Óveðursútkall

Post date: Mar 7, 2013 10:51:34 AM

Í gær var heildarútkall hjá Kyndli og voru allir bílar sveitarinnar í verkefnum frá morgni til kvölds. Verstur var veðurofsinn á Vesturlandsveginum þar sem mikið hættuástand skapaðist þegar stór flutningabíll með tengivagni rann út af veginum og lokaði báðum akgreinum til Mosfellsbæjar. Kyndill þurfti að sinna bráðaútköllum í Mosfellsbæ þar sem sjúkrabílar komust ekki framhjá flutningabílnum.

Vel tókst til að leysa öll þau verkefni sem upp komu og leystust þau öll farsællega.