Þessi uppskrift kemur frá Írisi sem er með mér í saumaklúbbi. Er fyrir 4 fullorðna.
5 kjúklingabringur
1/4 bolli Sweet hot chillisósa. <br>Passa að setja ekki of mikið því að þá verður sósan allt of ráðandi.
Kjúklingabringur skornar í ræmur og snöggsteiktar í olíu. Sweet hot chillisósu hellt yfir og látið malla í smá stund.
Sósa
3/4 bolli olía
3/8 bolli balsamik edik
3 msk. sykur
3 msk. sojasósa
Þetta er soðið saman í ca. 1 mín, kælt og hrært í annað slagið meðan kólnar (ef ekki hrært skilur sósan sig!). Hef gert sósuna daginn áður með því að setja allt saman í flösku og hrista. Sósan skilur sig örugglega en þá er bara að hrista aftur.
4 poki instant súpunúðlur - ekki nota kryddið
möndluflögur (3-4 matskeiðar) eða eftir smekk
sesamfræ (1-2 matskeiðar) eða eftir smekk
Þetta er ristað á þurri pönnu, núðlurnar brotnar í smáa bita og þær ristaðar fyrst því þær taka lengstan tíma, síðan möndlurnar og fræin. Kælt. (ath. núðlurnar eiga að vera stökkar).
Salatpoki, 1 lítill rauðlaukur, sherry tómatar og/eða 1 mangó og/eða jarðaber.
Allt sett í fat eða mót. Fyrst salatið, síðan núðlugumsið ofan á svo balsamic blandan yfir og að síðustu er heitum kjúklingabringuræmunum dreift yfir.
Borðað með góðu brauði, t.d. hvítlauksbrauði.
Ath. gott er að geyma eitthvað af sósunni og bera fram með réttinum. Sósan er líka góð með brauðinu.