Post date: Jan 07, 2011 10:58:54 AM
1 stk rauð paprika
1 stk rauðlaukur
1 stk laukur
500 g nautahakk/kjúklingur
8 dl vatn
1 stór dós tómatapurre
1 dós tómatar hakkaðir
1 dós chilibaunir
200 g rjómaostur
5 dl matreiðslurjómi
krydd:
1/2 grænmetis-/kjúklinateningur
Hvítlaukur/hvítlauksduft eftir smekk
Salt
Pipar
Sæt chilisósa eftir smekk
Skerið lauk og papriku í litla bita og steikið þar til laukurinn er orðinn glær.
Steikið nautahakkið eða kjúklinginn og blandið öllu nema rjómaostinum og rjómanum. Kryddið eftir smekk og látið malla í svolitla stund með lokið á.
Bætið rjómaostinum í og svo rjómanum og hitið í 5 mín.