Post date: Jan 07, 2011 11:14:33 AM
Rauð sósa:
2-3 gulir laukar
3-4 gulrætur
2-3 hvítlauksrif
2 dl rauðar linsur
2-3 dl vatn
2 dósir hakkaðir tómatar
5-6 msk tómat pure
1 grænmetistengingur
Ólífuolía
Salt, svartur pipar, sykur, basilika, oregano,paprikuduft, chilli,cayenne pipar
Aðferð:
Laukurinn skorinn smátt. Gulrætur rifnar gróft. Hvítlaukurinn pressaður og látið þetta þrennt mýkjast í olíunni á pönnu. Linsunum bætt við ásamt vatni, tening, tómötunum og tómatpure.
Hvít sósa:
300-400 g kotasæla
3 dl rifinn ostur (geyma hluta til að láta ofan á)
200 g frosið spínat
Salt, hvítur pipar, múskat (alveg hægt að nota svartan pipar)
Aðferð:
Spínat látið þiðna(hef hellt sjóðandi vatni yfir/hitað í örbylgju) og kreista svo vatnið vel af (hægt að nota kartöflupressu). Öllu blandað vel saman og kryddað.
Lasagne plötum er raðað á botninn í eldfast form. Því næst er sett rauð sósa, plötur, hvít sósa og plötur. Þetta er endurtekið þar til formið er fullt. Endað er á plötum, ofan á þær er stráð rifnum osti og að lokum er 1-2 dl af mjólk hellt yfir allt saman. Bakað í ofni, 200° í ca.40 mínútur.