Post date: May 22, 2011 6:17:27 PM
1 L Nýmjólk
25 ml edik eða sítrónusafi
salt á hnífsoddi
Hitið mjólkina á lágum hita upp í 82-85°C (mjólkin má ekki sjóða). Takið af hellunni og bætið ediki eða sítrónusafa saman við ásamt saltinu og hrærið vel saman við. Mjólkin skilur sig strax og það sést í gulan vökva*. Setjið viskastykki yfir pottin og látið standa í a.m.k. tvo klukkutíma. Þegar blandan hefur fengið að standa er henni hellt í tvöfalda grisju eða þunnt viskastykki sem er innan í sigti. Látið standa í a.m.k. tvo klukkutíma, lengur ef osturinn á að vera þéttari. Ekki kreista þar sem vökvinn þarf að síast hægt úr ostablöndunni. Geymið í lokuðu íláti í ísskáp.
Ricotta osturinn geymist í kæli í 7 daga.
Hægt er að nota vökvann sem síast frá til að baka úr í staðinn fyrir mjólk eða vatn.
*Ef það gerist ekki þá hefur mjólkin ekki hitnað nóg (hitið aðeins lengur).
Athuga:
1 L Nýmjólk
0,25 L súrmjólk