7. júlí 2008 - Fótbrot á Esjunni

Post date: Dec 9, 2008 12:23:47 AM

Fjórir Kyndilsmenn fóru í útkall í að Þverfellshorni í Esjunni á jeppa og fjórhjóli eftir að boð bárust um öklabrotna konu ofarlega í fjallinu. Þyrla Landhelgisgæslunnar var á æfingarflugi í Hvalfirði og sótti konuna áður en hópurinn komst á fjallið.