Lífið 1.-7. janúar 2006

Fréttavefurinn Lífið á Sigló

1. Til. 7 janúar 2006

Sunnudagur 1. janúar 2006 Aðsent: Það var svo skemmtileg birta fyrir skömmu, skrapp fram í Hólsdal fram að stíflu. -- Tók nokkrar myndir sem fylgja hér með.

Þá er ein mynd af "brennunni" áður en borinn var að henni eldur á gamlársdag.

Okkar bestu nýársóskir - Jón Tryggvi og Lóa --- Smellið HÉR og skoðið svolítið öðruvísi myndir en venjulega birtast hér á síðu minni, og er góð tilbreyting sem segir manni að víða leynast skemmtileg

Sunnudagur 1. janúar 2006 Ein gömul:

Hallfríður Njálsdóttir - Ester Sigurðardóttir - Margrét Árnadóttir - Þórunn Guðmundsdóttir - Einar Albertsson og Þórður Þórðarson

Sunnudagur 1. janúar 2006 -- Karlakór Siglufjarðarhélt jóla tónleika síðastliðinn föstudag 30. desember 2005 - Þar komu einnig fram sem gestasöngvarar, Kvennakór Siglufjarðar. Sveinn Þorsteinsson sendi mér þessar myndir, sem teknar voru á vél hans, en hann syngur með karlakórnum.

Sunnudagur 1. janúar 2006 -- Síðbúin "litlu jól" hélt Mummi vinnufélögum sínum, gestum og gangandi rétt fyrir hádegið á gamlársdag.

Þar voru léttar veitingar á boðstólnum sem menn áttu auðvelt með að torga því gómsætt var það - Ekta Siglfirskir síldarréttir með hákarl, harðfisk og nóg að drekka. ---

Og þá er það ekki síður fréttnæmt að Norðurfrakt ehf og Flutningadeild Árna Helgasonar ehf í Ólafsfirði sameinuðust undir merkjum Norðurfraktar ehf þann 1. desember síðastliðinn ---- Í dag er Norðurfrakt ehf með 10 stóra flutninga og gámabíla í sínum rekstri auk sendibíla og lyftara og annarra hjálpartækja til að sinna viðskiptavinum sínum sem allra berst. --

Hjá Norðurfrakt ehf starfa um 20.manns flestir þó á Siglufirði og Ólafsfirði en við erum með afgreiðslur á Siglufirði Ólafsfirði og Dalvík. Að auki erum við með umboðsmenn á Hofsós Árskóssandi Hrísey og Grímsey .

Norðurfrakt er með daglegar ferðir á alla þessa staði með dagleg tengsl við áætlanir til og frá Reykjavík og Akureyri. -- Með þessari sameiningu er horft á að með tilkomu Héðinsfjarðargangnanna verði Eyjafjarðarsvæðið eitt atvinnu og þjónustusvæði. - Framkvæmdastjóri Norðurfraktar er og verður Ásmundur Einarsson. Myndasyrpa HÉR

Sunnudagur 1. janúar 2006

Það þarf að gera meira varðandi það að koma á loft flugeldasýningu, heldur en að læðast að þeim með eldspýtur eins og gert var hér á árum áður. Nú eru fjöldaskot flugelda sem og flugeldasýningar stranglega bannaðar nema viðkomandi aðilar hafi með í ráðum og stjórn verksins, mann sem til þess hefur notið þjálfun og réttindi. Nú kostar það þessa sjálfboðaliða sem að þessu vinna margra daga undirbúningsvinnu áður en til "skotbardagans" kemur, sem þá er tiltölulega einfalt og hættulaust sé farið að settum reglum. Nú þarf ekki að eiga á hættu (þegar allir eru hættir að reykja !) að enginn hafi munað eftir að taka með sér eldspýtur, því nú er aðeins stutt á takka. og viðkomandi sprengjugarpar geta gefið sér tíma til að sjá þá fegurð sem þeir framkvæma.

