Sunnudagur 15. ágúst 2004 Ein gömul:
Hver þekkir þessa krakka?
Sunnudagur 15. ágúst 2004 - Svona er á Sigló, segir Sveinn Þorsteinsson, sem tók þessa mynd seinnipartinn í gær- og sendi mér, ásamt myndum sem hann tók af húsum á rölti sínu í góða veðrinu. Smelltu HÉR til að skoða
Sunnudagur 15. ágúst 2004
Nokkrir skipverjar af Mánafoss slöppuðu af og skoðuðu Síldarminjasafnið, en þeir luku við losun og lestun hér fyrr en venjulega og skoðuðu safnið skömmu áður en haldið var úr höfn áleiðis til Dalvíkur.
Á myndinni eru auk skipverja,
Sigurður Sigurðsson hafnarvörður lengst til vinstri, börn skipverja sem með voru í för og Hreiðar Jóhannsson starfsmaður Þormóðs Eyjólfssonar lengst til hægri. (Eimskip) Nöfn skipverja hefi ég ekki.
Mánudagur 16. ágúst 2004
Ein gömul: 1963 +/-
Hörkuskot, en hvar er boltinn?
Hann fór yfir markið; kappleikur K.S. og Hofsós í handbolta kvenna.
Guðný Ósk Friðriksdóttir, þarna í markvörslu
Þriðjudagur 17. ágúst 2004
Eldri borgarar á Siglufirði lögðu af stað í morgun klukkan 08:00 í 5 daga ferðalag vestur á Ísafjörð og nágrenni. Það var ánægjusvipur á fólkinu við brottför í morgun, eins og sjá má á nokkrum myndum sem ég tók við það tækifæri.
(ég fór ekki með- er ekki nógu gamall !)
Þriðjudagur 17. ágúst 2004 - Það var friðsælt í Bátahöfninni í morgun upp úr klukkan 08:00
Þriðjudagur 17. ágúst 2004 Ein gömul: Íslandsmót í göngu;
Gústaf Nílsson og Birgir Guðlaugsson
----------------------------------------------
Miðvikudagur 18. ágúst 2004
<<<<<<<< Þessa mynd tók ég síðastliðinn mánudag.
Þetta eru feðgarnir Júlíus Gunnlaugsson og Sverrir Júlíusson að slappa af í sólinni fyrir utan Bensínstöðina. Sá gamli kælir sig með ís.
Miðvikudagur 18. ágúst 2004 Ein gömul: 1963 +/-
Sveinn Sveinsson og Gunnar Guðmundsson í harðri baráttu uppi á Súlum.
Skíðamót í göngu
Miðvikudagur 18. ágúst 2004 Aðsent: Sendi þér hérna myndir af flottum kletti sem er í klettabeltinu fyrir ofan byggðina, hann stendur nú ekki á traustum grunni! - Ef hann rúllaði niður myndu nýju flóðagarðarnir gera sitt gagn. Kveðja, Margrét Ósk
Miðvikudagur 18. ágúst 2004
Ég frétti af því að Sveinn Rúnar Hauksson læknir hefði komið til Siglufjarðar, hann er vel þekktur undir nafninu berja doktorinn og fyrir þekkingu sína og störf í þágu Félags Palestínumanna á Íslandi. Hann hefur farið til berja hér innan fjarðar og einnig farið til Héðinsfjarðar og með honum var Valþór Stefánsson læknir.
Erindi Sveins hingað var að kanna ástand berjalanda hér fyrir norðan, í Fljótunum, Siglufirði og Héðinsfirði. Meðal þess sem úr þeirri rannsókn og yfirferð kom; var að berin eru allsstaðar orðin vel þroskuð og raunar vikum fyrr en venjulega. En borið hefur á einni tegund lirfa sem farin er að gæða sér á lynginu og hvetur hann eindregið til, að fólk sem á annað borð ætlar til berja, fari fyrr en seinna til þess, því gera má ráð fyrir að annars verði lirfurnar búnar að eyðileggja vaxtarmöguleika berjanna innan skamms tíma. Ég heimsótti Svein og konu hans Björk Vilhelmsdóttir, þar sem þau dvelja í Sæbylhúsinu. Þar voru einnig fyrir; Örlygur Kristfinnsson safnvörður og Páll Helgason. Ég þáði þar kaffi og heita ástarpunga- og auðvitað ber. Myndirnar skýra sig sjálfar, en myndin af laufblaðinu er af berjalyngi- og sýnir hvernig lirfa er búin að éta og mergsjúga það.
