Verslum flugeldana í heimabyggð

Post date: Dec 27, 2011 2:36:00 PM

Flugeldasalan er mikilvægasta fjáröflun björgunarsveitanna á hverju ári. Það skiptir miklu málið að kaupa flugeldana í sinni heimabyggð og styrkja með því starf sinnar sveitar. Í ár eru Kyndill með tvo sölustaði - annars vegar í bækistöð okkar við Völuteig og hins vegar við Krónuna í Háholti.

Þökkum stuðninginn.

Nánari upplýsingar um flugeldasöluna má finna hér.

Opnunartímar:

28.-30. desember kl. 10:00-22:00

31. desember kl. 10:00-16:00

Förum varlega - notum öryggisgleraugun.