Post date: Nov 10, 2010 10:54:18 PM
Þessi uppskrift er bara hrein snilld. Hún er af síðunni recipezaar.com og er upprunalega helmingi stærri.
Deig
2,4 dl sykur
3 egg
0,9 dl súrmjólk
0,9 dl grænmetisolía
1 tsk vanillusykur
2,4 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1/4 tsk salt
1/2 tsk kanel
2,4 dl gulrætur - rifnar
1,2 dl valhnetur - hakkaðar (má sleppa)
lítil dós ananas - kurlaður
1,2 dl kókosmjöl
Þeytið egg og sykur vel saman. Bætið svo súrmjólk, olíu og vanillu saman við. Blandið hveiti, lyftidufti, salti og kanil í skál og bætið svo saman við eggjablönduna. Hrærið vel. Hellið því næst rifnum gulrótum, hökkuðum valhnetum, ananas og kókos ofaná deigið og hrærið vel. Setjið í hringlaga smelluform 22 cm í þvermál. Bakið í 55mín við 175°C. Þegar kakan er komin úr ofninum er sýrópinu hellt yfir kökuna. Kælið og smyrjið kreminu ofaná.
Sýróp
1,2 dl sykur
0,6 dl súrmjólk
0,6 dl smjörlíki
1/2 msk sýróp
1/4 tsk lyftiduft
1/2 tsk vanillusykur
Setjið sykur, súrmjólk, smjörlíki, sýróp og lyftiduft í pott og hitið til suðu. Látið malla í 4 mín á meðal hita. Takið af hellunni og blandið vanillusykrinum saman við.
Krem
<div class="innihald">125 g rjómaostur
0,6 dl smjör - mjúkt
225 g flórsykur
1/2 tsk vanillusykur
Hrærið saman smjör og rjómaost þar til blandan er orðin mjúk, bætið sykur saman við í skömmtum. Hrærið þar til kremið er orðið létt og "fluffy". Hrærið vanillusykrinum sana við.