Ég leit við hjá þessum duglegu drengjum í gær þegar þeir voru að vinna

Myndir Hér

Sunnudagur 1. janúar 2006 Gamlárskvöld 2005-2006 -- Vinstri myndin er tekin klukkan rúmlega 21 í gærkveldi, ég valdi ekki góðan stað (ofan við vatnstanka) til tökunnar, þar sem ég taldi drengina ætla að vera mikið norðar í fjallinu en raunin varð, þannig að þrátt fyrir mikla "brennivídd" þá var ég of nálægt vettvangi. Hin myndin er tekin um miðnættið, til suðurs yfir bæinn. -- Ég held ég hafi aldrei séð annað eins flugeldaflóð á jafn litlu svæði og núna, það gerði það að verkum að ekki var hægt að hafa myndavélina opna (ljósopið) nema 5-10 sekúndur, í stað þess að í "gamla daga" hafði maður opið í 10-20 mínútur með góðum árangri,

Sunnudagur 1. janúar 2006


<<<<<< Aðsendar áramótamyndir:


Tvær þær fyrri frá Sveini Þorsteins, en þá seinni, kirkjan, tók séra Sigurður Ægisson

Sunnudagur 1. janúar 2006 -- Misheppnuð tilraun - Eins og ég sagði frá þá var vefmyndavélin beint til norðurs á eitt sjónarhorn nú um áramótin.

Árangurinn varð víst ekki eins og ætlast var til, það er að sýna flugeldaskotin.

Ég hafði að vísu ekki sjálfur kost á að skoða árangurinn á þeim tíma sem flestra skota mátti vænta, þar sem ég var á að sinni myndatökum annarsstaðar, en margir hafa látið mig vita af því að þetta hafi ekki verið nógu gott, raunar varla þess virði að eyða tíma í að skoða. --

Sjálfur fór ég að skoða um 20 mínútum eftir miðnættið, en þá var sjónarhorn vélar orðið breytt af orsökum sem ég kann ekki skýringu á, en álagið var það mikið á vélinni að það leið um 15-20 sekúndur á milli ramma, í stað 1 ramma á sekúndu sem er eðlilegt á þeim tíma. Ég fór til að skoða teljarayfirlit mitt og sá þá að á þeim tíma 00:20 voru 49 með vélina opna og á milli 400-500 höfðu smellt á vélina frá því fyrir miðnættið.

Staðreyndin er sú að bandvídd sá og hraði sem ég greiði fyrir er ekki næg við slíkar aðstæður. Þetta er spurning um peninga og aftur peninga. + tækni--- Myndin hér er frá vefmyndavélinni klukkan 14:40 í dag


Mánudagur 2. janúar 2006

Ein gömul:

Svandís Guðmundsdóttir - Þórarinn Vilbergsson - Fanney Sigurðardóttir - Bjarni Þorsteinsson - Fjóla Þorsteinsdóttir - Einar Hallgrímsson (á bak við) - og Pétur Pálsson

Mánudagur 2. janúar 2006 Ártalið 2006 Ljósmyndirnar tvær hér fyrir neðan: Sveinn Þorsteinsson


Mánudagur 2. janúar 2006


Aðsent fróðleikskorn, úr Dönsku blaði. ---

Ljósmynd fylgdi greininni. - Hús á Siglunesi

--------------------------------------------------

Ein saklaus spurning, nú árið 2019 þegar uppfærsla þessa vefs fór fram:

Hvers vegna eru steinsteypt hús og mannvirki á Íslandi jafn endingarsnauð og raun ber vitni?

Húsin á Ísland, eru í meirihluta orðin mjög viðhaldsmikil eftir aðeins nokkur ár, jafnvel 1-5 árum eftir að flutt er í þau. Leki, rakaskemmdir og stórar og smáar sprungur hér og þar að utan sem innan.

Hvers vegna endast steinsteypt og hlaðin hús víðast erlendis í hundruð ára, jafnvel í þúsundir ára án þess að hrynja, og í þeim búið enn, eða notuð til annarra gagna ?

