Námskeið í fjallabjörgun

Post date: May 25, 2011 9:31:32 PM

Fjallahópur Kyndils sækir á hverju ári fjölda námskeiða og um síðustu helgi var haldið sérhæft námskeið í fjallabjörgun þar sem farið var yfir helstu atriði sem nauðsynlegt er að kunna skil á við björgun mannslífa á fjöllum. Tveir gestir frá björgunarsveitinni Sigurgeir í Gnúpverjahreppi sóttu námskeiðið með okkur í Kyndli. Þökkum við leiðbeinendum okkar kærlega fyrir framúrskarandi námskeið.