Kyndill veiðir jeppamenn upp úr laxveiðiá

Post date: Sep 8, 2009 11:08:22 AM

6 manna teymi frá Kyndli var kallað út á miðvikudagskvöldið síðasta til að sækja jeppa í miðja Laxá í Kjós. Jeppinn sat fastur á stórgrýti og höfðu farþegar vaðið í land og báðu um aðstoð björgunarsveita. Sett var dráttartóg í bílinn til að losa hann auk þess sem björgunarsveitarmenn þurftu að vaða á undan bílnum til að koma honum í land enda bæði talsverðir hylir í ánni auk stórgrýtis. Björgun við þessar aðstæður getur orðið erfið enda árbotninn bæði háll og grýttur auk þess sem myrkur eykur áhættuna við verkefnið.

Smellið á myndina til að lesa fréttina í Fréttablaðinu