Þekkja verkfræðingar, efnafræðingar og arkitektar á Íslandi, ekki þau leyndarmál sem „samherjar“ þeirra kunnu hér áður fyrr ? Eða er þetta allt saman verktökunum að kenna ?

sk

Þriðjudagur 3. janúar 2006

Ein gömul:

Ásdís Magnúsdóttir -- Anna Vignisdóttir - María Karlsdóttir

Þriðjudagur 3. janúar 2006 - Herhúsið hefur komið sér upp heimasíðu, þar sem starfsemin og húsakynnin eru kynnt Tengillinn til síðunnar er www.herhusid.com

Miðvikudagur 4. janúar 2006 - Steypt í janúar, það er óvenjulegt á Siglufirði en það gerðu þeir félagar sem hafa verið að dytta að "Ytra húsinu" við Aðalgötu.

Þarna eru þeir að steypa endurnýjaðan sökkul undir norðurstafni hússins: Sveinn Þorsteinsson, Páll Helgason og Örlygur Kristfinnsson. Myndin var tekin laust eftir hádegið í dag, en vorveður ríkir nú á Siglufirði, 12 °C hiti í morgun og enginn snjór nema til fjalla

Miðvikudagur 4. janúar 2006

Ein gömul: Hvað ætli þær heiti þessar hnátur ?

Ólöf Daníelsdóttir og Sigríður Sóley Hafliðadóttir


Fimmtudagur 5. janúar 2006

Ein gömul:

Heimir Sverrisson, sonur Sverris Óla og Bjargar- og

Gústaf Guðbrandsson, sonur Guðbrandar og Gunnjónu

Fimmtudagur 5. janúar 2006

Íbúum við Eyjafjörð fjölgar um 0,8% - Ekki var það þó fjölgun á Siglufirði, sem þátt tók í heildar fjölguninni, því hér fækkaði því miður um 42 íbúa eða um 3 % samkvæmt neðanskrifuðu, fengið að láni frá www.dagur.net

Íbúum fjölgar auk þess um 20 í Svalbarðsstrandarhreppi, úr 362 í 382 eða um 5.5% og í Hörgárbyggð um 8, úr 391 í 399 sem eru 2%. Annars staðar fækkaði.

Hlutfallslega fækkaði mest í Grýtubakkahreppi um 5,7% en þar fækkaði íbúum um 22, úr 388 í 366.

Á Siglufirði fækkaði um 42 eða um 3%, á Ólafsfirði fækkaði um 34 eða um 3,5%, í Dalvíkurbyggð fækkaði um 6 manns eða 0,3%, í Arnarneshreppi fækkaði um 8 eða 4,3% og í Eyjafjarðarsveit fækkaði úr 995 í 978 eða um 17 manns sem eru 1,7%.

Fimmtudagur 5. janúar 2006 Þessa mynd tók Guðmundur J. Albertsson á gamlársdags kvöld. Hann gleymda að setja með myndinni skýringu, en ég held að flestir viti hvaðan myndin er tekin og af hverju. Myndasmiðurinn hefur greinilega staðið einhversstaðar austur af norðurhluta flugvallarins og beint myndavélinni nánast beint upp í loftið til austurs. Fjallstopparnir upplýstir af áramótaflugeldum og norðurljósin og stjörnurnar skreyta himinhvolfið. Ég man eftir þessu sjónarspili, en var "of upptekinn" við nánast misheppnuð skot á flugeldasýningu. --- Hann sendi mér einnig myndaseríuna sem ná má til hér til hliðar

Fimmtudagur 5. janúar 2006

Frá skemmtun Karlakórs Siglufjarðar 30 desember síðastliðnum.

Myndasyrpa: Guðmundur Albertsson.


Fimmtudagur 5. janúar 2006

Að kröfu Samkeppnisstofnunar, þá hafa tengsl á milli Olís og Olíudreifingar verið rofin, það er þau sýnilegu. Hér á Siglufirði kom þetta til framkvæmda nú um áramótin, þannig að sérstakur starfsmaður var ráðinn hjá Olíudreifingu og hefur hann aðsetur á lóð Olíudreifingar við olíutanka félagsins -

Þeir sem þurfa á olíu að halda hringja þangað (864-1120) raunar einnig til Olís og Esso sem hingað til.