Fimmtudagur 19. ágúst 2004 Ein gömul:
Síldarstúlkur: Kristín Friðleifsdóttir - Guðborg Franklínsdóttir - Steinunn Bergsdóttir - Arnfríður Kristinsdóttir - Sigrún Jónsdóttir - Halldóra Jónasdóttir og Hrefna Hermannsdóttir.
Fimmtudagur 19. ágúst 2004
Einhver hreyfing er komin á svæðið við væntanlegt brúarstæði yfir Hólsána, en Verktakinn Bás (under verktaki) hefur verið að breyta farvegi árinnar vegna væntanlegra framkvæmda sem fyrirtækið Mikael e.h.f. hefur tekið að sér.
Þeir eru búnir að draga gardínurnar frá í vinnuskúrnum sem kom fyrir um 10 dögum- og að mér sýndist; einhver var að hella upp á könnuna í morgun er mig bar að.
Ekki heimsótti ég þá að sinni- en það mun ég gera þegar þeir eru byrjaðir og allur mannskapurinn kominn !
Fimmtudagur 19. ágúst 2004 Ekki virðist vera von á uppákomum á Torginu á næstunni- eins og verið hefur í hverri viku í sumar. Starfsmenn bæjarins eru byrjaðir að taka í sundur Torgsviðið.
Föstudagur 20. ágúst 2004 Ein gömul: Hallvarður Óskarsson trommur - Leifur Halldórsson - Jóhann Ólafsson - og Sigurður Fanndal.
Föstudagur 20. ágúst 2004
Skattstjórar víða að af landinu ásamt starfsliði sínu, ráðuneytisstjóri og fleiri embættismenn komu gangert í heimsókn í Síldarminjasafnið seinnipart í gær.
Þetta var 55 manna hópur sem naut leiðsagnar Boga Sigurbjörnssonar skattstjóra og Örlygs Kristfinnssonar safnvarðar um safnið- og þáði hópurinn hinar hefðbundnu veitingar, síldarréttir og brennivín, þeim sem vildu og aðrar léttari veigar.
Bogi sagði gestina mjög ánægða með heimsóknina- og safnið í heild.
Laugardagur 21. ágúst 2004
Ein gömul: Nýja Bíó 1964(+/-) Verið er að horfa á Bítlana á hvíta tjaldinu. (?)
Laugardagur 21. ágúst 2004 Hafrannsóknarskipið
Bjarni Sæmundsson RE kom hingað laust fyrir klukkan 10 í morgun. Þeir skoða ef til vill í leiðinni síldartorfurnar sem enn eru á fullu hér innanfjarðar sem utan.
Laugardagur 21. ágúst 2004
Gæsaveiðitíminn, er víst hafinn.
Þetta er Sævar Guðjónsson, nýkominn úr veiðiferð með stóran feng sem hann fékk í félagi við annan.
Þarna er hann að "plokka" eina gæsina- en gaf sér tíma til að líta við fyrir ljósmyndarann.
Laugardagur 21. ágúst 2004 -- Tveim krakkar úr Suðurbænum.
Erfitt var að fá strákinn til að brosa. Nöfn þeirra hefi ég ekki.
Laugardagur 21. ágúst 2004 Litlu munaði að einn af grjótbílum Suðurverks færi nokkrar veltur niður hlíðina ofan við bæinn, þegar jarðvegurinn brast undan fulllestuðum bílnum. En rétt viðbrögð bílstjóra og fagleg vinnubrögð félaga hans komu bílnum aftur á öruggt svæði. Þetta skeði um klukkan 17:15 í dag.