3 villtir í þoku við Þverfellshorn

Post date: Jun 7, 2009 12:07:51 AM

Eitt teymi frá Kyndli tók þátt í aðgerðum í Esjunni í kvöld en 3 erlendir ferðamenn voru villtir ofan við Þverfellshorn í mikilli þoku. Svæðisstjórn var í farsímasambandi við fólkið og var því hægt að staðsetja þau nokkuð vel þannig að björgunarmenn voru snöggir að finna fólkið og aðstoða það niður.