Ég heimsótti nýráðinn starfsmann félagsins; Áki Valsson í húsakynnum í olíuportinu. Húsakynnin eru enn þau sömu og byggð voru í tíð BP eins og fyrirtækið sem þar réði ríkjum snemma á fyrri öld var kallað - og síðar Olís.

Næstkomandi vor stendur til að rífa þennan skúrræfil sem gengt hefur sínu hlutverki dyggilega, og byggja nýja aðstöðu í takt við tímann.


Fimmtudagur 5. janúar 2006

"Vængjuð" ský báru við Strákafjall, séð frá stéttinni heima við hús mitt í hádeginu í dag (12:07)

Áberandi er strýtan á brúninni, sem fyrirmynd af félagamerki Björgunarsveitarinnar Strákar er sótt til.

Fimmtudagur 5. janúar 2006

Áskorun:

Við skorum á foreldra að sjá til þess að börn þeirra beri endurskinsmerki nú þegar stærsti hluti sólarhringsins er myrkvaður. Brátt fara jólaljósin að slokkna og snjóleysið eykur enn á myrkrið. Dökkklædd börn á ferð í myrkri sjást mjög illa og endurskinsmerki getur skipt sköpum.

Með nýárskveðju. Starfsfólk Grunnskóla Siglufjarðar. ---------------

Mig langar til að bæta við þessa áskorun: Þeir sem eru á göngutúr eða að skokka á Langeyrarvegi og víðar er sérstaklega bent á að fara að óskum ofannefndra -- OG ekki hvað síst; verið á RÉTTUM KANTI -- Ekki snúa baki í umferðina, gangið / hlaupið á móti umferðinni. Bifreið er ekið samkvæmt lögum á hægri akrein, gangandi / hlaupandi vegfarendur eiga að vera á vinstri akrein miðað við stefnu SK

Föstudagur 6. janúar 2006 --

Ein gömul: Systurnar Regína Mikaelsdóttir og Þórdís Mikaelsdóttir.

"Fatahengisdömur" á Hótel Höfn

Föstudagur 6. janúar 2006

Saga: "Fólk eldra en 30 ætti að vera dáið!" --

Öllu gamni fylgir einhver alvara

Smá skrif hér neðst á þessari síðu.

Brosið

Föstudagur 6. janúar 2006 -- Seinni partinn í gær veittu Arnar Heimir Jónsson og Egill Rögnvaldsson fh. bæjarins, einnig viðurkenningu fyrir fallega jólaskreytingu vegna hússins við Ártún 2. Við henni tók Salome Gestsdóttir á vinnustað sínum Gallerí Sigló.

Föstudagur 6. janúar 2006 -- Seinni partinn í gær veittu Arnar Heimir Jónsson og Egill Rögnvaldsson fh. bæjarins, Sambýlinu við Lindargötu viðurkenningu fyrir fallega jólaskreytingu húsnæðisins. Myndin hér til vinstri er tekin við það tækifæri af

viðstöddum; vistmönnum og starfsfólki ásamt Arnari og Agli --- Hin myndin er af húsi Sambýlisins, kirkjan í baksýn.

Föstudagur 6. janúar 2006

Aðsend mynd

Arnar Heimir sendi mér þessa mynd, en hann mætti þessum heiðursborgurum á torginu 4. janúar síðastliðinn.

Þetta eru Örlygur Kristfinnsson, blómarósin Siv Friðleifsdóttir og Páll Helgason í góða veðrinu, framan við Ráðhúsið.

