Þessi uppskrift er fengin frá Betu. Hún Beta klikkar aldrei þegar kemur að girnilegum mat.
Botn
100g makkarónur
100g hafrakex
100g smjör, brætt
Myljið kexið og makkarónurnar fínt og blandið smjörinu saman við. Þrýstið mylsnunni í botninn á kringlóttu móti ca. 24 cm í þvermál. Látið botninn kólna vel.</p>
Fylling
2 1/2 dl rjómi
1 1/2 dl hrísgrjón, soðin
1 1/2 dl ananasbitar
100g rjómaostur, hreinn
100g sykur
3 msk romm, dökkt eða 1 msk rommdropar
2 msk kókosmjöl, ristað
1 msk heslihnetur grófsaxaðar, ristaðar
5 stk matarlímsblöð
2 stk eggjarauður
safi úr hálfri sítrónu
Hellið romminu saman við hrísgrjónin og látið þau bíða. Hrærið rjómaostinn mjúkann og bætið við sykri og eggjarauðum. Leggið matarlímið í bleyti í nægu vatni, kreystið mesta af vatninu úr blöðunum þegar þau eru tilbúin og bræðið þau með sjóðandi heitu vatni, um 2-3 msk, hellið svo sítrónusafanum út í. Hrærið matarlíminu saman við ostablönduna. Þeytið rjómann og blandið honum einnig saman við sem og hrísgrjónunum, ananasbitunum, kókosmjölinu og hnetunum. Hellið blöndunni í mót og kælið hana.
Skreytið kökuna með grófum kókosrifum og ananas.