29.-30. Nóvember 2008 - Leit að rjúpnaveiðimanni

Post date: Dec 9, 2008 12:28:42 AM

Kyndilsmenn tóku þátt í leit að týndum rjúpnaveiðimanni norðan við Skáldanes. Leitað var frá laugardagskvöldi til sunnudagskvölds og tóku tveir leitarhópar þátt frá Kyndli á tvískiptum vöktum. Alls tóku 200 björgunarsveitarmenn þátt í leitinni sem bar ekki árangur.