Föstudagur 6. janúar 2006

ENDURSKINSMERKI -- í morgun kom á vefinn minn áskorun frá Starfsfólki Grunnskóla Siglufjarðar þar sem fólk var vatt til að nota endurskinsmerki. Það er greinilegt að fólk hefur tekið við sér hvað það varðar ef marka má símhringingar og tölvupósta sem ég hefi fengið. Efni viðkomandi boða voru þó ekki beint um hvatninguna sjálfa, heldur spurningin um:

Hvar fást endurskinsmerki hér í bæ ? Sjálfur hefi ég ekki leitað af þeim í verslunum, en eftir spurningunum að dæma, þá virðast endurskinsmerki ekki fáanleg á Siglufirði. -- Vinsamlega gefið mér ábendingu um ef viðmælendur mínar hafa farið á mis við einhvern staðinn þar sem hægt er að kaupa slík merki.

Ein vísbending komin: Það fást endurskinsmerki í APÓTEKINU

Föstudagur 6. janúar 2006

GUNNELLA er óvenjulegt nafn, en margir munu þó muna eftir því, þetta er listamannsnafn listakonu sem er uppalin í Reykjavík en á ættir sínar að rekja til Siglufjarðar, og á héðan margar minningar. Gunnella hélt í júlímánuði 2004 sýningu í Ráðhúsinu á Siglufirði og var meðfylgjandi mynd tekin við það tækifæri, á myndinni er Gunnella ásamt erlendum manni sem var henni til aðstoðar.

Mér var bent á heimasíðu hennar sem er þess virði að eyða tíma á.

Tengillinn er HÉR Tengill óvirkur í dag

Föstudagur 6. janúar 2006 ENDURSKINSMERKIN Nýjar fréttir: Sparisjóðurinn gaf 250 endurskinsmerki til skólans í gær -- Auk þess er nóg til í Sparisjóðnum. Viðskiptavinir geta fengið endurskinsmerki gefins á meðan birgðir endast


Laugardagur 7. janúar 2006

Ein "gömul" Þessi steinn er jú örugglega gamall, og listaverkið fæddist einnig fyrir allmörgum árum, mikill aldursmunurinn. -

Ég held ég fari nokkuð nærri um tökuár þessarar ljósmyndar og að það hafi verið árið 1992, stuttu eftir að listamaðurinn Ragnar Páll hafði frískað upp á gamla minningu, það er farið yfir daufa liti þess sem regn og vindar höfðu sorfið. --

Flestir Siglfirðingar vita að þessi steinn og listaverk er við veginn á leið upp í Siglufjarðarskarð, og litirnir eru sennilega aftur farnir að dofna og ekki eins áberandi og árið sem myndin var tekin

Laugardagur 7. janúar 2006

Fyrsti Siglfirðingur ársins fæddur (?)

Halló- er þetta fyrsti Siglfirðingurinn á árinu? Dóttir Auðar hennar Reginu og Einars.

Til hamingju Auður og amma og afi kveðja frá Álasundi.

Gleðilegt ár til allra Siglfirðinga, Jens Og Sigrún Fidda.

Stúlkan er fædd hinn 4. janúar kl. 21:45 og var hún tæpar 18 merkur

Laugardagur 7. janúar 2006 KIWANIS - BRENNAN. Safnast verður saman verður saman á Torginu klukkan 16:45 og farið í fjöldagöngu áleiðis á brennustað og þar verður kveikt í brennustaflanum klukkan 17:00

Aldursmörk

Öllu gríni fylgir einhver alvara !

Saga: Fólk eldra en 30 ætti að vera dáið!


Sjúkket maður, ég er orðin 30 ára. Fólk eldra en 30 ætti að vera dáið! (eða vorum við bara heppin?)

Ég var að spjalla um daginn við vin minn um þá "gömlu góðu daga" og við komumst að því að fólk sem er eldra en 30 ára ætti í raun að vera dáið. Já, samkvæmt löggjöfum og skriffinnum nútímans ættu þau okkar sem voru börn á 5., 6., 7. og fyrri hluta 8. áratuga síðustu aldar ekki að hafa lifað af.

HVERS VEGNA VAR ÞESSI NIÐURSTAÐA OKKAR SVONA?

- Jú, barnarúmin okkar voru máluð með blýmálningu.

- Það var engin barnalæsing á lyfjaglösum, hurðum eða skápum

- og þegar við hjóluðum notaði ekkert okkar hjálm.

