6. Október 2008 - Tvö útköll sama daginn

Post date: Dec 9, 2008 12:26:39 AM

Í kvöld var Kyndill kallaður út til að aðstoða ökumann bíls sem var fastur rétt utan við Mosfellsbæinn þegar boðað var í innanbæjarleit í Sundahverfinu. Voru Kyndilsmenn því með fyrstu sveitum á staðinn og tilbúnir í leit. Viðbragðsflýtir sveitarinnar var óvenju góður í þetta sinn því við vorum að renna í hús eftir skottúr á Fjallabak og allir í galla í bílnum þegar fyrra útkallið kom.