1,5 l kjúklinga/grænmetiskraftur
5 dl bygg
2 hvítlauksrif kramin
1 laukur fínt hakkaður
100 g sveppir
2 tsk basil
2 tsk steinselja
2 tsk graslaukur
1,5 dl rifinn parmesan ostur
Salt og pipar
Byrjið á að láta hvítlaukinn og laukinn malla í rúmlega 2 matskeiðum af olíu eða blöndu af olíu og smjöri þar til hann verður mjúkur og glær. Hann á ekki að verða brúnn. Byggið er svo sett á pönnuna og allt látið malla í 2 mín á meðalhita. Vökvanum bætt út í af og til einn dl í einu og hrært í á milli. Það getur tekið 45-60 mín að sjóða byggið.
Á annari pönnu eru niðursneiddir sveppir steiktir, þeir kryddaðir með basil og steinselju.
Undur lok "suðutíma" byggsins er sveppunum bætt saman við byggið. Þegar byggottoið er tilbúið er parmesan ostinum hrært saman við og saltað og piprað.
Mér finnst gott að hafa smá bit í bygginu en aðrir vilja hafa það alveg mjúkt. Hægt er að stjórna því með suðutímanum. Ef byggið er ekki tilbúið að ykkar mati þegar krafturinn er búinn er hægt að bæta vatni við og sjóða aðeins lengur.