- Sem börn sátum við í bílum án öryggisbeltis og/eða púða.

- Að fá far á vörubílspalli var sérlega gaman.

- Við borðuðum brauð með smjöri, drukkum gos með sykri, en fæst okkar lentu í offituvandamálum, því við vorum alltaf úti að leika, við deildum gjarnan gosflösku með öðrum og allir drukku úr sömu flöskunni án þess að nokkur létist.

-Við vörðum löngum stundum í að byggja kassabíl úr dóti og drasli og þutum á honum niður brekkuna, bara til að uppgötva að við höfðum gleymt bremsunum. Eftir nokkrar veltur lærðum við að leysa vandamálið.

-Við forum að heiman snemma á morgnanna til að leika okkur allan daginn og komum aftur heim í kvöldmat Enginn hafði möguleika á því að ná í okkur yfir daginn.

-Engir farsímar. Ha, engir farsímar? Óhugsandi! Sumir áttu litlar talstöðvar sem var flott að eiga!

-Við áttum ekki Playstation, Nintento 64, X-box, enga tölvuleiki, ekki fjölmargar rásir í sjónvarpinu, ekki video, ekki gervihnattasjónvarp, ekki heimabíó, farsíma, heimilistölvu eða spjallrásir á Internetinu.

-Við eignuðumst vini! Við fórum bara út og fundum þá.

-Við duttum í skurði, skárum okkur, fótbrotnuðum, brutum tennur, en enginn var kærður fyrir þessi óhöpp. Þetta voru jú óhöpp. Það var ekki hægt að kenna neinum um? nema okkur sjálfum. Manstu eftir óhappi?

-Við slógumst, urðum blá og marin og lærðum að komast yfir það.

-Við lékum okkur í nýbyggingum, fundum upp leiki með naglaspýtum og drasli og átum maðka og reyktum njóla. Þrátt fyrir aðvaranir voru það ekki mörg augu sem duttu út og ekki lifðu maðkarnir inni í okkur til eilífðar og margir gáfust upp á fyrsta njólanum!

-Við hjóluðum eða gengum hvert til annars, bönkuðum á dyrnar, gengum inn og létum eins og heima hjá okkur.

-Við lékum okkur úti eftir kvöldmat, fórum í fallin spýta, eina krónu, eltingaleik eða feluleik, svo ekki sé minnst á löggu og bófa. Svo þegar aldurinn sagði til sín fórum við í kossaleik og eignuðumst kærustu/kærasta.

-Það þurfti engar félagsmiðstöðvar eða neina til að stjórna okkur - Við stjórnuðum okkur sjálf.

-Sumir nemendur voru ekki eins glúrnir og aðrir, þeir lentu í tossabekk. Hræðilegt.... En þeir lifðu af.

-Engin vissi hvað Rítalín var og engin bruddi pillur sem barn.

-Það var farið í þrjúbíó á sunnudögum með popp með sér og kakó á Lybbís-flösku, og Andrés Önd var á dönsku, sem hefur hjálpað mörgum námsmanninum í að fóta sig í Norðurlandamálunum seinna meir.

-Við fórum í sunnudagsskóla eða sóttum KFUM og K, sungum og vorum í Skátunum og lærðum hnúta og kurteisi.

-Ef það sprakk á hjólinu lagfærðum við það í sameiningu og alveg sjálf.

-Morgunkornið okkar var m.a. TRIX morgunkorn, og við lifðum af litarefnið í því...

OG AFLEIÐINGIN ER ÞESSI!

Síðustu 50 ár hafa verið sprengja nýsköpunar og nýrra hugmynda. Við áttum frelsi, sigra ósigra og ábyrgð og við lærðum að takast á við það allt saman. Við sem ólumst upp áður en löggjafi og stjórnvöld settu lög og reglur um líf okkar sem þeir segja að sé ,,okkur sjálfum fyrir bestu?.

Þessi kynslóð hefur alið af sér fólk sem er tilbúið að taka áhættu, góð að leysa vandamál og bestu fjárfestar nokkru sinni.

Sigurður Fanndal