Post date: Nov 10, 2010 6:4:9 PM
Sykurlaust bananadöðlukryddbrauð
Þetta er í raun bananabrauðsuppskriftin mín sem ég er búin að breyta smá.
1 egg
200 g döðlur soðnar í
1/2 bolla af vatni
2 bananar - maukaðir
1/2 tsk salt
1 tsk kanill
1 tsk negull
1 tsk engifer
1 1/2 tsk matarsódi
5 dl hveiti
Sjóðið döðlur í litlu vatni þar til þær eru maukaðar, kælið.
Þeytið egg, döðlumauk og maukaða banana. Setjið þurrefnin í
skál og blandið saman. Hrærið hveitiblöndunni varlega saman
við eggjahræruna. Setjið í form sem rúmar 1 1/2 lítra. Bakið
í 45 mín við 190°C.