Gerir um 1 lítra af ís
2 bollar blá mjólk (má nota gula líka)
1/2 bolli sykur
4 eggjarauður þeyttar
1 bolli söxuð jarðaber
Hakkið jarðaberin í matvinnsluvél þar til þau eru í mauk. Setjið í pott helminginn af mjólkinni og eggjarauðurnar og hrærið í með sleif. Hitið yfir vægum hita þar til blandan húðar sleifina líkt og súrmjólk. Passið að elda ekki eggjarauðurnar. Takið af hitanum og bætið útí jarðaberjunum og restinni af mjólkinni smám saman. Kælið í ísskáp. Setjið í ísgerðarvél og fylgið leiðbeiningum vélarinnar. Einnig er hægt að hella blöndunni í málmskál setja í frysti og hræra í henni á hálftíma fresti þar til hún er orðin það þykk að ekki er hægt að hræra lengur í henni.