Viltu ganga í unglingadeild? Kynningarfundur 14. sept.

Post date: Sep 1, 2009 12:38:57 PM

Unglingadeild Kyndils leitar nú að hressum og skemmtilegum krökkum í 10. bekk til að ganga til liðs við Unglingadeild Kyndils.

Kynningarfundur um starfssemi unglingadeildarinnar í vetur verður haldinn fyrir áhugasama miðvikudaginn 14. september kl. 20.00 í húsakynnum Kyndils að Völuteig 23 Mosfellsbæ.

Unglingadeildin er góður undirbúningur fyrir hressa krakka með áhuga á góðum félagsskap og ferðamennsku. Unglingardeildarstarf er skemmtilegt og fræðandi og góður undirbúningur fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér starfssemi björgunarsveita. Þrautþjálfað björgunarsveitarfólk sinnir unglingadeildarstarfinu.