Æfing sleðahóps

Post date: Mar 30, 2009 2:33:50 PM

Sleðahópur Kyndils hélt á sunnudaginn sína árlegu slysaæfingu fyrir sleða og bílahópa á svæði 1 og 3. Þetta skiptið fór æfingin fram upp við Tjaldafell. Það setti strik í reikninginn að talsverð afföll urðu meðal sveita vegna útkallsins í Skessuhorni deginum áður.

Þrátt fyrir að æfingin hafi verið með minna móti þetta árið gekk allt afar vel og veður var með besta móti sól og blíða. Viljum við koma á framfæri kærum þökkum til Reynis og félaga fyrir afnot af skálanum Ríkinu.