. Meðfylgjandi mynd er af einum guttanum árið 1965 að spranga við Rauðkukranann. (vantar nafn hans) -- Ljósmynd: Halli Nonni.
Föstudagur 11. mars 2005
Ný heimasíða & Dagur kaffikönnunnar. Verkalýðsfélagið Vaka Siglufirði hélt upp á dag kaffikönnunnar í dag frá klukkan 13:00 til 18:00.
Heitt var á könnunni, að sjálfsögðu og ýmislegt góðgæti með. Allir voru velkomnir, það er opið bæði félagsmönnum sem utan félags. -
Þá var klukkan 16:00 opnuð formlega ný heimasíða félagsins http://www.vakasiglo.is/
Það gerði þessi stúlka sem ber nafnið Vaka eins og félagið. Fullu nafni heitir stúlkan Vaka Rán Þórisdóttir
Á síðunni má finna ýmsar gagnlegar upplýsingar sem nýtist bæði félagsmönnum sem öðrum. -
Því miður nú árið 2016 ! þá hefur Vaka gefið upp öndina og síðan einnig ! sk
Laugardagur 12. mars 2005
Ein gömul:
Nú þegar allir tala um hafísinn sem lónar fyrir Norðurlandi ætti ekki að saka að sýna hvernig umhorfs var í Hvanneyrarkrók árið 1963 - Jakar á floti um allan fjörð, landreknir og laskaðar bryggjur inni í höfn.
En ungviðið kærði sig kollótta og þótti þetta spennandi ævintýri sem og notað var til hins ýtrasta.
Laugardagur 12. mars 2005
Bæjarskiltið endurnýjað. Bæjarskiltið er skilti með yfirlitsmynd og gatnakorti af Siglufirði, sem er það fyrsta sem fólk rekur augun í er það kemur að bænum. -
Vinstra og hægra megin við kortið eru skráð fyrirtæki og stofnanir í Siglufjarðarbæ, vörumerki þeirra og upplýsingar um starfsemi, upptalning á þjónustu eða vörutegund ásamt símanúmerum hvers aðila.
Textinn er skráður á íslensku, ensku og þýsku. Einnig er hvert fyrirtæki staðsett með númeri á götukorti þannig að auðvelt er fyrir ferðafólk að rata á staðinn. Bæjarkortið er þannig andlit bæjarins og gefur upplýsingar um hvaða starfsemi er rekin í bænum og hvaða þjónustu þar er að fá. -- Bæjarskiltin eru mjög þörf fyrir bæjar- og sveitarfélögin og nauðsynleg þjónusta við ferðafólk. Skiltin eru víða um land og máluð í sömu áberandi litunum, vinsæl og mikið notuð. Forráðamenn fyrirtækja og stofnana eru hvattir til að skrá fyrirtæki sín þannig að starfsemi bæjarins verði sem best sýnileg á skiltinu. --- Annað skilti verður reist í eðlilegri fjarlægð frá væntanlegum jarðgöngum er þau verða tilbúin til notkunar, sagði einn bæjarráðsmaður mér. --- Söfnun skráninga er hafin, stendur út næstu viku og lýkur eftir páska. Um nýskráningar er að ræða en þeir sem þegar eru á skiltinu hafa forgang um pláss. --- Samband verður haft samband við forráðamenn fyrirtækja og stofnana sem og einnig haft samband við Ingimar í síma 866-0596 varðandi skráningar. --
Endurnýjun bæjarskiltisins er gerð í samstarfi við Bæjaryfirvöld á Siglufirði
Siglufirði, 8. mars: --- Frétt til Morgunblaðsins
FYRIR nokkrum dögun kom togarinn Hafliði, Siglufirði, inn á Siglufjörð úr utanlandssiglinu.
Í sjálfu sér er það ekkert markvert þó fréttist af togara koma frá erlendri höfn, en það sem skeð hafði um borð í þessum Siglfirska togara á útleið og heimleið, er sennilega einsdæmi í íslenska togaraflotanum og jafnvel þó víðar væri leitað.
Karlakórinn "Titlar" syngur -- stjórnandi, Sveinn Björnsson. Skipverjar hugsuðu málið, það var ekki úr mörgu að velja til skemmtunar um borð í togara, en góð ráð finnast um síðir. Bátsmaðurinn Sveinn Björnsson tók af skarið og tók að sér að stjórna skemmtiatriða leitinni og reka mannskapinn til dáða.
Undir hans stjórn tóku félagarnir að æfa söng og áður en langt um leið var 12 manna karlakór farinn að syngja hástöfum í takt við skröltandi keðjur, brotsjóa og harmonikkutóna; fjörug íslensk lög, lög eftir Sigurð Þórðarson og ýmis önnur góð skáld.
Vinur minn Jóhann Matthíasson, skipverji á Hafliða bauð mér og konu minni með sér á þessa "samkomu" sem byrjaði á því að frú Anna Egilsdóttir setti samkomuna og bauð skipverjum og gestum að fá sér kaffi og heimabakaðar tertur, sem voru þarna í tugatali.
Þegar skipverjar, konur þeirra og aðrir mættir, höfðu drukkið og etið nægju sína af því sem fram var borið hófust skemmtiatriðin.
Bátsmaðurinn Sveinn Björnsson, hóf kynningu þeirra á því að kynna, að loftskeytamaðurinn Þórður Jónsson myndi hafa með höndum spurningaþátt, ekki ósvipaðan þeim er Svavar Gests hefði haft, en á milli þátta spurninganna, myndi öðrum skemmtiatriðum blandað og var þá fyrst söngur 12 manna karlakór, sem skipverjar nefndu -"Titla". Þeir félagar voru hálf taugaóstyrkir til að byrja með en þegar þeir höfðu sungið tvö lög fóru þeir að styrkjast og voru nú nær óstöðvandi. --
Mesta lukku gerði lagið og vísan, "Á Sprengisandi", eftir Grím Thomsen, en það lag sungu þeir í "JENKA"-stíl.
Undirleik annaðist Lýður Ægisson háseti, á harmonikku. Söngstjóri var Sveinn Björnsson.
Þá kom fram söngkvartett ásamt gítarleik. Einleikur á harmonikku og fleira. Þá söng frú Ellý Birgisdóttir gamanvísur með undirleik Önnu Egilsdóttur, en efni gamanvísnanna var um skipshöfnina, konur þeirra, vinkonur ofl. og vöktu vísur og söngur mikla kátínu. Vísurnar voru eftir móður Ellýjar; Margrét Pálsdóttir.
Að lokum var stiginn dans. Skemmtunin öll tókst mjög vel, ekkert fyllerí og allt gekk með ró og spekt, þó „altalað" sé að Íslenskir sjómenn geti ekki "skemmt" sér nema ofurölvi.
Nei, þarna var enginn sjómaður ofurölvi. Og ég, landkrabbinn, skemmti mér ljómandi vel í þessum ánægða hóp. -- S. K.
Karlakórinn "Titlar" syngur
Ljósmynd: Jóhann Örn Matthíasson