Hráefni:
- 3 dl hveiti
- 3 dl sykur (má minnka í 2 dl)
- 3 dl haframjöl
- 2 tsk matarsódi
- 1 tsk allrahanda
- 1 tsk negull
- 1 tsk kanill
- 1 tsk engifer
- 3 dl mjólk
Aðferð:
- Stillið ofn á 180°C
- Blandið öllum þurrefnunum saman í skál.
- Bætið mjólkinni út í og hrærið þangað til deigið er orðið samfellt.
- Passið að hræra ekki of lengi.
- Látið í vel smurt og hveitistráð aflangt mót.
- Bakið í miðjum ofni við 180°C í u.þ.b. 45 mín.
(Uppskrift frá Guðrúnu Sigurðardóttur, heimilisfræðakennara)