Viðburðarríkur maí mánuður

Post date: May 25, 2011 9:21:53 PM

Miklar annir hafa verið hjá björgunarsveitum undanfarið og byrjaði maí mánuður hjá Kyndli með útkalli 9. maí þar sem leitað var að göngumanni í Esjunni sem hafði bæði villst og örmagnast. Maðurinn fannst eftir stutta leit þrekaður en að öðru leiti við góða heilsu. 12. maí var annað útkall í Esjuna þar sem aðstoða þurfti konu sem hafði slasast á gönguleiðinni upp að Þverfellshorni. Í dag var síðan allsherjarútkall vegna erlends ferðamanns sem var týndur á Sprengisandi. Sérhæfðir sleðamenn Kyndils lögðu af stað til leitar frá bækistöð okkar í Völuteig en útkallið var afturkallað þegar maðurinn fannst heill á húfi af þyrlu Landhelgisgæslunnar.