Kynningarkvöld Unglingadeildar 7. sept.

Post date: Sep 7, 2010 5:34:57 PM

Unglingadeild Kyndils leitar nú að hressum og skemmtilegum krökkum í 10 bekk til að ganga til liðs við Unglingadeild Kyndils.

Unglingadeildin er góður undirbúningur fyrir hressa krakka með áhuga á góðum félagsskap og ferðamennsku.

Unglingardeildarstarf er skemmtilegt og fræðandi og góður undirbúningur fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér starfssemi

björgunarsveita. Þrautþjálfað björgunarsveitarfólk sinnir unglingadeildarstarfinu og sér um allt námskeiðahald.

Kynningarkvöldið er haldið 7. sept. í húsakynnum Kyndils að Völuteig 23. og hefst kynningin kl. 20.00.