Landsæfing á Reykjanesi

Post date: Oct 24, 2009 8:02:59 PM

Tveir hópar frá Kyndli tóku þátt í Landsæfingu Landsbjargar sem haldin var að þessu sinni á Reykjarnesi.

Alls voru um 350 björgunarsveitarmenn við æfingar í blíðskaparveðri í dag og voru 53 verkefni í boði allt eftir áhugasviði hvers hóps. Mikil áhersla var lögð á fyrstuhjálp, fjallabjörgun og leitartækni. Þóttu æfingarnar ganga vel og voru flest verkefnin krefjandi og komu þreyttir björgunarsveitarmenn reynslunni ríkari aftur í Mosfellsbæinn.

Á meðfylgjandi myndum má sjá hóp frá Kyndli setja hálskraga og bakspelkur á "sjúkling" sem verið var að búa til flutnings eftir að hafa dottið í hálu fjörugrjóti.